Sameiningin - 01.04.1924, Qupperneq 3
Mánaðarrit til duðnings hirkju og kristindómi ísltndingot
gejið út af hinu ev. lút. hirkjufdlagi ísl. \ Vestrheimi
XXXIX. árg. WINNIPIÍG, APRIIj, 1924.
Xo. 4.
Kirkjuþing 1924.
Fertugasta ársþing Hins evangeliska lúterska kirkjufélags
Íslendinga í V’esturheimi verðnr sett í kirkju Frelsis safnaðar í
Argyle-bygð, í. Manitoba, fimtudaginn 19. júní 1924. Þingsetn-
ingarþjónustu með altarisgöngu byrjar kl. 3 e. Ii.
Rétt til þingsetu eiga lögum samkvœmt prcstar og embœtt-
ismenn kirkjufélagsins og kosnir erindrekar safna&anna. Söfn-
uði, er telur 100 fermda safnaðarlimi eða þar fyrir innan, er
heimilt að kjósa einn erindreka. Söfnuði, er telur meir en 100
fcrmda meðlimi og alt upp að 200, er heimilt að kjósa tvo er-
indreka. Sófnuði, er telur meir en 200 og alt upp að 300
fermda meðlimi, er heimilt að kjósa þrjá erindreka. Söfnuði,
er telur yfir 300 fcrmda meðlimi, er heimilt að kjósa fjóra er-
indreka, en fleiri en fjóra má enginn söfnuður kjósa. Skrifleg
vottorð þurfa erindrekar að leggja fram frá söfnuðum sínum
um að þeir séu meðlimir safnaðarins, er þá hefir kosið, og að
kosning hafi farið fram á lögmætum safnaðarfundi.
Þetta þing fyllir fjórða tuginn t þingsögu vors kirkjulega
félagsskapar, og er það út af fyrir sig merkilegur atburður.
Svo verður á þinginu hátíðlega minst þess, að á þessu ári eru 50
ár liðin síðan flutt var fyrsta íslenska guðsþjónusta í Vestur-
heimi.
Nákvæmari upplýsingar um þingið verða birtar í næsta
tölublaði Sameiningarinnar.
Dagsett að Mountain, North Dakota, 2. apríl 1924.
KRISTINN K. OLAFSON,
forseti kirkjufélagsins.