Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1920, Side 4

Sameiningin - 01.03.1920, Side 4
68 un og vanatrú og fáránlegar villukenningar liertaka æ fleiri og fleiri og hi*æðilegur glundroði ríkir í öllum trúmálum. Um eiginlegt lilutleysi getur ekki verið að tala í þess- ari styrjöld; sá sem vill vera lilutlaus, verður áreiðan- lega hertekinn af liinu vonda valdi áður en hann grunar, já, svo að segja fyrirhafnarlaust. En hví þá ekki eins af hinu góða? Er þá Guðsríki ekki eins sterkt og ríki hins vonda? 1 fljótu bragði sýnist svo stundum, sem hið i'lla só áhrifameira en hið góða. En það er samt ekki svo í raun og veru. En styrkur Guðsríkis er í því fólg- inn, að það tekur engan nauðugan, vill enga þræla, held- ur frjálsa menn sem sjálfboða. Þess vegna kostar það áreynslu og vilja-ákvörðun að komast inn í Guðsríki. Þar á móti þarf enga ákvörðun að taka til þess að komast mn í ríki hins vonda; það er nægilegt að gjöra ekkert, vilja ekkert og standa hlutlaus. Án þess svo að segja að vita af því, renna menn fyrirhafnarlaust þangað nauð- ugir, viljugir. Til þess að komast inn í Guðsríki þarf að velja það með frjálsu vali; til þess að standa í þjónustu hins vonda þarf ekkert val og enga fyrirhöfn. 1 þessu á það við, sem .Tesús segir: “Sá sem ekki er með mér, er á móti mér; sá sem ekki samansafnar með mér, sá sundurdreifir. Það stendur margur svo, að hann er sér þess ekki meðvitandi, að hann sé á móti Jesú. Hann getur haft mikla virðingu fyrir honum og er langt frá því að vera óvinveittur í liuga Kristi eða málefni liaas, en hann lætur þar við sitja; hann er of hugsunarlaus, of óafgjörandi, of dáð- laus til þess að velja; hann lifir ef til vill sómasmlegu lífi eins og gjörist og gengur, og heldur svo að alt sé í góðu lagi. En Jesús segir við slíkan mann: “Ef þú velur ekki að vera, með mér, iþá ertu á móti mér!” Og þessum sama manni dettur alls ekki í hug að draga aðra frá Kristi, bara ef þeir láta hann sjálfan í friði. En Jesús segir við liann: “Þú sundurdreifir!” Þú ert nefnilega á hinni hliðinni, þótt ]ni liafiú ekki gjört þér það ljóst. Það er eftirtektavert, iþað sem Jesús segir í 25. kap. Matteusar guðspjalls um þá sem fordæmast. Þeir glat-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.