Sameiningin - 01.03.1920, Síða 32
96
það, hvernig Drottimn hjálpaði honum til sigurs. 6. Hvar
voru flokkarnir með herbúðir sínar? í dalnum, sem liggur
austur af Esdraelon sléttunni (sem líka heitir Jesreel slétta),
og niður að Jórdan. Herbúðir Gideons fyrir sunnan dalinn við
fjallið Gilboa; en herbúðir hinna að norðanverðu við Mórehæð
eða Litla Hermon, og á siléttunni fyrir vestan (6, 33 og 7, 1);
þeir, óvinimir, svo miklu fleiri. 7. Hvað sagði Drtotinn nú
við Gideon? Liðið er of margt, sem með þér er (2). 8. Hví
sagði Drottinn það, þar sem lið Gideons var miklu færra?
Hann vildi láta þjóðina sjá og finna það, að sigurinn var ekki
fjöldanum að þakka, heldur Guði (2). 9. Hvað gerði Gideon?
Hann sagði öllum, sem hræddir væru, að hverfa heim aftur, og
22 þúsundir sneru aftur. 10 þúsundir urðu eftir (3). Gilead-
fjaíl, sem nefnt er hér, er annað hvort sama og Gilboa, eða aust-
urhluti þess hefir heitið svo En Drottinn sagði, að enn væri
liðið of margt. Og segir fyrir, hvernig hann skuli velja úr þá,
sem bezt voru vakandi og bezt vald höfðu yfir sjálfum sér. pað
sýndi sig á því, hvernig þeir drukku (4-6). Sbr. ensku þýð-
inguna á 6. v. bæði eldri og nýrri, og eins eldri iþýð. íslenzku.
Samkvæmt þeim ætti 5. v. að enda á “krjúpa á kné”; og 6. v. að
vera: “peir, sem löptu vatnið með lófa sínum, sem þeir færðu
upp að munnni sér,” o.s.frv. 10. Hver var skipun Guðs nú? Að
láta atla fara heim 'til sín nema þá 300, er stóðust prófið. Hann
gefur Gideon fyrinheit um að sigra með þeim (7). Svo segir
frá undirbúningnum og för Gideons um nóttna, með Pura,
sveini sínum, ofan til herbúða óvinanna. þar heyrir hann
draum, sem maður var að segja félaga sínum. pað styrkir hann
í trú hans á sigur. Hann fellur fram fyrir Drotni og þakkar
honum. Snýr svo til. manna sinna. (8-15). 11. Hvað gerir
Gideon svo? Hann raðar mönnum sínum niður og segir þeim
hvernig þeir þá um nóttina skuli ráðast á óvinina. En fullviss-
ar þá fyrst um það, að Guð gefi þeim sigur, Svo er sagt
frá áhlaupinu og flótta óvinanna (16-21). — 12. Hvað eigum
við að læra af lexíunni? a. Að vansæla vor er að gleyrna Guði,
en blessun að halda okkur að honum. b. Að við eigum að trúa
Guði, þegar hann kallar okkur í orði sínu, og hlýða. c. Vissan
um, að hann er með okkur, á að gera okkur hugrökk. Og honum
eigum við að gefa dýrðina.
---------o----------
Gjafir til kirkjubyggingarinnar í Selkirk.
Arthur H. Johnson, Mozart, Sas'k., $10. Jóhann Briem,
Biverton, Man., $5. Séra O. S. Thorláksson og frú hans, Na-
goya, 12 pund sterlings (War Savings.)
Hjartans þakkir fyrir hönd Selkink-safnaðar.
N. Stgr. Thorlaksson.