Sameiningin - 01.05.1920, Page 4
130
heilögum anda var gefinn, til þess hún gæti unnið verk sitt
í nafni Krists gegn um allar ókomnar aldir. Skyndileiki
viðburðanna ber vott um yfirnáttúrlegt eðli þeirra gjafa,
sem gefnar voru. Gnýrinn af himni, .“eins og aðdynj-
anda sterkviðris’’, var náttúrlegt tákn hins almáttuga
anda. Tungurnar, sem kvísluðust og settu sig á einn og
sérhvern postulanna, táknuðu gjöf kraftarins til að hoða
gleðiboðskapinn allri skepnu. Eldurinn táknaði heilag-
an áhuga trúar og kærleika, sem einkenna átti boðun
fagnaðarerindisins. Þar sem margar þjóðir heyrðu þar
hver um sig sitt móðurmál, táknar það, að kristindómur-
inn átti að ná til allra þjóða jarðarinnar og hver tunga
skyldi um síðir viðurkenna, að Jesús Kristur er Drottinn
Guði föður til dýrðar.
Postulasagan segir einnig frá því, hverjar dásemdir
urðu í söfnuðunum fyrir kraft heilags anda og náðar-
gáfur þær, sem lærisveinarnir voru gæddir. Andi Guðs
logaði í hjörtum mannanna og undur og kraftaverk gerð-
ust í söfnuðunum. Fyrir þann dásámlega kraft út-
breiddist kristnin nærri eins og eldur í sinu, og kirkja
Jesú Krists stóð í blóma, þrátt fyrir margskonar þreng-
ingar og ofsóknir, sem kristnir menn urðu fyrir. En
þegar fram liðu stundir og uirkjan komst á vald verald-
legra þjóðhöfðingja og sameinaðist veraldlegu ríki, fór
kraftur andans dvínandi, gáfurnar eyddust, hvíta-
sunnan lækkaði á lofti.
Og þó hafa gjafir heilags anda aldrei verið teknar
frá kirkjunni, þrátt fyrir syndir hennar gegn andanum,
veraldarhyggju hennar og vantrú. Ósýnilegar náðar-
gjafir heilags anda í orði Guðs og sakramentum hafa ver-
ið kristnum mönnum fæða lífsins allar aldir. Ytri tákn
og stórmerki liafa einnig átt sér stað víðsvegar og á þeim
borið þá ávalt, er öldur trúarinnar hafa risið hátt. Þess
eru mörg dýrleg dæmi í sögu kirkjunnar og einstakra
guðsmanna. Og einmitt á vorum dögum er því sérstak-
lega haldið fram innan kirkjunnar víða, að kraftaverk
frum-kristninnar eigi sér enn stað, eða geti átt sér stað.
Á allra síðustu árum hefir komið til sögunnar nýr kirkju-
flokkur, Tlie Pentacostal Mission, sem alla áherzlu leggur
á það, að ná gáfum þeim hinum yfirnáttúrlegu, sem auð-