Sameiningin - 01.05.1920, Blaðsíða 18
144
Hópur nokkur frá lúterskum skóla, St. Olaf College
í Northfield, Minn., hefir ferðast um austurhluta Banda-
ríkjanna til að svngja, aðallega andlega söngva. Sá flokk-
ur söng meðal annars í Carnegie Hall, New York. Flokk-
urinn liefir orðið sér til mikils sóma fyrir þá list, sem
hann hefir sýnt í söngnum.
Þess var getið í síðasta blaði Sameiningarinnar, að
Harald Thorson, sem um eitt skeið var kunnur fjölda fs-
lendinga í N. Dak., væri látinn í St. Paul. Sá maður valdi
skólastæðið fyrir St. Olaf College og var hinn mesti höfð-
ingi í gjöfum sínum til skólans. í erfðaskránni, sem liann
lét eftir sig, gaf liann skólanum eignir, sem í minsta lagi
eru taldar að vera meir en $1,000,000 virði. í alt telst
mönnum til, að hann hafi gefið skólanum einar tvær
miljónir dollara.
Skóli þessi var heppinn að eiga annan eins vin, og
sigurför söngflokksins þaðan virðist benda til, að gjaf-
irnar hafi ekki lent á skakkan stað.
Hér í Canada eru nú 6 lúterskar mentastofnanir.
Flestar eru þær ungar, en allar eiga þær fastan verustað
og allgott lieimili, að undantekinni einni: Jóns Bjarna-
sonar skóla.
Síðustu fólkstalsskýrslur í kirkjufélaginu sýna 4,975
fermda meðlimi. Ef hver legði til $6, yrði upphæðin
$29,850, og fyrir þá upphæð gæti skólinn eignast heimili.
Það sem bræður vorir geta gjört, getum vér.
-o
17. til 22. Júní 1920.
Áœtluð dagskrá.
Fimtudagur 17. Júní.
1. Þingið sett í kirkju Ágústínusar safnaðar í Kan-
dahar, kl. 3 e. h. Almenn guðsþjónusta með altaris-
göngu. Varaforseti prédikar.
2. Þingfundur á sama stað kl. 8 e. h.—Skýrslur em-
bættismanna og starfsnefnda.