Sameiningin - 01.04.1924, Blaðsíða 16
110
“Helreiðin”
í þessu tölublaði Sameiningarinnar byrjar sagan Helreiðin,
eftir sænsku skáldkonuna Selmu Lagerlöf, þá er hlotiÖ hefir
Nobels-verðlaun fyrir ritsnild og fræg er orSin fyrir skáldsögur
sínar. Mæla þaÖ sumir, aö Helreiðin sé merkilegust þeirra sagna,
er S. L. hefir ritaö. Sagan hefir ekki verið þýdd á íslenzku fyr en
nú, og telur Sameiningin sig vera hamingjusama aö veröa til þess
að birta söguna á islenzku í fyrsta sinn. Sagan verður í allmörg-
um tölublöðum, og þó all-langt mál í senn. Þýðingin islenzka
er eftir Kjartan prófast Helgason í Hruna, og er gerð af þeirri
vandvirkni og þeirn tökum á íslenzku máli, sem honum flestum
öðrum fremur er trúandi til. Sameiningin er þess fullviss, aö
lestur þessarar ágætu sögu verður öilum óblandin ánægja.
ÁRSSKÝRSLUR.
Enn eru ekki til mín koinnar ársskýrslur fyrir síöastliöiö ár,
nema frá 24 söfnuðum. Skrifarar þeirra. safnaöa, sem enn eiga
ósendar skýrslur, eru hér meö vinsamlega mintir á aö láta það ekki
dragast lengur.
Baldur, Man., 12. apríl 1924.
F. Hallgrímsson,
skrifari kirkjufélagsins.
Úr Heimahögum.
Nýjar kirkjur.—Á þessu vori veröa reistar tvær nýjar kirkjur,
önnur í Selkirk, en hin í Lincoln County í Minnesota. Báöir þeir
söfnuðir mistu kirkjur sínar í eldi fyrir nokkru. Veröa kirkjurnar
nýju sérlega vandaðar báöa.
Söngsamkoma.—í kirkju Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg
var söngsamkoma mikil haklin 10. þ.m. Söngflokkur, er hr. Davíð
Jónasson hefir æft og stýrir, leysti þar af hendi mikið hlutverk af
mikilli list. Kirkjan var því nær full af fólki. Aröinum af sam-
komunni ('um $150.00J var skift til/helminga milli Betel og Jóns
Bjarnasonar skóla.
Hljómleikar þeirra Steingrímis K. Hall, organista við Fyrstu
lút. kirkju í Wpeg, og frú Sigríðar Hall, sólóista viö sömu kirkju,
sem haldnir voru í kirkjunni nýlega, voru meö afbrigðum vandaðir.
Prof. Hall er aö undirbúa útgáfu sönglaga sinna. Frúin er á förum
til New York til söngæfinga þar.