Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 20
4. mars 2011 FÖSTUDAGUR2 Framhald af forsíðu „Hver sem er má koma og það er frítt inn bæði á ráðstefnuna og leiksýninguna,“ segir Stefanía Sigurðar dóttir, sem skipuleggur leikhúsþing í Tjarnarbíói í dag. Hún lofar áhugaverðri umræðu á hádegis þingi og listrænum tilþrif- um og skemmtun í kvöld. Bendir á netfangið leikhusthing@gmail.com fyrir þá sem vilja boða komu sína. Stefanía segir málþingið snúast um alþjóðlegt leikhúslíf og tengsl þess við Ísland. Hún bendir á að Íslendingum hafi vegnað vel á vett- vangi sviðslista erlendis síðustu ár. Nefnir í því sambandi Vesturport og segir Víking Kristjánsson leikara, einn stofnendanna, verða með fyrir- lestur á málþinginu. Getur einnig sem frummælanda franska leik- stjórans Mattheiu Bellon sem hafi tvo Íslendinga innan síns leikhóps. En hvað um sýninguna í kvöld? Hverju eiga áhorfendur von á þar? „Leikverkin heita JustHere!, Hetja og Smjörbrauðsjómfrúrnar og taka um tvo tíma í það heila. Leikendur eiga það sameiginlegt að hafa allir menntað sig erlendis, flestir við European Theatre Arts í Englandi,“ svarar Stefanía og lýsir þáttunum nánar. „JustHere! er mikið lista- verk á að horfa og brýtur dálítið múrinn milli dans og leikhúss. Það er í flutningi Snædísar Lilju Inga- dóttur en hún var í hópi þriggja Íslendinga sem sýndu verk á Edin- burgh Fringe Festival nýlega. Hetja er gamanleikur um Bárð Snæfells- ás þar sem Kári Viðarsson fer með öll hlutverkin, fjórtán talsins. Það hefur verið sýnt áður, fyrst á Rifi og síðan í Landnámssetrinu og fékk lofsamlega dóma. Smjörbrauðsjóm- frúrnar verða ekki á sviðinu heldur bregða á leik í hléinu. Það er sem sagt skemmtun allan tímann.“ Stefanía segir margt gott fólk koma að leikhúsþinginu. Meðal ann- arra gesta verði rektor og kennarar Rose Bruford College í Bretlandi en sjálf stundar Stefanía þar nám í list- rænni viðburðastjórnun og varð for- maður stúdentaráðs, fyrst útlend- inga í 60 ára sögu skólans. Skipulag viðburðanna í Tjarnarbíói er loka- verkefni hennar við skólann. Hún kveðst vona að þeir geti orðið leik- urunum til uppbyggingar og áhorf- endum til umhugsunar og ánægju. gun@frettabladid.is Skemmtun allan tímann Leikhúsþing verður í Tjarnarbíói í dag sem er öllum opið endurgjaldslaust. Því er skipt í tvennt. Matur og málþing er milli klukkan 12 og 13.30 og Leikhúsveisla í kvöld klukkan 19.30 er þrjú leikverk verða flutt. Stefanía hefur skipulagt leikhúsþingið í Tjarnarbíói. Hún segir Íslendinga hafa gott orð á sér í Bretlandi fyrir listræna hæfileika. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Náttúrufræðistofnun verður með opið hús í nýjum heimkynnum í Urriðaholti í Garðabæ á morgun. Þar gefst almenningi kostur á að fræðast um störf náttúruvís- indamanna og skoða aðstöðuna. Hægt verður að kynnast skordýrafræði, jarðfræði, steingervingafræði og fuglafræði svo dæmi séu nefnd. Húsið er opið frá 13 til 17. Matseðillinn er líka sniðinn að þörfum allrar fjölskyldunnar. „Hann er ansi fjölbreyttur, allt frekar einfalt og vel úti látið,“ segir Friðrik, kampakátur með afraksturinn. En verða ein- hverjar nýjungar, séríslenskar kannski, á honum? „Já, til dæmis lambahryggur á sunnudögum,“ svarar hann og bætir við að sjálf- ur komi hann þó ekki nálægt mat- seldinni. „Ég get vel eldað og geri það gjarnan heima en kann betur við mig í uppvaskinu og finnst það besta starfið í húsinu.“ Frá því að Friðrik áformaði opnun kaffihúss í Reykjavík hefur hann verið með annan fótinn á landinu. Hann hefur þó ekki í hyggju að fjölga hér frekar kaffihúsum eða flytja heim í bráð enda hamingjusam- lega kvæntur tveggja barna faðir í Kaupmannahöfn. En hræðist hann ekki tilhugsunina að reka kaffihús í öðru landi? „Nei, enda verður staðurinn dagsdaglega rekinn af öðrum. Það mun ganga vel enda er ég umkringdur úrvals samstarfsfólki sem ég treysti hundrað prósent,“ segir hann og brosir. roald@frettabladid.is Friðrik segir vel tekið á móti fjölskyldum á nýja kaffihúsinu í Austurstræti. NÝ SENDING Í FLASH Fleiri myndir á Facebook, vertu vinur Við erum á Fermingarkjólar í öllum regnbogans litum. Ótrúlegt úrval. Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is Mjúkir dagar 30% afsláttur af handklæðum Stærð 70x140 áður 2.890 kr nú 1.990 kr Handklæðin eru ofin úr 100% Pima bómull Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447 OPIÐ - Föstudag kl 11-18 - - laugardag kl 11-17 - - sunnudag kl 12-17- - RÝMINGARSALA - Enn meiri verðlækkun á útsölunni 500 kr. 1.000 kr 2.000 kr. 3.000 kr.4.000 kr. 5.000 kr. 6.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.