Fréttablaðið - 04.03.2011, Page 4
4. mars 2011 FÖSTUDAGUR4
LÖGGÆSLA „Mjög algengt er að
félagar í Hells Angels hafi hlotið
refsidóma fyrir alvarleg afbrot
og ljóst er að í röðum þeirra er að
finna marga ofbeldismenn. Þetta
á við um nokkra félaga í MC Ice-
land.“
Þetta segir Haraldur Johannes-
sen ríkislögreglustjóri. Á blaða-
mannafundi innanríkisráðherra,
lögreglu og tollgæslu í gær um
varnir gegn skipulagðri glæpa-
starfsemi upplýsti ríkislögreglu-
stjóri að íslenska vélhjólagengið
MC Iceland muni um næstu helgi
fá stöðu fullgildrar og sjálfstæðr-
ar deildar innan Hells Angels sam-
takanna. Þetta muni gerast í Ósló
þar sem félagar í MC Iceland fái
afhent merki Hells Angels.
„Með þessari aðild hefur hópur
manna hér á landi stofnað til form-
legs samstarfs við samtök glæpa-
manna sem starfa á heimsvísu,“
sagði ríkislögreglustjóri. „Þetta
þýðir að þeir munu njóta styrks
og fjármuna alþjóðlegu glæpasam-
takanna.“
„Það eru engar skyndilausnir
gegn þessum vanda,“ sagði
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra. „En forsendan fyrir því
að okkur takist þetta ætlunarverk
okkar er að við stöndum sameinuð
sem samfélag.“
Spurður hvort til kæmu aukn-
ar fjárveitingar til lögreglu, sam-
fara auknum rannsóknarheimild-
um, útilokaði ráðherra ekki að svo
kynni að vera.
„Það er mjög skýr ásetningur
okkar að safna liði í samfélaginu
gegn þessum ófögnuði,“ sagði
hann.
Að sögn ríkislögreglustjóra
hefur inngönguferli MC Iceland
verið stjórnað frá Hells Angels í
Noregi. Inngönguferlið hefur að
öllu leyti verið í samræmi við for-
skriftir Hells Angels, sem þýðir að
íslenski hópurinn hefur orðið við
öllum þeim kröfum sem Hells Ang-
els gera varðandi skipulag, aga og
uppbyggingu slíkra hópa.
Jafnframt, að merki og tákn
skipta miklu máli í heimi vélhjóla-
gengja og þannig tíðkist innan
Hells Angels að félagar sem hafi
framið morð í nafni samtakanna
beri sérstakt merki.
Alls staðar þar sem Hells Angels
hafi náð að skjóta rótum hafi aukin
skipulögð brotastarfsemi fylgt í
kjölfarið, sem beinist gegn samfé-
laginu og öryggi almennings.
Auk ráðherra og ríkislög-
reglustjóra sátu fundinn Stefán
Eiríksson lögreglustjóri á höfuð-
borgarsvæðinu, Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á
Suðurnesjum, og Snorri Ólsen toll-
stjóri. ritstjorn@frettabladid.is
SKIPULÖGÐ GLÆPASTARFSEMI Þau ræddu viðbrögð lögreglu gegn skipulagðri
glæpastarfsemi, f.v. Stefán Eiríksson lögreglustjóri, Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri, Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Sigríður Björk Guðjónsdóttir
lögreglustjóri og Snorri Ólsen tollstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lögregla segir ofbeldismenn
að finna í röðum MC Iceland
Lögregla segir meðlimi vélhjólagengisins MC Iceland fá fulla aðild að Hells Angels um helgina. Hún segir
ofbeldismenn að finna í röðum MC Iceland og að margir í Hells Angels hafi hlotið dóma fyrir alvarleg brot.
„Við erum ekki í stríði við neinn,“ segir Einar
„Boom“ Marteinsson, formaður vélhjóla-
klúbbsins MC Iceland, sem lögregla óttast
að muni innan skamms lenda í átökum við
annan vélhjólaklúbb, Black Pistons, sem starf-
ræktur er hér á landi. Black Pistons er opinber
áhangendaklúbbur vélhjólasamtakanna
Outlaws og klúbburinn hér var stofnaður af
Jóni Trausta Lútherssyni, forvera Einars á for-
mannsstóli MC Iceland, áður Fáfnis.
Einar undrast í samtali við Fréttablaðið
að yfirvöld kalli klúbbinn skipulögð glæpa-
samtök þótt enginn dómur hafi fallið á hann.
Hann vill þó ekkert segja frekar um málið.
Lögregla fullyrðir að meðlimir MC Iceland
muni um helgina fá fullgildingu sem liðs-
menn Hells Angels, eða Vítisengla, og að
athöfnin muni fara fram í Ósló. Einar vill
hvorki tjá sig um það né hvort þeir séu á leið
utan. - sh
„Við erum ekki í stríði við neinn“
EINAR „BOOM“
MARTEINSSON
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
13°
10°
8°
6°
10°
11°
5°
5°
18°
9°
13°
5°
26°
2°
10°
16°
0°Á MORGUN
10-18 m/s S- og V-til,
annars hægari.
