Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.05.1920, Qupperneq 17

Sameiningin - 01.05.1920, Qupperneq 17
143 ÞAÐ, SEM BRŒÐUR VORIR GfJÖRA. Eftir séra Rúnólf Marteinsson. Saga lúterskrar kirkju er á stórum parti saga ment- unar. Hún fæddist í háskóla, háskólanum í Wittnberg, þar sem Lúter var kennari. í öllu starfi sínu liefir hún lagt mikla áherzlu á fræðslu. Hún hefir metið þekkingu og hófsemi, en forðast æsingar. Hfin liefir ebki legið á liði sínu að eignast sem beztar mentastofnanir. 1 þessari heimsálfu mun lúterska kirkjan nú eiga 45 a'ðri skóla (colleges), 52 miðskóla, 7 kvennaskóla og 24 prestaskóla. A,f þessu verður að vísu ekki séð, hve marg- ar sérstakar mentastofnanir hún á, því í mörguni tilfell- um eru miðskóli og æðri skóli saman í einni stofnun; sömuleiðis er í sumum tilfellum prestaskólinn með æðri skólanum ein stofnun. En mörg eru þessi mentaból, og undantekningarlítið telja leiðtogar kirkjunnar þau óhjá- kvæmileg fyrir líf hennar og starf. A þessu vori hefir verið gjörð mjög ítarleg og víðtæk tilraun til að afla sumum þessum stofnunum fjár. Það eru skólarnir í Gettysburg, Pa.; Roanoke, Va.; Allentowm, Pa.; Greenville, Pa. og Selinsgrove, Pa. Allir þessir skólar eru að safna stofnfé, sem, með vöxtum sínum, geti veitt þeim nauðsynlegar tekjur. Hinn fyrstnefndi er að safna $1,000,000, og hver hinna hálfri miljón. Vonandi tekst þeim að ná þessum upphæðum, enda er slíkt stofnfé óhjákvæmilegt, ef skólarnir eiga að hafa trygga framtíð. Svo telst mönnum til, að liver meðlimur kirkjunnar á þessu svæði muni að jafnaði þurfa að leg’gja til liðuga $6, og er það ekki eins mikið og sumir liafa annars staðar gjört. 1 lútersku kirkjunni í Suðurríkjunum hafa þeir stundum lagt til $25 á mann að jafnaði fyrir mentastofn- anir sínar. Ríkur maður lúterskur var ekki alls fyrir löngu beð- inn að gefa í mentasjóðinn $1,000. Hann hafði skömmu áður veitt sjálfum sér margvíslegar skemtanir og þæg- indi, en þetta sagðist hann ekki gjöra. Honum var bent á verk kirkjunnar, sem hann vanrækti og hvaða þýðingu fyrir mannfélagið ldrkjuskólarnir hefðu. Hann sá skvldu sína í nýju ljósi og’ gaf $10,000. Það tókst að vekja hann.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.