Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 44
4. mars 2011 FÖSTUDAGUR24 24 menning@frettabladid.is Sjálfhverfur faðir sem hald- inn er gróðafíkn og ástar- þríhyrningur bræðra er meðal viðfangsefna Arth- urs Miller í leikritinu Allir synir mínir, sem Þjóðleik- húsið frumsýnir í kvöld. Allir synir mínir, sem frumsýnt verður á Stóra sviði Þjóðleikhúss- ins í kvöld, gerist á einum degi í stríðslok og fjallar um verksmiðju- eiganda og fjölskyldu hans. Faðir- inn, Joe Keller, var ákærður fyrir að framleiða gallaða vélarhluta í flugvélar hersins, sem kostuðu fjölda mannslífa, en var sýknað- ur eftir áfrýjun. Yngri sonurinn, Larry, var einmitt flugmaður í hernum og hefur hans verið sakn- að í meira en þrjú ár. Eldri son- urinn, Chris, er nýkominn heim úr stríðinu og verður hrifinn af Anne, kærustu Larry bróður síns. Þannig vakna ýmsar samvisku- og siðferðisspurningar og í kjölfar- ið hefst mikið fjölskyldu- og sál- fræðidrama. „Þetta er eitt þekktasta verk Arthurs Miller og verkið sem gerði hann frægan,“ segir Stef- án Baldurs son, leikstjóri verks- ins. „Það sló strax í gegn og hefur verið sýnt jafnt og stöðugt síðan víðs vegar um heim.“ Leikritið á tvímælalaust erindi við okkur í dag að mati Stefáns, enda umfjöllunarefnið sígilt og Sígildar samviskuspurningar Áhorfendur munu upplifa nútíma- dans, ærslafullan kabarett og sirkuslistir í dansveislunni Sinn- um þrír, sem Íslenski dansflokkur- inn frumsýnir í Borgarleikhúsinu í kvöld. Sýningin samanstendur af þremur ólíkum verkum: Gross- stadtsafari, Heilabrot og White for Decay. Grossstadtsafari, eftir Jo Ström- gren, er dansverk sem gerir mikl- ar tæknilegar kröfur til dans- aranna. Streita og árásarhneigð stórborgarlífsins, sem og skortur á einkalífi, er yrkisefni Ström- grens, en hann hefur áður unnið með Íslenska dansflokknum. Heilabrot er eftir Brian Gerke og Steinunni Ketilsdóttur. Það má flokka sem dansleikhús og hefur verið í þróun undanfarin tvö ár. Tilfinningar og átök, barneignir og ástarsorg eru meðal yrkisefna í þessu grátbroslega verki. Sigríður Soffía Níelsdóttir er ungur danshöfundur, sem starfar nú í fyrsta sinn með Íslenska dansflokknum. Verk hennar nefn- ist White for Decay og fjallar um sambönd fólks og örvæntingu og hvernig örvæntingin getur breytt einhverjum í skuggann af sjálf- um sér. Sigríður stundaði nám í fremsta sirkusskóla Evrópu og í þessu verki blandar hún saman nútímadansi og sirkuslist. - ssj Sirkuslistir, kabarett og nútímadans Leikritið „Allir synir mínir“ færði höfundi sínum Arthur Miller æðstu viðurkenningu leikhúsgagnrýnenda New York árið 1947. Fyrsta leikrit hans, „Lánsami maðurinn“, sem var frumsýnt þremur árum fyrr, fékk hræðilegar viðtökur, jafnt hjá áhorf- endum sem gagnrýnendum. Það fékk svo á Miller að hann íhugaði að leggja ritstörfin á hilluna. Sem betur fer gerði hann það ekki, því hann átti eftir að verða einhver ástsælasti og virtasti rithöfundur tuttugustu aldarinnar. ALLIR SYNIR MÍNIR spurningar um viðskiptasiðferði og ábyrgð hafa brunnið á þjóðinni undanfarin misseri. „Faðirinn er sjálfhverfur og hugsar einungis um stundar- gróða, leikritið tekur á sjálfsmynd og samvisku og listinni að kunna að lifa í samfélagi við annað fólk, í stað þess að hugsa um stundar- gróða. Þetta eru samvisku- og sið- ferðisspurningar með sterka skír- skotun til okkar tíma í ljósi atburða síðustu ára.“ Jóhann Sigurðarson leikur föður inn en eiginkonuna leikur Guðrún Gísladóttir. Hlutverk eldri sonarins er í höndum Björns Thors en þann eldri leikur Atli Rafn Sigurðar son og kærustu hans leik- ur Arnbjörg Hlíf Valsdóttir. Gretar Reynisson hannaði leik- mynd, Þórunn Sigríður Þorgríms- dóttir búninga, Lárus Björnsson sá um lýsingu og Hrafnhildur Haga- lín þýddi. - ssj ÚR WHITE FOR DECAY Sigríður Soffía Nielsen semur fyrir Íslenska dansflokk- inn í fyrsta sinn. Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður upp á örnámskeið á morgun í tilefni af aldarafmæli skólans. Í boði eru meðal annars námskeið um gagnrýna hugsun, ástar- sögur, spænsku, fátækt í sögulegu ljósi, handritalestur, Hallgerði langbrók Höskuldsdóttur og japanska skrautskrift. Námskeiðin standa yfir í þrjár klukkustundir, ýmist frá 9 til 12 eða 13 til 16 og eru öllum opin eftir því sem húsrúm leyfir. Æski- legt er að fólk skrái sig á námskeiðin fyrir fram. Nánari upplýsing- ar má finna á hi.is/vidburdir. HÍ heldur örnámskeið KARL JÓHANN Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU Karl Jóhann Jónsson myndlistarmaður sýnir málverk í veitingasal og verslun Þjóðmenningarhússins undir titlinum Inni og úti í garði. Karl Jóhann hefur tekið þátt í samsýningum og sett upp margar einkasýningar undanfarin 17 ár, auk þess sem hann hefur hlotið verðlaun fyrir myndskreytingar. Sýningin stendur í um þrjá mánuði. Miðasalan er opin alla virka daga frá kl. 13-15 Sími: 527 2100 www.tjarnarbio.is Tjarnargötu 12 - 101 Reykjavík FRAMUNDAN: með Margréti Eir Söngleikja- stund Karl Örvarsson Magni Ásgeirsson Eyþór Ingi Gunnlaugsson 10 18 Perlur söngleikjanna í tali og tónum NÁNAR Á WWW.TJARNARBIO.IS Um er að ræða 46,3 hektara úr landi Minni-Borgar í Grímsnes- og Grafnings- hreppi og 11,5 hektara úr landi Brjánsstaða í sama hreppi. Landið liggur við vegamót Biskupstungnabrautar og Sólheimavegar. Gert er ráð fyrir golfvelli í deiliskipulagi og er jarðvinna hafin á svæðinu. Á landinu hefur verið skipulagður 18 holu golfvöllur, hannaður af Edwin Roald, samanber teikningu hér að ofan. Óskað er eftir tilboðum fyrir kl. 16.00, föstudaginn 11. mars 2011. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Sparisjóðabanka Íslands hf. með fyrir- spurn á netfangið: icebank@icebank.is. Til sölu golfvöllur í byggingu við Minni-Borg í Grímsnesi 25% AF ÖLLUM JOHN FRIEDA VÖRUM Seljavegi 2 - Sími: 511 3340 www.reykjavikurapotek.is FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.