Fréttablaðið - 08.03.2011, Qupperneq 10
8. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR10
FRÉTTASKÝRING: Ferðalög forseta Íslands
Forseti Íslands var tæp-
lega 80 daga á ferðalögum
erlendis á síðasta ári og
hefur verið 22 daga erlend-
is af 66 á þessu ári. Ferða-
dögunum fækkaði verulega
í kjölfar bankahrunsins
haustið 2008 en hefur nú
fjölgað aftur.
Utanlandsferðum Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands, er nú
farið að fjölga aftur, en hann dró
verulega úr ferðalögum í kjölfar
bankahrunsins. Forsetinn hefur
verið erlendis í 22 daga af þeim 66
sem liðnir eru af árinu.
Forsetinn hefur verið þriðjung
þess hluta ársins 2011 sem liðinn
er erlendis. Hann hefur farið í
þrjár ferðir sem staðið hafa í sam-
tals 22 daga. Hann er nú staddur
á Ítalíu eftir fund með Benedikt
XVI páfa.
Ólafur fór alls tólf sinnum af
landi brott á síðasta ári, og var
erlendis í samtals 79 daga sam-
kvæmt samantekt Fréttablaðsins.
Tíu ferðir sem stóðu í samtals 56
daga voru vegna opinberra erinda
og kostaðar af skattgreiðendum.
Tvær ferðir sem stóðu í alls 23
daga voru farnar í einkaerindum
og greiddi Ólafur Ragnar allan
kostnað við þær úr eigin vasa,
samkvæmt upplýsingum frá emb-
ætti forseta Íslands.
Á ferðalögum sínum í opinberum
erindagjörðum á síðasta ári heim-
sótti forsetinn samtals tíu lönd.
Hann fór þrisvar til Abu Dhabi í
Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum. Þá heimsótti hann Austur-
ríki, Grænland, Indland, Indónesíu,
Kína, Portúgal, Rússland, Sviss og
Svíþjóð það árið.
Ferðalög forsetans á síðasta ári
eru umtalsvert fleiri og lengri en
árið 2009. Þá fór forsetinn í níu
utanlandsferðir og eyddi 53 dögum
í útlöndum. Þar af voru átta ferðir
í opinberum erindagjörðum sem
stóðu í 44 daga.
Þegar forseti Íslands er erlendis
fara forsætisráðherra, forseti
Alþingis og forseti Hæstarétt-
ar með forsetavald. Fyrir það fá
Forsetinn fjölgar utanlandsferðunum
þeir greiðslur frá embætti forseta
Íslands, þriðjung af launum for-
seta hver. Samkvæmt upplýsingum
frá forsætisráðuneytinu er gert
ráð fyrir þessum útgjöldum í fjár-
veitingum til forsetaembættisins.
Þó utanlandsferðum forsetans
hafi fjölgað aftur eru ferðalögin,
dagarnir sem hann eyðir erlendis,
ekki nálægt því að vera jafn margir
og árið 2007, þegar hann var ríflega
þriðjung ársins erlendis.
Árið 2007 fór Ólafur Ragnar
sautján sinnum til útlanda, þar
af þrettán sinnum í embættis-
erindum. Samtals var hann 131
dag erlendis, þar af 106 við skyldu-
störf.
Fyrri hluta árs 2008 sáust ekki
miklar breytingar á ferðalögum
forsetans. Ólafur fór tólf sinnum
til útlanda árið 2008, þar af einu
sinni í einkaerindum. Hann var
samtals 91 dag erlendis, þar af ell-
efu á eigin vegum.
Eftir bankahrunið í byrjun októ-
ber 2008 fór hann aðeins einu sinni
til útlanda það sem eftir var árs-
ins, og það var í einkaerindum en
ekki í opinberum erindagjörðum.
Ólafur fór raunar ekki af landi
brott í embættiserindum fyrr en
í maí 2009 þegar hann sótti smá-
þjóðaleikana á Kýpur.
Utanlandsferðir Ólafs Ragnars Grímssonar frá ársbyrjun 2007
2007
ja
n.
fe
b.
m
ar
.
ap
r.
m
aí
jú
n. jú
l.
ág
ú.
se
p.
ok
t.
nó
v.
de
s.
ja
n.
fe
b.
m
ar
.
ap
r.
m
aí
jú
n. jú
l.
