Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1924, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.04.1924, Blaðsíða 6
100 Guð sag'Si: “VerÖi ljós.” Og hann kveikti ljós vonarinn- ar í mannshjartanu. Vonin hefir veri'S verndarengill lífsins frá því sögur !hóf- ust. Og hún er ekki tál. Því guð, sem glæðir neista vonar- innar, hefir einnig veitt möguleikana til uppfyllingar. Jafnvel snjórinn sjálfur er forspá um komandi regn. Trúuðum manni er dauðinn sjálfur botSberi lifsins. Hvert Móm, sem skreytir sléttuna, hver geisli, sem gyllir fjöllin, hver runnur, sem ilmar, hver vindblær, sem 'bærir blöð trjánna, hver litblær rósanna, hvert fölnað lauf, er hnígur til jarðar, eru honum boðberar til vor frá guði. Þau flytja oss boðskapinn um ást guðs. Og þreyta mannssálarinnar hverfur þá fyrst, er hann finn- ur ástaryl guðs i sál sinni, — veit, að drottinn himins og jarð- ar elskar hana. Uppfylling innilegustu þrár mannsandans er sú, að öðlast vissu um ást guðs. Mannlegri sál nægir ekki með- vitund um ótæmandi kraft. Æstur sær er afli þrunginn; hvert smáfley þráir 'höfn. Vitið eitt huggar aldrei syrgjandi mann; þar hefi eg séð bitrasta sorg, er trúlaus maður sat við líkbörur ástvinar síns. Hann þekti lög náttúrunnar. Stjörnurnar höfðu flutt honum boðskap sinn. En sál hans hafði ekki veitt viðtöku boðskapnum um ást guðs. Hann hafði ekki lært að biðja sem barn: Vertu, guð faðir, faSir minn. Hann hafði ekki fest trúnað á orð Jesú: “Eg er upprisan og lífið, hver, sem trúir á mig, mun 'lifa, þótt hann deyi.” Og því var sorg hans vonlaus. Sál mannsins þráir fyrst af öllu miskunn guðs, náð hans. Og sé það alvörumaður, sem um er að ræða, hlýtur hann að spyrja sjálfan sig, sem skáldið forðum: “Er nokkur rödd, sem frá 'himnum hljómar, hauðrið nær þegir um miðnætur skeið?” Önd' hans er þreytt, “hvar má hún finna hvíld?” IV. Maðurinn þráir ást guðs. Mun það, mannlega talað, vera góður faðir, sem veit þrá barnsins að þekkja hann, en heldur sig ætíö fjarri? Mun þá guð, sem veitt hefir mannlegum sálum kærleikann, eigi bera ást til barna sinna? Hefir guð veitt æðstu og göfug- ustu þrá sálarinnar möguleika til uppfyllingar ? Guð sagði: “Verði ljós”. Hann kveikti afl ástarinnar í sálum manna. En fegurst skin kærleikur guðs, er hann stíg- ur sjálfur á jörðina til að leiðbeina og líkna, þegar guð verður

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.