Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 18
4. mars 2011 FÖSTUDAGUR18
timamot@frettabladid.is
Sólveig Eggertsdóttir myndlistarkona
opnar sína fyrstu sýningu á morgun
eftir nokkurra ára hlé en síðast sýndi
Sólveig á Nýlistasafninu árið 1997.
Stuttu síðar greindist hún með Parkin-
sonsveiki og dró sig í hlé, en tók aftur
til við myndlistina fyrir ári. Sýningin
ber yfirskriftina MYNDIR.
„Myndirnar eru unnar á síðasta ári
með mismunandi tækni og mismun-
andi aðferðum,“ útskýrir Sólveig sem
notar meðal annars vatnsliti, blek, sót,
vax og súkkulaði í verk sín. „Þetta var
nokkurs konar tilraunavinna,“ segir
hún og bætir við að hún nálgist listina
á nýjan hátt eftir að hafa greinst með
Parkinsonsveiki.
„Ég var að vinna með þessi sömu
efni áður en ég greindist og er að taka
upp þráðinn þar sem frá var horfið.
Þetta hefur þó þróast, ég ræð ekki við
að gera skúlptúra lengur en þetta eru
litlar myndir á vegg.“
Sólveig lauk námi frá mynd-
höggvara deild Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands árið 1990. Ásamt því
að setja upp einkasýningar sinnti hún
ýmsum félags- og nefndarstörfum
fyrir myndlistarmenn og var meðal
annars formaður Sambands íslenskra
myndlistarmanna árið 1994. Þá vann
hún að því að myndlistarmenn fengju
inni með vinnustofur á Korpúlfs-
stöðum. Þegar Sólveig gerði hlé á
eigin myndlist árið 1997 tók hún til
við kennslu við MHÍ og var forstöðu-
maður fræðsludeildar við skólann.
Sólveig stýrði einnig starfi Opna lista-
háskólans frá því hann var stofnaður,
árið 1999, allt til ársins 2008.
Hún segir þetta hafa verið gefandi
tímabil þó hún hafi þurft að gera hlé á
eigin sköpun og er ánægð með að vera
komin aftur af stað.
„Þetta er mjög góð tilfinning og ég
ráðlegg fólki sem er í svipaðri stöðu og
ég að fá sér eitthvað skapandi að fást
við. Þá hættir maður að hugsa um hitt.
Ég skemmti mér mjög vel við að vinna
myndirnar og vona að það skili sér til
áhorfandans.“
Sýning Sólveigar verður opnuð í
Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg á
morgun klukkan 16 og stendur til 30.
mars. Sýningin er opin virka daga frá
klukkan 10 til 18 og á laugardögum frá
klukkan 11 til 16. heida@frettabladid.is
SÓLVEIG EGGERTSDÓTTIR MYNDLISTARMAÐUR: OPNAR SÝNINGU EFTIR LANGT HLÉ
Nálgast listina á nýjan hátt
GÓÐ TILFINNING Sólveig Eggertsdóttir myndlistarkona opnar sína fyrstu sýningu á morgun síðan 1997 þegar hún greindist með Parkinsonsveiki.
FRÉTTTABLAÐIÐ/VILHELM
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
Hallur Jónasson
bifreiðarstjóri, Lindarbrekku,
Varmahlíð, Skagafirði,
sem lést á heimili sínu sunnudaginn 20. febrúar
s.l., verður jarðsunginn frá Glaumbæjarkirkju
laugardaginn 5. mars kl. 14.00.
Aðalbjörg Anna Jónsdóttir
Steinunn Helga Hallsdóttir Gunnar Randver Ágústsson
Jónas J. Hallsson Inga Hanna Dagbjartsdóttir
Hafdís Hallsdóttir Bjarni Ingvarsson
Jónína Hallsdóttir Einar Einarsson
og afabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Alda Jónsdóttir
Skógarbæ,
áður til heimilis að Hraunbæ 88 Reykjavík, lést á
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þann 1. mars 2011.
Útförin verður auglýst síðar.
Marteinn Jensen Petrica Ardalic
Steinar Á. Jensen Hólmfríður Geirsdóttir
Unnur Inga Jensen Alfred George Wilmot
Valgerður H. Jensen Hákon V. Uzureau
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
Katrín Kolka Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur
lést í faðmi fjölskyldunnar aðfaranótt sunnudagsins
27. febrúar.
