Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 6
4. mars 2011 FÖSTUDAGUR6
sex saman í p
akka
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
4
58
61
0
4
/0
9
ALLT Á HVOLFI
SKEMMTILEGT MARMELAÐI
Kynning í Hagkaup, Skeifunni
föstudag og laugardag
Nýtt marmelaði, ný áferð
– engin heil ber
HÚSNÆÐISMÁL Allt að 108 pró-
senta munur er á leiguverði á
höfuðborgar svæðinu og neyslu-
viðmiðum velferðarráðuneytisins.
Kemur þetta fram í nýrri verð-
könnun Neytendasamtakanna (NS)
á húsaleigu hér á landi.
Alls tóku 817 einstaklingar þátt í
könnun NS, sem stóð yfir í tæpan
mánuð. Um 85 prósent svarenda
leigja á höfuðborgarsvæðinu.
Neysluviðmiðin eru byggð á upp-
lýsingum frá Hagstofunni. Björn
Þór Hermannsson hjá velferðar-
ráðuneytinu segir eina ástæðu mis-
munarins vera að í upplýsingum
Hagstofunnar sé ekki vitað hver
leigusali sé. Hugsanlega búi þátttak-
endur hjá vinum eða ættingjum og
húsnæðiskostnaður hjá þeim sé þar
með mun lægri en gengur og ger-
ist á hinum almenna leigumarkaði.
Slíkt gæti skekkt útkomuna veru-
lega.
„Það er mjög gott að fá upplýsing-
ar eins og koma fram í könnun NS,“
segir Björn Þór. „En eins og með
allar kannanir þarf að taka henni
með ákveðnum fyrirvara.“
Björn Þór segir útkomuna ekki
hafa komið á óvart, en neysluvið-
miðin séu þó byggð á raunveruleg-
um svörum hjá fólki.
„Mörgum kann að finnast það
skrýtið, vegna þess að hinn almenni
markaður er klárlega mun hærri,“
segir hann og bendir á að hugsan-
lega sé sá hópur sem svari könnun
NS ekki sá sami og í upplýsingum
Hagstofunnar.
Norðurlöndin taka húsnæðismál
ekki inn í sín neysluviðmið. Rökin
fyrir því eru að kostnaður við hús-
næði er svo breytilegur að ekki er
rétt að gefa út viðmið úr upplýs-
ingum Hagstofunnar. Betra sé að
fjölskyldur bæti raunútgjöldum við
hin opinberu viðmið, eins og kemur
fram í skýrslu um neysluviðmiðin.
Síðasta könnun á leiguverði hér á
landi var gerð fyrir 12 árum af Hag-
stofunni. NS telja eðlilegt að stjórn-
völd sinni þessum stóra málaflokki,
sem er orðinn sá viðamesti innan
samtakanna, með því að taka upp
ítarlegri rannsóknir og greiningu á
leigumarkaði.
Velferðarráðuneytið hefur sett á
fót samráðshóp sem skoðar mögu-
leikana á að efla leigumarkað hér
á landi í samstarfi við einka aðila.
Ráðuneytið sendi frá sér tilkynn-
ingu í gær þar sem það sló varnagla
við könnun NS. Úrtakið hefði ekki
verið valið samkvæmt viðurkennd-
um rannsóknar aðferðum og því
væru niðurstöðurnar umdeilan legar
en vert væri að skoða þær nánar.
sunna@frettabladid.is
Leiga allt að tvöfalt
hærri en viðmiðin
Könnun NS á leiguverði sýnir að neysluviðmið ráðuneytisins vegna húsaleigu
eru algjörlega óraunhæf miðað við almennan markað. Allt að 108% munur á
leiguverði í raun- og neysluviðmiðum. Fyrsta leiguverðskönnun á landinu í 12 ár.
