Sameiningin - 01.04.1924, Page 9
103
MeS upprisu Jesú eru oss sönnuS ummæli hans: “Eg er
upprisan og lífiS; hver, sem trúir á mig, mun lifa, )þótt 'hann
deyi.” í augum kristins manns hef’ir dauðinn mist ægivald
sitt. 1 stað þess aÖ ógna með auSn og gleymsku, flytur hann
kristnum manni fagnaðartíöindi, boSskap frá fööurnum, er kall-
ar barniS sitt heim. Hugrór getur kristinn maður tekiÖ undir
orÖ postulans: “DauSi, hvar er broddur þinn; hel, hvar er sig-
ur þinn? GuÖi sé lof, sem oss hefir sigurinn gefiS fyrir Jesúm
Krist.”
Með upprisu Jesú eru endurfundir kristinna ástvina trygÖ-
ir. “Eg fer burt a'ö tilbúa yður stað,” segir hann. “Eg mun
taka yður til mín, svo þér séuð þar, sem eg er.”
SkilnaÖur kristinna ástvina við banabeð, er engu ægilegri
í þeirra augum, en burtflutningur í aöra heimsálfu, nema síÖur
sé. Þeir vita, aÖ skilnaÖurinn er aö eins um stund.
Með hjartanlega ró í sálunni, getur kristinn maður faliö
guði áhugamál sín öll. Þaö af þeirn, sem eigi er að guðs vilja,
má og á aö hverfa. En hvert það áhugamál kristins manns,
sem er að guðs vilja, hlýtur, fyr eða síðar, aö sigra. Því það,
senr er frá guði, getur ekki dáið.
Móðir nokkur, sem unni syni sínum, er vilzt 'hafði út á lasta
brautir, bað fyrir honum án afláts um margra ára skeið.
“Ómögulegt er,” sagöi henni kennimaður einn, “að sonur slíkra
tára glatist.” ■—- Sonur henniar varð siðah eitt hið skærasta ljós
kristninnar. Jesús, sem reis upp frá dauðum, veitti honum mátt
og vilja til að segja: “Eg vil taka mig upp og fara til föður
míns.”
VI.
Eitt af hryggilegastu táknum í hugsanaheimi vor íslend-
inga um þessar mundir, er svartsýni. Eg álasa engum; þekki'
of vel freistingar í þá átt sjálfur. En þaö hefir guð veitt mér,
að þó eg hafi að mjög miklu ieyti mist trú á menn, hefir jiað
orðið til þess, aö upprisuljósið ‘hefir skinið mér þyí skærar.
Mér dylst ekki, að hjartanleg trú á boðskap Jesú, sem reis
upp frá dauðum, er eina lífið fyrir vora þjó'ö sem aðrar.
Misskilji mig enginn. Eg viðurkenni fyllilega, að “guðs-
ríki er ekki fólgið i orðum, heldur í krafti.” Játningar, orða-
val, venjur, — alt þetta liggur mér í léttu 'rúmi. En góður guö
gefi oss lotningu fyrir honum og boðskap hans, veiti oss anda
Jesú Krists og alla þá vizku og vitrun, sem páskaboðskapurinn
um hann, upprisinn og dýrölegan, veitir trúuðum sálum. Veiti