Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1924, Blaðsíða 19

Sameiningin - 01.04.1924, Blaðsíða 19
113 Hann var aö gjöra aö gamni sínu, og flestir drengjanna hlógu aö honum. Þeim þótti öllum vænt um Valda. En Lárus reiddist og sagöi: “Eg get það, ef eg kærði mig um ^það!” Nokkrar af stúlkunum, sem voru þar nálægt, heyröu samtaliö og komu til þeirra. “Eg Ihefi aldrei talaö viö neinn í kenslustund í heilan mánuö,” sagöi ein þeirra. “Eg talaöi aldrei alt fyrsta áriö, sem eg var i skólanum,” sagöi önnur. “Eg get þagaö eins lengi og eg vil,” sagöi ,einn af drengjunum. “Hvers vegna gjörir þú það þá ekki?” spurði Valdi. “Of mikil áreynsla,,” svaraöi hinn. Þá rétti Valdi úr sér og sagöi: “Mamma segir, að eg megi bjóöa öllum i okkar skólastofu heim til okkar, ef eg vil.” Börnin hljóðuðu upp yfir sig af fögnuði, en Valdi flýtti sér að bæta við: “En henni mundi ekki falla þaö, ef eg byöi neinum, sem er vondur við Mörtu kenslukonu, því þær voru skólasystur.” Svo gekk hann rakleiðis inn í skólann, og í því var skólabjöllunni hringt. Börnin gengu inn hávaðalaust, settust í sæti sín og tóku fram bækur sínar. Þau kunnu óvanalega aö hegða sér vel, og þau sýndu það öll í verkinu. Og svo fóru þau öll að Iæra af mesta kappi. Það fór undir eins aö hýrna yfir kenslukonunni; og þegar skólatíminn var liðinn, var hún ekki nærri því eins þreytuleg og hún hafði veriö um morguninn. Tilraunin hans Valda ilitla til að hjálpa henni, hafði hepnast fremur öllum vonum. Þegar börnin fóru úr s’kólanum þann dag, tók Valdi allar bæk- urnar sínar með sér. “Þú ætlar þó ekki aö hætta að koma í skól- ann?” spur'ði Eárus forviða. “Síður en svo,” svaraði Valdi; “en eg ætla eftir þetta aö Iesa miklu meira heima.” — Marta kenslukona vissi aldrei, hvað komið haföi fyrir, og hún þorði ekki að grenslast eftir því. En henni fanst þetta vera nýtt líf; börnin voru öll orðin svo góö og ástundunarsöm. Hún hrestist með hv^rjum degi, og þegar skólaáriö var á enda, var hún hraust- legri í sjón en þegar það byrjaði. Og svo kom heimboðið daginn eftir að skóla var sagt upp. Það þurfti engum að bjóða sérstaklega, því börnin vissu, að þau voru öll boðin. Sú veizla stóð yfir allan- daginn. Faðir hans Valda sótti börnin í hifreiöinni sinni stórii og fór með þau út á búgarð sinn. Fyrst borðuðu þau miðdegisverð úti í fallega garðinum og léku sér svo allan daginn, og fóru ekki heim fyr en þau voru búin að borða kvöldverð. Þau sögðust aldrei hafa lifað skemtilegri dag. Og Valdi skildi það svo vel; hann skildi, að þau höfðu notið þessarar skemtunar svo vel, af því að þau höfðu unnið til hennar.-------

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.