Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1924, Page 22

Sameiningin - 01.04.1924, Page 22
116 eySa átökum sínum til þess aS gera rneiri óskunda gamla árinu, en hugsuSu nýja árinu þegjandi þörfina. Og mennirnir voru ekki ólíkir veSrinu. Þeim fanst ekki ger- aíndi meira í kvöld. Úti við enginn á ferli; inni viö ekkert handtak. Andspænis litla húsinu, þar sem.Jódís var aö deyja, var hússtæði. Þar var byrjaö að reka niöur staura til undirstööu. Um morgun- im; höföu nokkrir karlar komiö, dregiö upp rekhnyöju-bákniö meö sönglandi ópi og ó'hljóöum að vanda, og látið þaö síöan skellast niöur aftur. En þeir léku það ekki lengi; þeir gáfust upp von bráðar, og héldu heint. Svo var og um alt annað. Konur nokkrar höföu skotist fram hjá með körfur í hendi, til aö kaupslaga fyrir hátíðina. Þeirri um- ferö linti eftir lítinn tima. — Börn höföu verið á götunni aö leikj- um, en það var kallaö á þau inn, til aö fara í sparifötin,/1 ,og úr því urðu þau aö hýrast inni. — Hestar, sem dregið höfðu flutnings- vagna, voru fluttir í hús utanborgar, til að hvílast þar þrjú dægur. — Alt af varð hljóðara og hljóðara eftir þvi, sem á leið daginn. Og það var blessaður léttir hvert skifti, sem eitthvert óhljóðiö þagnaði. “Þaö er dýrmætt, aö hún fær að deyja svona undir hátiöina,” sagði mamma hennar. “Bráðum heyrist ekkert úti, sem raskað getur ró hennar.” Jódís haföi yeriö rænulaus frá morgni. Hún heyröi ekkert, sem talaö var L' kring um hana. Þó var auðséð, að hún lá ekki í dái. Svipbrigði höfðu sézt á henni, hvaö eftir annað. Stundum hafði svipurinn lýst undrun, stundum hræðslu, stundum grátbeiðni, stundum sárurn kvölum. Nú, að síðustu, nrátti sjá, að henni svall móöur, og gerði það yfirbragð ihennar meira og fegurra en áöur. Breytingin var skýr og vakti athygli. Maria við fótagaflinn laut aö Önnu, sem á lága stólnum sat, og hvíslaði: “Sko, hvað Jódís “systir” er orðin falleg. Hún er rétt eins og drotning.” Anna stóö upp til þess að sjáj betur. Hún hafði víst aldrei séð Jódísi nema með auðmýktar-brosinu, sem alt af lék henni á vörum upp á siðkastiö, hve þreytt sem hún var og þjáö. Hún var forviða á þessari svipbreytingu, svo að hún settist ekki aftur, heldur stóð kyr í sömui sporum. Jódís litla hreyfði sig. Henni var órótt. Hún spyrnti sér hærra upp á koddann, svo að hún sat til hálfs uppi. Óumræðilegum tignarsvip brá á andlitið. Varirnar bærðust ekki, en þó var svo aö sjá, sem þær vildu tala ógnar orð og ávítunar. Móöir hennar sá hinar konurnar standa forviöa, og sagði: “Hún hefir verið svona utan við sig hina dagana líka. Var hún ekki vön að fara i vitjunarferðir sínar einmitt um þetta leyti dagsins ?” Vasaúr Jódísar, lítið og slitið, lá á borðinu við rúmibríkina og gekk. María leit á það og sagöi: “Jú, í þetta mund var hún vön að fara út að vitja um aumingjana.” Hún þagnaði snöggvast og

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.