Eiríkur Valdimarsson
Valdimar Kolka Eiríksson
Ingibjörg Sólveig Kolka Jón Bjarnason
Bjarni Jónsson
Ásgeir Jónsson Gerður Bolladóttir
Ingibjörg Jónsdóttir Kolka Guðmundur Sæmundsson
Laufey Erla Jónsdóttir
Páll Valdimar Kolka Jónsson Sandra Sif Einarsdóttir
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
Ingibjörgu Björnsdóttur
Hólmgarði 4, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deilda H-1 Hrafnistu
Reykjavík fyrir góða umönnun.
Unnur Júlíusdóttir Sigurður Sigurðsson
Guðbjörg Ragna Colton Bruce Colton
Gylfi Guðmundsson Kristín Erla Þórólfsdóttir
Guðrún Júlíusdóttir Haraldur Karlsson
Björn Júlíusson Jóhanna M. Aðalsteinsdóttir
og ömmubörn.
Hjartans þakkir sendum við öllum
þeim fjölmörgu sem sýnt hafa okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát
okkar einstaka og heitt elskaða eigin-
manns, stjúpföður, föður, afa, langafa
og bróður
Ásgeirs Helgasonar
múrara frá Ísafirði
Túngötu 20, 225 Álftanesi.
Símtöl, heimsóknir, tölvupóstar, facebook-kveðjur,
samúðarkort, blóm, kertaskreytingar og annar
hlýhugur ykkar hafa þerrað tár og linað hjartasárin.
Alveg sérstakar þakkir færum við Grétu Konráðsdóttur
djákna á Álftanesi fyrir ómetanlegan stuðning. Við
söknum hans öll svo ólýsanlega sárt.
Guðrún Jóhannsdóttir
Þorbjörg Jóhannsdóttir Margrét Gróa Júlíusdóttir
Ingi Bjarni Hanna
Stefán Geir Eyþór Ómar
Rannar Carl
Agnes og Alfreð
Svana, Bíbí og Addý.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Anna Guðrún
Aðalsteinsdóttir
hattasaumakona
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn
2. mars. Útförin verður auglýst síðar.
Guðný Aðalbjörg Kristjánsdóttir
Aðalsteinn Jökull Kristjánsson Kolbrún Ásdís
Valdimarsdóttir
Torfi Hermann Pétursson Margrét Jóna
Höskuldsdóttir
Valdimar Þór Halldórsson Sigríður Árný
Sigurðardóttir
Anna Björg Þorgrímsdóttir Ragnar Eyþórsson
Guðmundur Jökull Þorgrímsson
Kristján Jökull Aðalsteinsson Dagne Caridad Tailt
Tamayo
Íris Kolbrún Aðalsteinsdóttir Egill Axfjörð
Friðgeirsson
Anna Sigrún Margunnur Aðalsteinsdóttir
og barnabarnabörn
49 FRIÐRIK ERLINGSSON RITHÖFUNDUR er 49 ára í dag.„Við þurfum að losna við stjórnmálamenn með svarta
fortíð; við þurfum stjórnmálamenn með bjarta framtíð.“
Tuttugu manna hópur ungra
gítar- og flautuleikara úr
tónlistarskólum í Barcelona
og nágrenni, Escola Luthier
í Barcelona og Escola Vall
de Tenes, er í heimsókn
á Íslandi þessa dagana.
Stjórnandi hópsins er gítar-
leikarinn Gustavo Them.
Heimsóknin hefst í Reykja-
nesbæ þar sem spænska
tónlistarfólkið heldur tón-
leika 4. mars ásamt gítar-
sveitum Tónlistarskólans
þar í bæ. Tónleikarnir í
Reykjavík verða mánudags-
kvöldið 7. mars klukkan 18
í Fella- og Hólakirkju, en
þá munu nemendur úr Tón-
skóla Sigur sveins taka á
móti gestunum.
Auk þess að spila á tón-
leikum munu spænsku tón-
listarnemarnir skoða landið,
heimsækja söfn og menn-
ingarstofnanir. Mánudag-
inn 6. mars munu þeir leika
fyrir nemendur Fellaskóla.
Aðalhvatamaður að þess-
ari menningarsamvinnu er
Þorvaldur Már Guðmunds-
son gítarleikari.
Spænskir tón-
listarnemar spila