Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1913, Page 18

Sameiningin - 01.04.1913, Page 18
50 arlaust, að ný-guðfrœðingar liafni hinni gömlu kenning um innblástr ritningarinnar, og við það er kannazt, að biblían sé að mörgu leyti óáreiðanleg; skekkjur sé margar bæði í nýja testamentinu og gamla testamentinu. Upphaf byltinga þeirra, sem orðið bafa á trúmálasvæðinu að því er kemr til kasta íslenzku guðfrœðinganna, var hin svo kallaða „hærri kritík'(, eða „vísindalegar biblíurannsókn- ir“. Þá bjuggust menn ekki við, að upp-af þeim rann- sóknum sprytti ný guðfrœði, og því síðr skildu menn það þá, að „kritík“ þessi var í raun og veru ekki nema einn angi af heilu kerfi nýrra kenninga, einn þáttr nýrrar stefnu, sem breiddi sig rit-yfir allar kenningar kristin- dómsins. Niðrstaða liinnar nýju stefnu viðvíkjandi biblíunni er löngu orðin alkunn, og nýja guðfrœðin hefir þegar svo greinilega gengið frá kenning sinni í því efni, að hún getr nú gefið sig við hinum öðrum viðfangs-efnum sínum; enda urðu þau efni bæði mörg og ervið, sem liún hlaut að taka til meðferðar og „leiðréttingar“, er hún hafði gjört ritningunni þau skil, sem hún gjörði. Við þennan þátt nýju guðfrœðinnar liafa þeir hvað mest lialdið sig ný-guðfrœðingarnir íslenzku, og þar liafa þeir fylgzt bezt með. Sagt var oss það um árið, að ekki myndi „rannsóknirnar“ raska nýja testamentinu, og ekkert væri í húfi, þó gamla testamentið reyndist gallagripr. Nú er þó komið að því, sem flestir sáu fyrir, að nýja testamentið hefir fengið svipaða útreið og liið gamla. Vel og vand- lega segir próf. J. H. frá villiun nýja testamentisins. Setjum nú svo, að allt það sé satt og rétt og vér yrðum að viðrkenna með ný-guðfrœðingunum, að margt og mikið sé í ritningunni, sem rangt sé og villandi, og því geti biblían engan veginn verið sú heimild, sem hún var meðan menn trúðu því statt og stöðugt, að liún væri lieilög og óskeikul bók; hvernig getum vér samt aðhyllzt þá kátbroslegu rök- leiðslu prófessorsins, að við þetta hafi ritningin „grœtt“ og meira sé hana að marka nú en áðr Jú, hann segir það sé sannað nú með fullri vissu, að Páll postuli hafi samið Rómverjabréfið, Korintubréfin og Galatabréfið. Hvað sem hinum bréfunum líðr, þá eru þessi bréf sönn og ekta. Er það þá „gróði“ fyrir biblíuna, að sum ritin reynast sönn, en sum ekki! Höf. segir, að guðspjöllin hafi enda

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.