Sameiningin - 01.03.1920, Qupperneq 28
92
Og hvernig á sao aö lifa kærleiksríku lífi fyrir heiminn í
heild sinni?
pað gjörum vér fyrst og fremst með því að leggja lið, á
þann hátt sem oss er unt, hverju alheims velferðarmáli. Má
þar nefna til dæmis: heiðingjatruboðið, alheims-frið, bandalag
þjóðanna til þess að efla réttlæti og kærleika, jöfnuð, alheims-
bindindi og fleira. Alt þetta miðar í þá átt, að færa mann-
heiminum sælu og flytja guðsríki inn í mannlífið á jörðinni.
Sá, sem ií þessum heimi býr með því augamiði að þjóna og
gjöra heiminn að einlhverju 'leyti betri, hlýtur að lifa i heim-
inum kærleiksríku lífi.
0g isvo það, sem mest er um vert, að lifa í trúarsamfélagi
við Drottin, mleð lifandi trú í hjarta á frelsarann, trú, sem ait
af opiberast í framkomu og verki. Sá, sem það gjörir, hlýtur
að lifa kærleiksríku Mfi.
Ef vér þannig reynum að lifa kærleiksríku lífi, bæði heima
fyrir og út á við, þá erum vér að feta í fótspor frelsara vors,
og um leið að hjálpa til að útbreiða hans náðarríki, og -stuðla
að því að sú tíð komi, að:
“Frá heimskauti einu til annars það nær,
pótt önnur tré falli, þá sífelt það grær.
Pess greinar ná víðar og víðar um heim,
Unz veröildin ölll fær sitt skjól undir þeim.”
Bandalögin.
Bandalögunum hefir nokkuð fækkað á síðastliðnum
árum, og er það illa farið. pví það er mikili styrkur hverj-
um söfnuði, að unga fólkið hafi með höndum reglubundið
kristilegt starf; og um leið er það mikil uppbygging og góð
æfing fyrir unga fólkið sjálft. En gleðiefni er það, að sum
Bandalögin eru vel vakandi og starfandi af trúmensku.
Hjá Bandalagi Selkirk safnaðar hefir meðlimafjöldi
allmjög aukist. Frá því er nýkomin skýrsla um starf þess
á síðastliðnum tveim árum, og eru hér nokkur atriði úr
þeirri skýrslu.
Bandalagið hefir skift sér í tvo flokka, og hefir verið
samkepni þeirra á miili um þetta þrent: að sækja sem bezt
fundi, sjá um fundarefni. til uppbyggingar og skemtunar,
og hafa saman fé til félagsþarfa, og hefir það fyrirkomulag
géfist vel.
Selkirk söfnuður á samkomuhús gott á kirkjulóðinni,
og er það notað fyrir sunnudagsskólann og til fundarhalda.
pegar söfnuðurinn í hitt eð fyrra eignaðist það hús, lagði