Sameiningin - 01.03.1920, Qupperneq 25
89
Eftir þrjátíu ára forystu sem leiðtogi Sáluhjálparhers-
ine á Indlandi, hefir Booth-Tueker nú látið af því starfi, 66
ára gamall. Sem árangur af starfi hans, eru meðal annars
668 stofnanir, sem annast um 27,000 af ölnbogabörnum
mannfélagsins. Er það fagur minnisvarði yfir líf hans og
starf.
Á meðal nýrra þingmanna í neðri deild sambandsþings-
ins í Washington, er maður frá Georgia, sem nefndur er W.
Upshaw. Hann er Baptista umferðaprédikari (evangelist).
Átján ára gamall varð hann fyrir slysi af falli, og var rúm-
fastur í sjö ár. En hann varði þeim árum til náms og
þroska. Fór hann á þeim árum að semja ljóð og ritgerðir,
sem seldust svo vel, að hann gat eignast ökustól og sótt nám
á Mercer háskólann. Svo varð hann ritstjóri kristilegs
tímarits, The Golden Age. Tekjum sínum í sjö ár varði
hann til að hjálpa áfram efnalausu námsfólki. Mikinn þátt
átti hann í því, að koma á vínbanni í Georgia, og hafa sið-
ferðis og kristileg málefni ávalt átt í honum öflguan tals-
mann. — Hann gengur nú við hækju og staf, en er þó snar
í öllum hreyfingum, er ræðumaður með afbrigðum, og er
ljóst dæmi þess, hvað maður getur gert úr lífi sínu, þrátt
fyrir hina mestu örðugleika.
j FYRIR UNGA FÓLKIÐ. |
pessa deild annast séra F. Hallsi'ínisson.
I
KÆRLEIKSRÍKT LtF.
Eftir séra Harald Sigmar.
Alt af og alstaðar var lif Jesú Krists kærleiksríkt. “Hann
var foreldrum sínum hlýðinn, og óx og þrotskaðist að vizku og
náð hjá Guði og mönnum.” Hann hjálpaði foreldrum sínum
dyggilega við daglegu störfin, svo hægt væri fyrir þau að hafa
ofan af fyrir fjölskyldunni, sem lifði við fátækt. Kunnugt er
oss líka um það, hversu kærleikríkur hann var í garð nágrann-
anna, þeirra, sem hann umgekst, þeirra, sem hann náði til, í
jarðneskum skilningi. Og þá er oss ekki síður kunnugt um
það, hversu mikill var kærleiki hans til mannanna barna yfir-
leitt, þar sem hann tók á sig mannlegt hold, og varð maður