Sameiningin - 01.04.1924, Qupperneq 20
114
OÞetta «r sönn saga. Þegar Valdi var fulloröinn, fór hann í
stríöiö mikla. Frá Frakklandi skrifaöi hann kensulkonunni, aö
þegar ihann tók þátt í fyrsta áhlaupinu, hafi hann haft yfir þessi orö
meö sjá'lfum sér: “Jafnvel iþótt eg fari um dimman . dal, óttast eg
ekkert ilt, því aö þú ert meö mér.’’ Hann kom heim aftur úr striö-
inu heill heilsu.
Frá Dorkas-félatfi Gimti safnaSar.
Mig langar meö fáum orðum að minnast á samkomu, sem Dork-
as-félagiö á Gimli hélt þann 15. febrúar síðastliðinn. Þessi sam-
koma vakti athygli eldra fólksins, sérilagi vegna þess, að - Dorkas-
stúlkurnar höfðu aö öllu leyti umsjón hennar með höndum. Var
fjörugt og vel unnið aö undirbúningi hennar. Samkoman fór fram
í kirkjunni, — höfðu stúlkur skift sér i nefndir til að annast undir-
búning hennar, svo sem: tilbúning og sölu á aðgöngumiðum.
Skemtiskrá þeirra var all-breytileg: upplestur, söngur, o.s.frv. En
aðal-atriðið var kappræða. Kom fram kapp og fjör allmikið viö
undirbúning hennar; var gaman að sjá, hve .fúsir hinir ungui^eru til
starfs, þegar þeim er fengið verkefni, sem er við þeirra hæfi.
Kappræðan var líka spennandi mjög; umtalsefnið var þetta:
“Ákveðið, að menn hafi gert meira en konur til að bæta ásigkomu-
lag heimsins.” Stúlkurnar tóku að sér játandi hliðina, en tveir
drengir héldu vörn uppi fyrir afreksverkum konunnar. Fór kapp-
ræðan vel fram, og var góð skemtun. — Arður samkomunnar, sem
var um $40.00, fór í félagssjóð. — Nú þegar er farið að sníöa og
sauma fyrir næstu útsölu, sem haldin verður einlhvern tíma fyrri
part inæsta vetrar. Enn er mætt aöra hvora viku, en fundirnir ein-
göngu starfsfundir, sem enda með veitingum, en engin tilraun er
gerð til þess að viðhafa neina skemtiskrá. Oftast næn ieru fundirnir
haldnir á heimili prestshjónanna, og undir umsjón Mrs. Ólafsson.
Hugsjón félagsins er að hlynna að hag safnaöarins; hygg eg,
að þessi aðferð sé heppileg til þess að gefa stúlkunum hugmynd í
þá átt. S. ól.
Hverju svara ungmennafélögin?
Þess hefir verið farið á leit við ungmennafélög safnaðahna, að
þau gangist fyrir því að útvega Sameiningimrbi nýja kaupendur.
Verður vonandi unt -að skýra frá undirtektum félagánna í næsta
blaði og því, hver árangur ihafi orðið. Láti nú unga fólkið til sín
taka.