Fréttablaðið - 08.03.2011, Page 24

Fréttablaðið - 08.03.2011, Page 24
8. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR8 Atvinnuhúsnæði Til Leigu skrifstofu herbergi lítil og stór við ármúla góð bílastæði og hagstætt verð uppl. 8993760 Atvinnuhúsnæði Til leigu 230fm atvinnuhúsnæði í laufbrekku kópavogi. 3stórar innkeyrsludyr. Góð aðkoma með stóru bílaplani. Leigist að hluta eða í heilu. Leigutími 6mán-1ár. Glersýn sf. Ingvar s.6630006 Geymsluhúsnæði geymslur.com Geymslur frá 3990.- kr á mán. Í Garðabæ (hjá Ikea) og Reykjavík (Fiskislóð) Upphitað, vaktað & öryggismyndavélar. S. 555 3464. FRYSTIGEYMSLUR Vantar þig að láta geyma í frysti? Erum með útleigu á frystiplássi fyrir bretti, getum tekið allt að 100 bretti. Aðgangur að geymslum alla daga. Nánari upplýsingar veitir Gunnar í síma 690 3408 www.buslodageymsla.is Búslóðageymsla Olivers 100 kr. á dag hvert bretti. Starfað í yfir 20 ár. S. 567 4046 & 892 0808. www.geymslaeitt.is Sér geymslur frá 4 til 17 m2. Lágt verð. Opið 8-22. Búslóðir, lagerar, bókhald, iðnaðarmenn. Upphitað og vaktað. S: 564-6500 Atvinna í boði Bar 11 og Sódóma óskar eftir vönum dyravörðum, aðeins íslensku mælandi og yfir 25 koma til greina Uppl: 690 6021 milli 13 og 20. Söluturn með grill, ís og videoleigu óskar eftir starfsfólki með reynslu. Aðeins 18 ára og eldri kom til greina. Sími 659 9606. Portið veitinga og kaffihús Óskum eftir vönum þjónum í vinnu. Íslenskukunnátta skilyrði. Uppl. 893 2323 eða info@portid.is Gler og Stál ehf óska eftir að ráða faglærða smiði, helst vana uppsetningu á glerveggjum.Einnig vantar mann vanan járnsmíði. Svör með starfsupplýsingum óskast sent á stigar @símnet .is Atvinna Tilkynningar Til sölu Auglýsing um þjóðaratkvæðagreiðslu Með vísun til 5. gr. laga um framkvæmd þjóðar- atkvæðagreiðslna, nr. 91/2010, sbr. 26. gr. stjórnar- skrárinnar, nr. 33/1944, er hér með ákveðið að þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara fram hinn 9. apríl 2011 um gildi laga nr. 13/2011 um heimild til handa fjármálaráðherra til að staðfesta samninga, sem áritað- ir voru í London 8. desember 2010, um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta til breska og hollenska ríkisins á kostnaði af greiðslu lágmarkstryggingar til innstæðueigenda í útibúum Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi og greiðslu eftirstöðva og vaxta af þeim skuldbind- ingum. Lög nr. 13/2011 voru samþykkt á Alþingi hinn 16. febrúar 2011 en forseti Íslands synjaði þeim staðfestingar. Því ber að leggja lögin undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Í atkvæðagreiðslunni verður spurt um eftirfarandi: Lög nr. 13/2011 kveða á um heimild til handa fjármálaráðherra til að staðfesta samninga, sem áritaðir voru í London 8. desember 2010, um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueig- enda og fjárfesta til breska og hollenska ríkisins á kostnaði af greiðslu lágmarkstryggingar til innstæðueigenda í útibúum Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi og greiðslu eftirstöðva og vaxta af þeim skuldbindingum. Lögin voru samþykkt á Alþingi hinn 16. febrúar 2011 en forseti Íslands synjaði þeim staðfestingar. Eiga lög nr. 13/2011 að halda gildi? Svarkostirnir eru: Já, þau eiga að halda gildi. Nei, þau eiga að falla úr gildi. Atkvæðagreiðslan fer fram á sömu kjörstöðum og notast er við í almennum kosningum. Munu einstök sveitarfélög auglýsa með venjulegum hætti nánar um kjörstaðina skömmu fyrir atkvæðagreiðsluna, m.a. hvenær þeir eru opnir, hvar þeir eru, hvernig skipt er í kjördeildir, o.fl. Kjósendur eru beðnir að kynna sér vel þær upplýsingar. Kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna eiga þeir kjósendur sem eiga kosningarrétt til Alþingis, samkvæmt 2. gr. laga nr. 91/2010, sbr. 1. gr. laga nr. 24/2000. Kjörskrár verða gerðar á grundvelli kjörskrárstofna sem Þjóðskrá Íslands lætur sveitarstjórnum í té. Kjör- skrár miðast við skráð lögheimili í viðkomandi sveit- arfélagi hinn 19. mars 2011. Skulu kjörskrár lagðar fram hjá sveitarstjórnum almenningi til sýnis eigi síðar en 30. mars nk. á þann hátt á hverjum stað sem venja er þar. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 16. mars 2011. Á vefsíðu Alþingis, althingi.is, undir dálkinum Efni um Icesave, er að finna frumvarpið sem varð að lögum nr. 13/2011, ásamt öllum skjölum er varða meðferð þess á þinginu. Innanríkisráðuneytinu, 7. mars 2011. Tilkynningar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.