Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 10
4. mars 2011 FÖSTUDAGUR10 STJÓRNSÝSLA „Ég vil bara fá það sem mér bar á þessum tíma. Ég hefði fengið þetta, ég veit það,“ segir Hermann Skírnir Daðason, sem gerir út netabátinn Eið frá Ólafsfirði ásamt bróður sínum Jóni Heiðari. Þeir telja að á þeim hafi verið brotið við úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2006/2007. Frysti- togari hafi fengið 55 tonn af byggðakvóta, þvert á reglugerð sem þá var nýsett, en hún kveður á um að afla sem veiddur er sam- kvæmt byggðakvóta skuli land- að til vinnslu í þeirri byggð sem kvótinn er bundinn við. Í apríl 2009 lagði útgerðin fram erindi vegna málsins hjá sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðu- neytinu. Ekkert svar hefur borist og kveðst Hermann orðinn úrkula vonar um að fá nokkurn tíma svar. Samskipti vegna málsins eru rakin hér til hliðar. Stefnir nú í að málið fari fyrir dómstóla. „Það var brotið á okkur, við höfum gögn um það. Ég hefði viljað fá þessi tonn og draga þetta til baka en það er orðið of seint. Nú er ekki annað að gera en að fá lögfræðinga í málið.“ bjorn@frettabladid.is Meint ólögleg kvótaúthlutun velkist um í ráðuneytinu Útgerðarfyrirtæki vill að mistök við úthlutun byggðakvóta verði viðurkennd og hlutur þess réttur. Málið hefur velkst í sjávarútvegsráðuneytinu í tvö ár. Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir seinagang ráðuneytisins. LANDAÐ Flest bendir til að mál bræðranna Hermanns og Jóns Heiðars vegna úthlutunar byggðakvóta komi til kasta dómstóla. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT REYNISSON Fréttablaðið leitaði viðbragða í sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytinu við áliti umboðs- manns. Bjarni Harðarson, upplýs- ingafulltrúi þess, segir ráðuneytið harma hvað dregist hefur að svara. Málið eigi sér langa sögu og tengist ákvörðunum sem teknar hafi verið í tíð þáverandi ráðherra á fiskveiðiárinu 2006 til 2007. Málið sé flókið og tengist úrlausn á ágreiningi en það réttlæti ekki þennan drátt. „Það verður farið í það að svara þessu erindi sem allra fyrst.“ Harmar dráttinn Í febrúar á síðasta ári leitaði Hermann til umboðsmanns Alþingis vegna sinnuleysis sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. 2. mars 2010 ritaði umboðsmaður ráðuneytinu bréf og óskaði eftir upp- lýsingum um hvað liði afgreiðslu á erindi Hermanns. Þess var óskað að svör bærust eigi síðar en 16. mars. Erindið var ítrekað 18. mars, 29. apríl og 24. júní. Í svarbréfi ráðuneytisins 30. júní kom fram að þann sama dag hefði gagna verið óskað hjá Fiskistofu. 30. ágúst ítrekaði umboðsmaður á ný tilmæli um að ráðuneytið léti honum í té upplýsingar um hvað liði afgreiðslu erindisins. Engin svör bárust og 24. september var erindið enn ítrekað og skýringa á töfunum óskað. Svar barst 8. október. Í því sagði að umbeðnar upplýsingar frá Fiskistofu hefðu borist og hét ráðuneytið hraðri afgreiðslu. Baðst ráðuneytið jafnframt velvirðingar á töfunum, sem stöfuðu af miklum önnum. Þegar ekkert hafði gerst 30. nóvember ræddi starfsmaður umboðsmanns símleiðis við starfsmann ráðuneytisins. Bar sá við miklum önnum í ráðuneyt- inu en stefnt væri að afgreiðslu í þeirri viku. 9. desember hafði enn ekkert gerst og aftur var hringt frá umboðsmanni í ráðuneytið. Miklum og óvæntum önnum var borið við og sagt að vonast væri eftir afgreiðslu fyrir 17. desember. 28. desember var enn tilkynnt um að tafir yrðu á svörum vegna mikilla anna en stefnt væri að afgreiðslu málsins aðra vikuna í janúar 2011. 18. janúar 2011 var málið enn óafgreitt og hafði umboðsmaður samband símleiðis við ráðuneytið. Fékk hann þau svör að erindinu yrði svarað í síðasta lagi um mánaðamótin janúar-febrúar. 