Sameiningin - 01.05.1920, Qupperneq 21
147
Blaðið Literary Digest sendi út fjölda af fyrirsuprnum til
verkamanna víðsvegar til að grenslast eftir því, hvernig þeir
liti á áhrif vínbannsins í Bandaríkjunum. Svörin, sem send
voru, voru 526. Af þeim voru 345 ákveðin í þá átt, að vín-
bannið væri til blessunar; 143 alveg á móti vínlbanninu; 31
óákveðin, og sjö sögðu vínbannið ekki fullreynt. “pað er eng-
inn efi á því,” segir einn, “að víntoann er til blessunar fyrir
verkamanninn og skyldulið hans.” petta er sannari vitnisburð-
ur um það, hvernig vínbannið í Bandaríkjunum er að reynast,
en margt af því sem tínt er til í sumum blöðum á íslandi í síð-
ustu tíð, til að telja mönnum þar trú um, að vínbannið í Banda-
ríkjunum sé alveg að mishepnast.
Frá þingi Ensku kirkjunnar í Suður Afríku berst einnig
rödd, er mælir ákveðið með vínbanni, og hvetur alla kirkjumenn
til þess að styðja að því, að það komist þar á.
pað er haft eftir William A. (“Billy”) Sunday, frá dvöl
hans nýlega í Rock Island í Illinois ríkinu, að lúterska kirkjan
sé af öllum þeim kirkjum, sem hann þekki, líkust postula kirkj-
unni. pessi vitnisburður er þeim mun eftirtektarverðari, þeg-
ar þess er minst, að lúterska kirkjan hefir yfirleitt sneitt sig
hjá því, að vera með í starfi Sundays.
Dr. Francis N. Peloubet, hinn alkunni höfundur skýring-
snna á alþjóða sunnudagsskóla lexíunum, er nefnast “Pelou-
bet’s Notes”, er nýlátinn í Auburndale í Massachusetts ríki, 89
ára gamall. í þvínær hálfa öld hefir hann verið talinn með
þeim allra fremstu í öllu >því, er að sunnudagsskólamálum
lýtur.
Svo telst til, að nú séu í heiminum um 15V2 mdljón Gyðinga.
í Bandaríkjunum einum eru meira en þrjár miljónir þeirra.
Der Lutheraner, málgagn Missouri sýnódunnar, er orðinn 75
ára gamall. Kom blaðið fyrst út í September 1844, og var þá
eign dr. Walthers, en þegar Missouri sýnódan var stofnuð 1847,
varð blaðið eign þess kirkjufélags, en Walther hélt áfram rit-
stjórn þangað til 1865. Síðan hafa kennararnir við presta-
skólann í St. Louis annast um ritstjórn á blaðinu. Enginn efi
er á því, að hluttaka almennings í Missouri sýnódunni í öllum
starfsmálum félagsins hefir verið margföld fyrir það, að mál-