Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1913, Page 6

Sameiningin - 01.04.1913, Page 6
38 myndum þeirra um krossinn og sambandi þeirra við hann? Hvað var það, sem breytti lærisveinunurn, huglausum, án vonar og fast að því komnum að falla frá guði, og gjörði þá að hetjum og píslarvottum? Það var atburðr sá hinn einstaklegi, sem páskahátíð kristinna manna heldr á lofti — upprisa Jesú Krists. Þá er sú sögulega staðreynd bœttist við sem ofanálag kvala-bikarsins, breyttist allt svo, að úr því varð glóanda ljósliaf. Það var upprisan, sem því olli, að dauði Krists, sem fyrst hafði sundrað lærisveinum lians, tengdi þó við hann fastar en nokkurn tíma áðr. Og hiklaust má segja, að nema því aðeins að þessir fyrstu lærisveinar liafi verið óðir menn, er ekki unnt að gjöra sér grein fyrir brevtingunni, sem á þeim varð á einum f jörutíu og átta klukkustundum, með neinu öðru en hinu yfirnáttúrlega undri—upprisu drottins Jesú frá dauðum. Fyrir þann atburð varð skýið dimma að lýsanda eldstólpa. Út-af þeim dásamlega atburði snerist hryggðin í fögnuð. Sá hinn sami dauði, sem áðr—á und- an upprisunni—varpaði dimmum hjúp yfir liimininn og liuldi jörðina líkklæði, liann varð síðar að fagnaðar-upp- sprettu — því með upprisunni var skýinu feykt á burtu og sólin blessuð skein á heiðum liimni. Dáinn Kristr varð söfnuði lians orsök örvæntingar; en dáinn Kristr og frá dauðum up])risinn gjörir söfnuð lians sigri lirósanda, því hann er Kristr sá, sem dó og lifir um aldir alda. En nú skal á það minnt, um leið og efni þetta verðr víðtœkara í liuga vorum, livernig fagnaðar-mál það, er beinlínis og sögulega á við upprisu drottins vors, má rétti- lega fœra svo út, að það nái til sorga og mótlætis-reynslu allra guðelskandi manna og lieimfœrist á því svæði út í yztu æsar. Sorgin er aðeins byrjunar-stig, en þá tekr við annað liærra stig—fullkomnunar-stigið, þarsem sorg- in hefir ummyndazt og orðið að fögnuði. Sérlivert þrumuský hefir í för með sér regnboga, sem felst í djúpi jtess og birtist við það, er sólin snertir það með geislum sínum. Fögnuðr vor á fegrsta og fullkomnasta stigi er ávallt ummynduð sorg. Ilryggð iðrandi lijartna verðr að fögnuði barna, sem fengið liafa fyrirgefning; liryggð hjartna, sem sárt liafa fundið til tómleiks út-af ástvina-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.