2. febrúar var í símtali beðist velvirð- ingar af hálfu ráðuneytisins á því að erindinu hafði enn ekki verið svarað en vonast væri til að það yrði sem fyrst. 28. febrúar lauk umboðsmaður málinu með álitsgerð. Í niðurstöðu segir að þær tafir sem orðið hafi á afgreiðslu ráðuneytisins á erindi Hermanns séu ekki í samræmi við reglur sem stjórnvöldum ber að fylgja um málshraða og svör við skriflegum erindum. Samskipti umboðsmanns og ráðuneytis 45% minna salt, sama bragð! Nýjung í saltkjöti frá Íslandslambi Skert innihald salts 45% Minna salt - sama brag 45% minna salt – sama bragð Hófleg saltneysla er mikilvæg fyrir alla sérstaklega fyrir þá sem hafa hækkaðan blóðþrýsting eða eru yfir kjörþyngd. Kjötmeistarar Íslandslambs mæla með þessu sérverkaða saltkjöti þar sem verulega hefur verið dregið úr notkunn salts án þess að það komi fram á bragðgæðunum. Undirbúningur: Baunir lagðar í bleyti yfir nótt og skolaðar áður en þær eru settar í pottinn. Það sem þarf í súpuna: 2.8 ltr. vatn / 1-1,2 kg saltkjöt / 300g baunir / 200g saltað flesk / 50g beikon / 1 stór laukur / 500g kartöflur /500g ró- fur / 250g gulrætur. Aðferð: Baunirnar eru settar í pott með vatninu, fleskinu, beikoni, saltkjötinu og lauknum sem er búið að flysja og skera í bita. Soðið við vægan hita í u.þ.b. 60 mín. Það þarf að hræra í pottinum og fleita ofan af öðru hvoru. Eftir 1 klst. suðu eru kartöflur, rófur og gulrætur settar út í pottinn og soðið áfram við vægan hita í 30 -35 mín. Saltkjöt og baunir; ný uppskrift frá Íslandslambi FASTEIGNAMARKAÐUR 280 kaup- samningum var þinglýst á höfuð- borgarsvæðinu í febrúar. Sam- kvæmt tölum Þjóðskrár nam heildarvelta 7,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaup- samning var 28,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 4,7 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 2,4 milljörð- um og viðskipti með aðrar eignir 0,8 milljörðum króna. Í samanburði við janúar fjölgar kaupsamningum um rúman fjórð- ung og um helming frá febrúar í fyrra. Þá var 186 kaupsamn- ingum þinglýst og velta nam 5,8 milljörðum króna. - þj Fasteignamarkaður rís: Kaupsamning- um fjölgar SVERÐAGLEYPIR Ogad Baba heitir þessi indverski sverðagleypir sem stingur þarna málmstöng niður í kokið á sér í tilefni af hátíð helgaðri hindúaguðnum Shiva. NORDICPHOTOS/AFP MENNING Reykjavíkurfélög Samfylkingarinnar og Vinstri grænna standa ásamt áhugahópi um þjóðarútvarp fyrir málþingi um Ríkis útvarpið á laugardag. Í tilkynningu frá félögunum segir að Ríkisútvarpið sé á kross- götum og framtíðarhlutverk þess sem þjóðarútvarps sé óljóst. Því vilji félögin halda svokallað framtíðarþing þar sem rætt verð- ur um hlutverk, stöðu og dag- skrárstefnu þess. Allir eru velkomnir á þingið sem fer fram í Hafnarhúsinu og hefst klukkan 10. Fjölbreyttur hópur fólks á sviði fjölmiðla og menningar flytur erindi. - mþl Funda um þjóðarútvarp: Málþing um Ríkisútvarpið DÓMSMÁL Síbrotamaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 24. mars af Hæstarétti. Maðurinn hafði látið greipar sópa í verslunum að undanförnu. Hann stal matvöru, fatnaði og öðrum nauðsynjavörum. Þá braust hann inn í nokkra sumar- bústaði og hafði verðmæti á brott með sér. Hann stal meðal annars rafmagnstækjum, tölvum, nauta- lundum og Durex-gleðihring. Maðurinn sem um ræðir á langan sakaferil og hefur hlotið 31 refsidóm. Hann sagði lögreglu að hann skuldaði milljón fyrir fíkniefni og stæli upp í skuldina. - jss Stungið í gæsluvarðhald: Stal gleðihring og nautalund RÍKISÚTVARPIÐ Rætt verður um stöðu og dagskrárstefnu RÚV á málþingi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.