Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1914, Síða 7

Sameiningin - 01.03.1914, Síða 7
3 18 vetra gamlan, losar liann úr vist lijá járnsmið einum, og útvegar honum vist í Frúar-skóla í Kaupmannahöfn. Fær Hallgrímr þar ágætt fceri á því að halda skólanámi sínu áfram, og virðist hann hafa notað tœkifœri það eink- ar vel. Fjórum árum síðar, eða árið 1636, á hann aðeins ólokið skólagöngunni fyrirsettu í höfuðstað Danmerkr. En þá kemr það fyrir, sem til þess verðr að draga liann heim aftr til Islands. Dana-stjórn fær hann til þess að leiðbeina Islendingum nokkrum, sem sjóræningjar tvrk- neskir höfðu árið 1627 hernumið frá Islandi og selt í á- nauð í Alzír á norðrströnd Afríku. Hópr íslendinga þessarra var fyrst miklu stœrri, en hann hafði óðum týnt tölunni fyrir sakir grimmdar, er við þá var beitt. Fyrir milligöngu Dana-stjórnar varð leifunum keypt lausn árið 1636. Hallgrímr fær þá það hlutverk að leiðbeina þeim meðan þeim tefðist á leiðinni heim til Islands, einkum í kristinni trú, sem sumir liöfðu stórkostlega ruglazt í meðan þeir liöfðust við í ánauðinni hjá Múhameðs-trúar- mönnum; en nálega með öllu höfðu sumir glatað kristin- dómi sínum. 1 hópnmn, sem Hallgrími var falinn til kristilegrar sálgæzlu, var kona ein, Guðríðr Símonardóttir að nafni, vel gefin og álitleg. Hafði lienni verið rænt úr Vest- mannaeyjum, en þar var hún áðr manni gefin. Brátt fékk Hallgrímr sterka ást á konunni, og var hún honum þó sextán árum eldri. Astar-æfintýr þeirra varð að syndsamlegu slysi, því eiginmaðr Guðríðar var enn á lífi, og um fráfall lians fréttu þau ekki fyrr en á næsta ári eftir það, er þau voru komin til íslands og höfðu átt barn sarnan. Þau giftust reyndar þar svo fljótt sem þeim var unnt, og varð sambúð þeirra við það ekki lengr borgaralegum lögum ósamkvæm; en brotið, er þau höfðu gjört sig sek í að guðs lögum, varð þeim sennilega báð- um, honum að minnsta kosti, frábær sársauki. Blettr var fallinn á mannorð þeirra, og í augum Hallgríms hefir það naumast neitt hið minnsta dregið úr sektarþungan- um, þótt íslenzkt þjóðlíf á þeirri öld moraði af samskon- ar siðferðisbrotum og öðrum miklu stœrri. Búhokr höfðu þau lijón um þessar mundir í koti einu mjög au-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.