ág
ú.
se
p.
ok
t.
nó
v.
de
s.
ja
n.
fe
b.
m
ar
.
ap
r.
m
aí
jú
n. jú
l.
ág
ú.
se
p.
ok
t.
nó
v.
de
s.
ja
n.
fe
b.
m
ar
.
ap
r.
m
aí
jú
n. jú
l.
ág
ú.
se
p.
ok
t.
nó
v.
de
s.
ja
n.
fe
b.
m
ar
.
2008 2009 2010 2010
20
15
10
5
0
Ferðast víða
Utanlandsferðum forseta
Íslands fækkaði nokkuð í
kjölfar bankahrunsins haustið
2008. Þó að ferðunum hafi
fjölgað aftur, eins og sjá má
hér að ofan, eru þær ekki jafn
margar og á árinu 2007 og á
fyrri hluta ársins 2008. Hér að
neðan má sjá fjölda ferðadaga
forsetans frá upphafi árs 2009,
brotið niður á mánuði ársins.
Þar sést glöggt hvernig dró
úr ferðalögum forsetans eftir
hrunið, og hvernig þeim hefur
nú fjölgað aftur.
2007
2008
2009
2010
2011
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, heimsótti tíu lönd
í opinberum ferðalögum sínum
í fyrra og hefur heimsótt þrjú
lönd það sem af er ári. Hér
eru nokkur dæmi um ferðir
forsetans.
■ Í janúar 2010 fór Ólafur Ragnar í
opinbera heimsókn til Indlands þar
sem hann tók meðal annars á móti
Nehru-verðlaununum.
■ Í janúar 2010 heimsótti forsetinn
Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum til að sitja Heims-
þing hreinnar orku.
■ Í mars 2010 fór forsetinn til
indónesísku eyjarinnar Balí og flutti
ræðu við setningu Heimsþings um
jarðhita.
■ Í júní 2010 tók Ólafur Ragnar
þátt í hátíðarhöldum í Svíþjóð
vegna brúðkaups krónprinsess-
unnar.
■ Í nóvember 2010 var forsetinn
viðstaddur útför Jonathans
Motzfeldt, fyrrverandi formanns
landsstjórnar Grænlands.
■ Í nóvember 2010 fór forsetinn
aftur til Abu Dhabi, nú sem heiðurs-
gestur við vígslu tækniháskóla.
■ Í janúar 2011 fór Ólafur Ragnar
aftur til Abu Dhabi til að sitja
Heimsþing hreinnar orku.
■ Í janúar 2011 sat forsetinn
Alþjóða efnahagsþingið í í Sviss.
■ Í febrúar 2011 flutti Ólafur
Ragnar setningarræðu á þingi
Jarðhitasamtaka Bandaríkjanna í
New York.
Til útlanda í ýmsum erindagjörðum
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
NISSAN JUKE
Framhjóladrifinn, sjálfskiptur, 1.6 b
eyðsla 6,3 l/100km, CO2 losun 14
3.850.000 kr. / 44.221 kr.
NISSAN QASHQAI
5 manna 4WD, sjálfskiptur, 2.0 be
eyðsla 8,2 l/100km, CO2 losun 18
4.990.000 kr. / 57.227 kr
*Mán.greiðsla m.v. 30% útb. og bílasam
Nýr Nissan X-Trail er stærri og rúmbetri en flestir bílar í sama flokki. Þessi vinsæli
jeppi er nú fáanlegur í nýrri og uppfærðri útgáfu. Kraftmikil dísilvél, sjálfskipting,
eitt fullkomnasta fjórhjóladrif sem völ er á, þráðlaus símabúnaður, skriðstillir,
fullkomin hljómflutningstæki og aksturstölva er allt staðalbúnaður í Nissan X-Trail.
Kíktu til okkar og reynsluaktu nýjum Nissan X-Trail.
Allar nánari upplýsingar á www.nissan.is DÍSIL
Verð frá:
5.990.000
Eyðsla: 7.1 l/100 km
CO2 losun: 188 g/km
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
7
3
0
NISSAN NOTE
1.4, eyðsla 5,9 l/100km, CO2 losu
1.6, eyðsla 6,6 l/100km, CO2 losu
Frá 2.490.000 kr. / 28.870