Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1924, Qupperneq 14

Sameiningin - 01.04.1924, Qupperneq 14
108 þó þau séu alveg fullnægjandi—, heldur má lika benda til þess, hvernig frumkristnin skildi þessi orÖ og leitaðist vi8 að sýna hlýðni í verki. Postularnir og samtíÖarmenn þeirra í kristninni voru auÖsjáanlega ekki í neinum vafa um vilja Krists í þessu efni, og þess vegna géngu þeir eins hiklaust að verki eins og sagan ber vitni um. Kristnin, sem næst var frelsaranum, sýndi mestan trúboösáhuga. Enda hefir veriÖ þvínær algert samkomulag um heiðingja- trúboÖsskylduna innan kristninnar. Hver einasta deild kristinnar kirkju mun viðurkenna skylduna, þó oft hafi skyldan verið van- rækt. Og er þetta samkomulag þeim mun merkilegra fyrir þa'ö, hve niörg ágreiningsatriöin hafa veriÖ. ÞaÖ er eitt af grundvall- aratriðum þeirn, sem hefir veriÖ hafiö yfir ágreining milli kirkju- deildanna. Það heyrir algerlega til undantekninga, að fram komi raddir innan kirkjunnar, sem heiöingjatrúboöi eru andstæðar, og þegar það ber við, er máliö ekki rætt út frá kenningu nýja testa- mentisins, eÖa vafi dreginn á það, að heiðingjatrúboöi sé þar 'haldið fram, heldur er þá gengið í berhögg við kenningu Krists, og því haldið fram, að ihún hafi el-cki úrskurðarvald aö minsta kosti í þessu efni. Á rneöal vor, kristinna íslendinga, er svo skamt síöan farið var að hreyfa viö þessu máli, að enn sem koniið er, má það heita nýtt mál. En ekki hefir vanrækslan hjá oss, frekar en annai»s- staÖar, réttlætt sig með því, aÖ hún væri heimiluð í nýja testa- mentinu. Þvert á móti hefir þaö verið bezti stuðningur rnálinu, siðan farið var aö sinna því lítillega, aö hver upplýstur kristinn maður veit hve skýlaust það er, að hér er að ræÖa um kristilega skyldu. En langvarandi vanræksla hefir átt niestan þátt i því, að seinlegt hefir orðið aö gera meðvitundina um þessa skyldu veru- lega vakandi. Það er ætíö sv erfitt að fá þvíihrundiÖ, sem hefð er kornin á, þó óheilbrigt sé. Og vanræksla heiðingjatrúboðsins var búin aö fá á sig hefð í íslenzkri kristni. HeiÖingjatrúboðsskyldan er sú sama fyrir þvi, þó hægt væri að sýna fram á ófullkomleik í því, hvernig starfið er rækt, eins og oft er gert af þeim, sem lítinn gáning hafa á trúboði. A8 sjálfsögðu er starfið- ekki fullkomið, fremur en annað starf jafn- vel þeirra, sem bezt eru kristnir, en það mun mega fullyrða, að i því starfi kristninnar mun hafa komið fram eins mikið og meira af anda óeigingjarnrar fórnfærslu, eins og á nokkru ööru sviði kristilegs starfs. Og það, sem er af ófullkomleik í starf- inu, verður einungis bætt þannig, að andi Krists fái þar rneiru að ráða, svo kristnin heimafyrir og starfsmennirnir á trúboös- svæðunum, keppi eftir því um frarn alt annaö, aÖ starfið megi

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.