SUNNUDAGUR
Suðvestlæg átt,
víða 8-15 m/s.
3
0
-2
0
-2
-1
0
5
3
4
-4
5
8
7
6
7
10
5
8
6
9
3
7
3
3
0
4 4
-1
-1
0
2
STUND MILLI
STRÍÐA Í dag
verður nokkuð
bjart víðast hvar.
Það lægir er líður
á daginn og kólnar
heldur í veðri.
Lægð kemur upp
að landinu seint
í nótt eða í fyrra-
málið og þá hvessir
og úrkoma fellur
á nýjan leik, fyrst
á formi snævar,
síðar slyddu og þá
rigningar.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari ætlar
að áfrýja til Hæstaréttar dómi
Héraðsdóms Reykjaness yfir
Gunnari Rúnari Sigurþórssyni,
sem dæmdur var ósakhæfur eftir
að hafa banað Hannesi Þór Helga-
syni.
Gunnar var í héraðsdómi met-
inn ósakhæfur og því sýknaður
en dæmdur til vistar á réttar-
geðdeild.
„Vegna sérstöðu málsins borið
saman við önnur mál þar sem deilt
hefur verið um sakhæfi telur ríkis-
saksóknari rétt að áfrýja málinu
til Hæstaréttar til endurskoðunar
á héraðsdómi,“ segir í tilkynningu
frá embætti ríkissaksóknara.
„Má þar nefna að fyrir liggur
að ákærði skipulagði verknaðinn
með löngum fyrirvara, ákæru-
valdið telur að orsakasamhengi á
milli ástands ákærða og verknað-
ar sé óljóst og að lýsingar á hátt-
semi ákærða í skýrslum geðlækna
og hans eigin framburði séu ekki í
fullu samræmi við þær skilgrein-
ingar sem byggt er á.“ Málinu er
áfrýjað í því skyni að ákærði verði
sakfelldur í samræmi við ákæru,
hann dæmdur til refsingar og til
greiðslu alls sakarkostnaðar. - jss
Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjaness um ósakhæfi:
Gunnar Rúnar fyrir Hæstarétt
ÁFRÝJUN Dómi yfir Gunnari Rúnari hefur
verið áfrýjað til Hæstaréttar.
STJÓRNSÝSLA Már Guðmundsson
seðlabankastjóri mætir á opinn
fund þriggja nefnda Alþingis
klukkan 10 í
dag. Þar mun
hann gera
grein fyrir
störfum pen-
ingastefnu-
nefndar Seðla-
bankans
undangengið
ár og svara
fyrirspurnum.
Efnahags- og
skattanefnd,
fjárlaganefnd og viðskiptanefnd
Alþingis halda fundinn en ásamt
Má verða á fundinum Þórarinn
G. Pétursson aðalhagfræðingur
og Rannveig Sigurðardóttir, rit-
ari peningastefnunefndar.
Í tilkynningu frá Seðlabanka
segir að fundurinn sé liður í
reglulegri upplýsingagjöf bank-
ans til Alþingis. - mþl
Seðlabankastjóri hittir nefndir:
Már á opnum
fundi Alþingis
Barði tengikassa
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæð-
inu hefur ákært mann á sextugsaldri
fyrir að berja tengikassa í Garðabæ
með barefli. Rafmagn fór af nær-
liggjandi húsum. Orkuveitan krefur
manninn um greiðslu fyrir skemmdir
á kassanum.
Karlmaður hefur í Héraðsdómi
Austurlands verið dæmdur í sex
mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir
að slá annan mann tvisvar í höfuðið
með trékylfu. Maðurinn rauf skilorð
eldri dóms og var dæmdur til að
greiða brotaþola miskabætur.
DÓMSTÓLAR
Sló í höfuð með kylfu
MÁR
GUÐMUNDSSON
BORGARMÁL Áætlað er að um
400 þúsund baðgestir hafi sótt
Ylströndina í Nauthólsvík í fyrra.
Ylströndin var opnuð árið
2000 og fékk Bláfánann árið
2003 en hann er alþjóðleg vott-
un sem veitt er rekstraraðilum
baðstranda og smábátahafna
fyrir framúrskarandi vistvæna
umgengni og meðhöndlun
úrgangs.
Heilbrigðiseftirlitið hefur
eftirlit með Ylströndinni en hún
flokkast sem náttúrulaug.
- jhh
Ylströndin vinsæl í fyrra:
Um 400 þúsund
sóttu ströndina
GENGIÐ 03.03.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,4458
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,33 115,89
187,73 188,65
159,89 160,79
21,441 21,567
20,791 20,913
18,305 18,413
1,4093 1,4175
181,58 182,66
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
– FULLT HÚS JÓLAGJAFA
REYKJAVÍK • AKUREYRI
ellingsen.is
VIKING gúmmístígvél
VARMA ullarsokkar
DIDRIKSONS húfa
DIDRIKSONS vettlingar
FRÁBÆR PAKKA TILBOÐ AF VÖRUM FYRIR
ALLS KONAR ÚTIVIST