Fréttablaðið - 04.03.2011, Síða 30

Fréttablaðið - 04.03.2011, Síða 30
10 föstudagur 4. mars B a n d a r í s k a f y r i r s æ t -an Chanel Iman er talin vera næsta ofurstjarna tísku- heimsins. Hún er fædd árið 1990, ólst upp í Los Angeles og á móðir hennar ættir að rekja til Kóreu. Iman hóf fyrirsætu- feril sinn aðeins þrettán ára gömul og var þá strax komin á skrá hjá Ford-skrifstofunni. Iman hefur viðurkennt að hana hafi ávallt langað til að starfa sem fyrirsæta, en þess má geta að Chanel Iman er hennar raunverulega nafn. Iman hefur gengið tískupall- ana á sýningum allra helstu tískuhúsa heims auk þess sem hún hefur prýtt forsíður tíma- rita á borð við Vogue, Elle, i-D og Vanity Fair. Chanel Iman er næsta stjórstjarna tískuheimsins: Dreymdi um að sitja fyrir Góðir vinir Iman ásamt hönnuðinum Valent- ino Garavani. Á uppleið Iman baksviðs á tískuvikunni í París árið 2007. Forkunnarfögur Iman sýnir haustlínu Ralph Lauren árið 2008. Plötusnúður Iman er greinilega margt til lista lagt. Hér þeytir hún skífum í veislu á vegum Soniu Rykiel og H&M í byrjun síðasta árs. „Næst þér“ í ræktinni NIKE PRO Innra byrði efnisins dregur svita frá húðinni yfir í ytra byrðið þar sem vökvinn breiðir úr sér á stærra svæði og gufar hratt upp þannig að húðinn helst þurr og köld og einbeitingin fer í að ná árangir. Bolur 7.990,- Buxur 5.990,- MEDIUM Impact Sports Frábær fyrir íþróttir/æfingar sem krefjast meðal stuðnings. Til dæmis: Spinning, dans og aerobik. Innri stuðningur veitir gott auka aðhald. Fjólublár 6.990,- Appelsínugulur 8.990,-HIGH Impact Sports Mjög góður fyrir allar íþróttir/æfingar sem krefjast mikils stuðnings. Til dæmis: Hlaup, fótbolti og körfubolti. Toppurinn er með breiða hlýra og aðlagast brjóstunum vel. Sérútbúnir innri stuðningspúðar fyrir enn betri stuðning. Verð 12.990,- Nýjasta nýtt í dömusportfatnaði LIGHT Impact Sports Sérhannaður fyrir íþróttir sem krefjast ekki hámarksstuðnings. Til dæmis: Göngur, lyftingar og jóga. Tvöfalt innra lag sem veitir stuðning. Hægt að snúa við og nota beggja vegna. Verð 5.990,- KYNNING

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.