LEIGA Í REYKJAVÍK Leiguverð á Akureyri er um 85 prósent af leiguverði í Reykjavík að meðaltali. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Niðurstöður NS bornar saman við neysluviðmið
Höfuðborgarsvæðið Neysluviðmið Leigukönnun NS Munur á fm
71 fm íbúð 69.448 krónur 107.348 krónur 54,6%
104 fm íbúð 75.472 krónur 130.718 krónur 73,2%
138 fm íbúð 81.497 krónur 158.382 krónur 94,4%
172 fm íbúð 87.522 krónur 163.017 krónur 86,3%
202 fm íbúð 93.097 krónur 194.556 krónur 108,9%
Auglýsingasími
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness
í fimm mánaða skilorðsbundið fang-
elsi fyrir að ganga í skrokk á barns-
móður sinni og fyrrverandi sam-
býliskonu. Þá var hann dæmdur til
að greiða henni 400 þúsund krónur
í bætur.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa í ágúst 2009 ráðist á konuna á
heimili hennar, gripið í höfuð henn-
ar og slegið því niður í eldhúsborð
íbúðarinnar. Þá sneri hann konuna
niður í gólfið, samkvæmt ákæru.
Konan hlaut talsverða áverka.
Daginn eftir réðst hann aftir inn í
íbúðina og inn í svefnherbergi kon-
unnar. Hann vakti hana og sneri upp
á fæturna á henni þegar hún neitaði
honum um leyfi til að sofa á sófa í
stofunni.
Nokkru síðar réðst hann á kon-
una á bifreiðaplani við Háskól-
ann á Akureyri, felldi hana í jörð-
ina, sparkaði í bak hennar og barði
hana ítrekað í hnakkann. Þá segir að
hann hafi tekið af henni farsímann
og kastað honum að henni þannig að
síminn eyðilagðist.
Enn hlaut konan ýmsa áverka, þar
með talið skerta hreyfigetu í baki.
Loks réðst maðurinn inn til henn-
ar tveim dögum síðar og fór ekki
fyrr en lögreglan handtók hann. - jss
Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta:
Réðst ítrekað á barnsmóður sína
HÉRAÐSDÓMUR Héraðsdómur Norður-
lands eystra kvað upp dóminn í gær.
ALÞINGI Skipan stjórnlagaráðs mundi
skapa vont fordæmi og leita ber annarra
leiða til að endurskoða stjórnarskrána, að
mati Helga Hjörvar, þingmanns Samfylk-
ingarinnar, sem hyggst ekki styðja tillögu
stjórnarflokkanna um stjórnlagaráð.
„Með tillögu um stjórnlagaráð freist-
ar einfaldur meirihluti Alþingis þess
að löggilda óbeinlínis það sem dómarar
Hæstaréttar hafa ógilt. Það er vont for-
dæmi vegna þess að við höfum sett dóm-
ara Hæstaréttar til að gæta að mannrétt-
indum, lögum og reglu, og það væri ófært
ef Alþingi legði það í vana sinn að löggilda
jafnharðan það sem dómararnir ógilda,“
sagði Helgi á Alþingi í gær.
Helgi segist vera ósammála Hæsta-
rétti um að ógilda hafi átt kosningarnar,
en ákvörðun réttarins beri engu að síður
að virða. Ætli menn samt að fara þessa
óheppilegu leið þurfi að breyta því sem
segir um þjóðaratkvæðagreiðslu í tillög-
unni.
„Ef menn ætla að setja það góða fólk
sem hér um ræðir til þeirra verka að gera
tillögu að nýrri stjórnarskrá með þessu
óheppilega og takmarkaða umboði finnst
mér lágmark að því sé sá sómi sýndur að
það fái umboð til að leggja tillögu sína
fyrir þjóðina í atkvæðagreiðslu áður en
málið kemur aftur inn til þingsins.“
- sh
Stjórnarþingmaður segir vont að löggilda það sem Hæstiréttur hefur ógilt:
Helgi andvígur stjórnlagaráði
HELGI HJÖRVAR
Telur þú þig vera jákvæða
manneskju?
Já 79%
Nei 21%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Óttast þú átök vélhjólagengja?
Segðu skoðun þína á Visir.is.
VINNUMARKAÐUR Allt að 370 millj-
ónum króna verður varið í átak
til að fjölga sumarstörfum fyrir
atvinnuleitendur og námsfólk.
Vonast er til að átakið skapi 900
störf. Vinnumálastofnun stýrir
átakinu í samvinnu við ríkis-
stofnanir og sveitarfélög.
Atvinnuleysistryggingasjóður
ver allt að 250 milljónum króna
í verkefnið. Ríkið tryggir með
mótframlagi að opinberar stofn-
anir geti greitt laun samkvæmt
kjarasamningum.
- þj
Átak í sumarstörfum:
370 milljónir í
atvinnusköpun
KJÖRKASSINN