Fréttablaðið - 04.03.2011, Side 54
4. mars 2011 FÖSTUDAGUR34FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Stjórnin hefur alltaf verið mitt
band og ég hef alla tíð verið
mikill Grétars Örvars-maður.
Lagið sem ég spóla í gang á
föstudögum er Við eigum sam-
leið – ein af þessum dægurlaga-
perlum okkar Íslendinga.“
Hjörvar Hafliðason, sjónvarpsmaður og
fótboltaspekingur.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
Miðaverð á tónleika Eagles í Nýju Laugardals-
höllinni 9. júní er líkast til það hæsta í Íslands-
sögunni þegar erlend hljómsveit er annars
vegar, eða á bilinu fimmtán til tuttugu þúsund
krónur.
Þrátt fyrir það segir Ísleifur B. Þórhallsson
hjá Senu að verðið sé sambærilegt við það sem
er í gangi erlendis og jafnvel ódýrara. Hann
nefnir þrjár ástæður fyrir miðaverðinu. „Í
fyrsta lagi er þetta örugglega stærsta hljóm-
sveit sem hefur komið til Íslands. Þeir sem eru
að slaga upp í þetta eru Roger Waters, Eric
Clapton og Metallica. Í öðru lagi eru fárán-
lega fáir miðar í boði. Það er tekin meðvituð
ákvörðun um val á húsi í samráði við Eagles
og þá er ekki verið að velja endilega stærsta
húsið. Þetta þýðir að verðið fer upp þegar þú
hefur bara tíu þúsund miða að selja,“ greinir
Ísleifur frá. „Í þriðja lagi eru þetta fyrstu tón-
leikarnir sem eru haldnir eftir að landið hrundi
og gengið féll. Það vita allir sem búa hér hvað
verðið hefur hækkað gríðarlega,“ segir hann
og bætir við að miðar á tónleika með erlendum
flytjendum hér á landi hafi verið alltof ódýrir
í gegnum tíðina. Margir tónleikahaldarar hafi
farið á hausinn oftar en einu sinni.
Aðspurður segist Ísleifur ekki hafa orðið var
við kvartanir yfir miðaverðinu. Þvert á móti
hefur eftirspurnin eftir miðum verið sú mesta
sem hann hefur kynnst. „Ég hef aldrei vitað
annað eins á ævinni. Flestir eru að tryllast og
eru til í að borga hvað sem er.“
Miðasala á tónleikana hefst fimmtudaginn
17. mars kl. 11 á Midi.is. Daginn áður hefst for-
sala fyrir viðskiptavini N1 þar sem fimm þús-
und miðar verða í boði. - fb
EAGLES Miðaverð á
bandarísku hljóm-
sveitina er á bilinu
fjórtán til tuttugu
þúsund krónur.
NORDICPHOTOS/GETTY
„Mér líður eins og ég sé rétt að byrja,“ segir plötu-
snúðurinn Margeir Ingólfsson, eða DJ Margeir, sem
heldur upp á tuttugu ára feril sinn í bransanum á
Kaffibarnum á laugardagskvöld. Gestasöngvarar
verða Daníel Ágúst, Urður Hákonardóttir og leikar-
inn Magnús Jónsson auk þess sem valdir plötusnúðar
og hljóðfæraleikarar stíga á svið.
Margeir hóf feril sinn sextán ára þegar hann og
félagi hans voru ráðnir sem plötusnúðar á Hótel Borg.
„Það runnu á okkur tvær grímur þegar fyrsta djobbið
sem við fengum var að spila á kántríkvöldi þar sem
Hallbjörn Hjartarson var heiðursgestur,“ segir Mar-
geir og hlær. „Tveimur vikum seinna var Hótel Borg
orðin vinsælasti skemmtistaðurinn á landinu eftir
að þrír vinir úr háskólanum tóku að sér skemmtana-
stjórn,“ segir hann en á meðal þeirra var Björgólfur
Thor Björgólfsson.
Margeir hefur á undanförnum árum þróað áfram
plötusnúðastarfið. Hann gefur annað slagið út eigið
efni og spilar líka reglulega í útlöndum. Til dæmis fer
hann eftir rúma viku í tíu daga ferðalag um Þýska-
land og Austurríki.
Að starfa í skemmtanabransanum í langan tíma
getur tekið sinn toll eins og dæmin sanna. Spurður út
í leyndardóminn á bak við langlífi sitt í bransanum
segist Margeir beita ýmsum aðferðum til að halda
sér í góðu ásigkomulagi. Hann iðkar Pilates-æfingar,
borðar mikið af grænmeti og hráfæði og stundar hug-
leiðslu tvisvar á dag.
„Galdurinn við hugleiðsluna kemur með endur-
tekningunum, alveg eins og í teknómúsíkinni,“ segir
plötusnúðurinn og lofar skemmtilegu afmæliskvöldi
á Kaffibarnum. - fb
Fagnar tuttugu ára plötusnúðaferli
TUTTUGU ÁR Í BRANSANUM DJ Margeir hefur starfað sem
plötusnúður í tuttugu ár og er hvergi nærri hættur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Fólk er að missa sig, það er bara
þannig,“ segir Sigurður Victor
Chelbat hjá Sambíóunum.
