Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1913, Side 19

Sameiningin - 01.04.1913, Side 19
5i .grœtt stór-mikið á rannsóknunum. Að sönnu verði drætt- irnir færri, sem blasa við oss, af mynd frelsarans nú, en drættirnir í liinni eldri mynd frelsarans, sem menn höfðu búið sér til eftir guðspjöllunum vísindalega órýndnm. Það gróði, að dráttunum í mynd frelsarans hefir fækkað! Eftir þessum reikningsreglum yrði maðr því ríkari sem maðr tapaði meiru. Hvar skyldi sá banki lenda, sem stjórnað væri eftir þessum reglum ? Setjum svo aftr, að þetta reynist satt, að biblían verði að játa sig að mörgu leyti skakka og óáreiðanlega; en teljum henni það ekki til gildis, að liún er víða skökk og óáreiðanleg. Játum það einsog menn, að vitanlega getr hún ekki verið oss allt það, sem hún áðr var, síðan svona komst upp um hana. En sættum oss þá líka við það að hafa einungis ófull- komið manna orð að bera fyrir oss, og' gjörum oss sem mest gagn af því, sem vér getum, en verum ekki með slíkt barnahjal sem það, er nú var sagt frá. Eða livaða óyggj- andi vissa er fyrir því frá sjónarmiði nýju stefnunnar, að þetta, sem eftir er af ritningunni, reynist nú áreiðanlegt? Má ekki búast við, að enn geti komið fram sannanir fyrir því, að eitthvað af því, sem nú er talið sannsögulegt í biblí- unni, reynist ekki lialdbetra en sögur nýja testamentisins um fœðing og upprisu frelsarans og annað það, sem nýju rannsóknirnar hafa fellt um kol 1 ? Er það víst, að vit og' lærdómr guðfrœðinganna nýju sé það óskeikulli en ritn- ingin, að nokkuð sé til frambúðar á því byggjandi, sem þeir segja að áreiðanlegt sé? Þeir segja líka sinn hvað um það, liverju trúa megi af því, sem í ritningunni stendr, og- hverju verði að kasta burt sem óáreiðanlegu og vill- andi. Ekki er því með þessu neitað, að þeim geti þótt vænt um biblíuna, sem ekki hafa gömlu trúna um hana. Hún er þeim kostum búin, sú bók, að allir óspilltir menn láta sér þykja vænt um hana og menn verða hugfangnir af efni liennar, líka þeir, sem ekki eru kristnir. En ekki er liún þá að eðli sínu nein sú heimild, sem vitna má til um- rfram aðrar bœkr. (Meira.) B. B. J.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.