Sameiningin - 01.05.1920, Blaðsíða 33
159
sýndi Drottinn með sigri Gídeons og öðrum sigurvinningum,
sem um er getið? . Hvað voru mannkostir Rutar og hvernig
launaði Guð henni? 10. Hvar var Samúel alinn upp? ll.Hví
lét Drottinn þungt böl koma yfir Elí og ætt hans? 12. Hvernig
veitti Guð þjóðinni sigur, þegar Samúel var orðinn dómari?
13. Hver var fyrsti konungur ísraels, hvers konar maður í byrj-
un, og hvernig reyndist hann síðar? 14. Hvaða frægðarverk
vann Jónatan? 15. Hver var valinn til konungs eftir Sál,
hverra manna var hann og hers konar maður?? 16. Hvað er
aðal efnið í sálminum um góða hirðinn?
Þriðji ársfjórðungur.
I. LEXÍA — 4. JÚLÍ
Davíð í herbúðum og við hirð Sáls—1. Sam. 17, 40—49; 18, 5-9.
Minnistexti: Davíð var giftudrjúgur í öllu, sem hann tók
sér fyrir hendur, af því að Drottinn var með honum—1. Sam.
18, 14.
1. Var Davíð tekinn til konungs undir eins eftir smuming-
una? Nei; Sál sat enn að völdum í nokkur ár. 2. Hvað starf-
aði Davíð framan af? Hann var af og til við hirð Sáls, og lék
á hörpu fyrir konunginn, sem þjáðist af þunglyndi. pess á
milli gætti hann sauða föður síns. 3. Hver var Golíat? Hann
var hermaður í liði Filista, tröllaukinn og ramur að afli. 4.
Hvernig stóð á Viðureign þeirra Davíðs? Sál hafði safnað liði
á móti Filistum, sem voru komnir með her inn í landið. En
þegar hvorirtveggju voru búnir til bardaga, gekk Golíat út fyrir
herbúðir Filista og skoraði á ísrael að senda einhvern mann til
einvígis við sig. Átti svo sú þjóðin, sem misti sinn mann á
hólminum, að lúta hinni. Enginn þorði að berjast við Golíat.
Loksins kom Davíð í herbúðirnar með nesti handa bræðrum sín-
um. Hann var enn of ungur til herskyldu. pegar hann heyrði
eggjunarorð Golíats, bauðst hann til að berjast við risann. 5.
Hvað hafði Davíð að vopni? Ekkert nema staf og slöngu og
r.okkra steina. 6. Hvernig fór einvígið? Davíð hæfði Golíat