Heimildarmyndin Never Say
Never, sem fjallar um ævi, upp-
vöxt og nýtilkomnar vinsældir
söngvarans Justins Bieber, hefur
slegið í gegn á Íslandi. Yfir 5.000
manns hafa séð myndina frá því að
hún var frumsýnd á föstudaginn í
síðustu viku og gestirnir, sem eru
að mestu leyti ungar stúlkur, virð-
ast sýna einkenni Bieber-æðis sem
hefur breiðst hratt út í Bandaríkj-
unum undanfarna mánuði.
Dæmi er um að stúlkurnar komi
grátandi út af sýningunum, sam-
kvæmt Sigurði Victori. „Á laugar-
daginn í síðustu viku komu stelpur
hágrenjandi út úr salnum og létu
þau orð falla að þær ætluðu í þriðja
skiptið á myndina daginn eftir,“
segir hann.
Fréttablaðinu hefur borist fregn-
ir af því að bíógestir taki upp síma
og reyni að ná myndum af Justin
Bieber á hvíta tjaldinu. Sigurður
staðfestir að það hafi gerst. „Það
hefur eitthvað borið á því að fólk
öskri að hann sé að horfa á það
og taki myndir,“ segir hann. „En
snilldin er sú að myndin er í þrí-
vídd sem gerir frekar erfitt að taka
upp. Nema þetta séu algjörir snill-
ingar.“
Þessi kanadíski hjartaknúsari,
sem varð 17 ára á þriðjudaginn,
hefur ekki aðeins unnið hug og
hjörtu kjökrandi táningsstúlkna.
Söngkonan Íris Hólm viðurkennir
fúslega að hún sé haldin Bieber-
æði, en hún fór með ungri systur
sinni á myndina í vikunni og hefur
ekki verið söm síðan.
„Hann er stórkostlegur lista-
maður,“ segir Íris. Hún viðurkenn-
ir að hafa ekki búist við miklu af
ÍRIS HÓLM: JUSTIN BIEBER ER STÓRKOSTLEGUR LISTAMAÐUR
Bieber-æði skellur á
íslensku kvenþjóðinni
KANADÍSKUR HJARTAKNÚSARI
Justin Bieber hefur unnið hjörtu íslensku kven-
þjóðarinnar. Unglingsstúlkur, sem og þær sem
eldri eru, hafa grátið yfir heimildarmyndinni
Never Say Never sem fjallar um söngvarann.
Söngkonan Íris Hólm viðurkennir fúslega að vera
með Bieber-æði.
Borga hvað sem er fyrir Eagles-miða
söngvaranum unga, enda hefur
tónlistarbransinn framleitt mörg
ungstirnin með hjálp nútímatækni
í stað hæfileika. „En svo sá ég að
hann er rosalega hæfileikaríkur.
Hann spilar á fullt af hljóðfærum
og hefur þurft að vinna mikið fyrir
velgengni sinni.“
Eins og yngri aðdáendur söngv-
arans sleppti Íris tilfinningunum
lausum og grét yfir myndinni. „Ég
grét þegar litlu stelpurnar grétu;
þegar hann missti röddina og varð
að aflýsa tónleikum. Honum fannst
það mjög erfitt. Ég grét líka þegar
hann náði að selja upp tónleika í
Madison Square Garden á 22 mín-
útum,“ segir Íris að lokum og játar
að um gleði- og sorgartár hafi verið
að ræða. atlifannar@frettabladid.is
2.
prentun
komin
„
“
Mið 9.3. Kl. 19:00
Lau 12.3. Kl. 19:00
Mið 16.3. Kl. 19:00
Fim 17.3. Kl. 19:00
Lau 26.3. Kl. 19:00
Fim 31.3. Kl. 19:00 Síð.sýn.
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Sun 6.3. Kl. 13:30
Sun 6.3. Kl. 15:00
Sun 13.3. Kl. 13:30
Sun 13.3. Kl. 15:00
Sun 20.3. Kl. 13:30
Sun 20.3. Kl. 15:00
Sun 27.3. Kl. 13:30
Sun 27.3. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Sun 6.3. Kl. 14:00
Sun 6.3. Kl. 17:00
Sun 13.3. Kl. 14:00
Sun 13.3. Kl. 17:00
Sun 20.3. Kl. 14:00
Sun 20.3. Kl. 17:00
Sun 27.3. Kl. 14:00
Sun 27.3. Kl. 17:00
Sun 3.4. Kl. 14:00
Sun 3.4. Kl. 17:00
Sun 10.4. Kl. 14:00
Sun 10.4. Kl. 17:00
Sun 17.4. Kl. 14:00
Sun 17.4. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Ö
Fös 4.3. Kl. 20:00 Frums.
Lau 5.3. Kl. 20:00 2. sýn
Fös 11.3. Kl. 20:00 3. sýn
Fös 18.3. Kl. 20:00 4. sýn
Lau 19.3. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 24.3. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 25.3. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 1.4. Kl. 20:00 Ö
Brák (Kúlan)
Fös 4.3. Kl. 20:00
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Fim 10.3. Kl. 20:00 Frums.
Fös 11.3. Kl. 20:00
Sun 13.3. Kl. 20:00
Lau 19.3. Kl. 20:00
Sun 20.3. Kl. 20:00
Fim 24.3. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 25.3. Kl. 20:00
Sun 27.3. Kl. 20:00
Mið 30.3. Kl. 20:00
Hedda Gabler (Kassinn)
U
Ö
U
Ö
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö Ö
U
Ö
Ö Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö