Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 30
10 föstudagur 4. mars
B a n d a r í s k a f y r i r s æ t -an Chanel Iman er talin
vera næsta ofurstjarna tísku-
heimsins. Hún er fædd árið
1990, ólst upp í Los Angeles og
á móðir hennar ættir að rekja
til Kóreu. Iman hóf fyrirsætu-
feril sinn aðeins þrettán ára
gömul og var þá strax komin
á skrá hjá Ford-skrifstofunni.
Iman hefur viðurkennt að
hana hafi ávallt langað til að
starfa sem fyrirsæta, en þess
má geta að Chanel Iman er
hennar raunverulega nafn.
Iman hefur gengið tískupall-
ana á sýningum allra helstu
tískuhúsa heims auk þess sem
hún hefur prýtt forsíður tíma-
rita á borð við Vogue, Elle, i-D
og Vanity Fair.
Chanel Iman er næsta stjórstjarna tískuheimsins:
Dreymdi um að sitja fyrir
Góðir vinir Iman ásamt hönnuðinum Valent-
ino Garavani.
Á uppleið Iman baksviðs á tískuvikunni í París
árið 2007.
Forkunnarfögur Iman sýnir haustlínu Ralph Lauren árið 2008.
Plötusnúður Iman er greinilega margt til lista lagt. Hér þeytir hún
skífum í veislu á vegum Soniu Rykiel og H&M í byrjun síðasta árs.
„Næst þér“
í ræktinni
NIKE PRO
Innra byrði efnisins dregur svita frá húðinni yfir í ytra byrðið þar sem
vökvinn breiðir úr sér á stærra svæði og gufar hratt upp þannig að
húðinn helst þurr og köld og einbeitingin fer í að ná árangir.
Bolur 7.990,-
Buxur 5.990,-
MEDIUM
Impact Sports
Frábær fyrir íþróttir/æfingar sem krefjast meðal stuðnings.
Til dæmis: Spinning, dans og aerobik.
Innri stuðningur veitir gott auka aðhald.
Fjólublár 6.990,-
Appelsínugulur 8.990,-HIGH
Impact Sports
Mjög góður fyrir allar íþróttir/æfingar sem krefjast mikils stuðnings.
Til dæmis: Hlaup, fótbolti og körfubolti. Toppurinn er með breiða
hlýra og aðlagast brjóstunum vel. Sérútbúnir innri stuðningspúðar
fyrir enn betri stuðning. Verð 12.990,-
Nýjasta nýtt í dömusportfatnaði
LIGHT
Impact Sports
Sérhannaður fyrir íþróttir sem
krefjast ekki hámarksstuðnings.
Til dæmis: Göngur, lyftingar og jóga.
Tvöfalt innra lag sem veitir stuðning.
Hægt að snúa við og nota beggja vegna.
Verð 5.990,- KYNNING