Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1914, Blaðsíða 24

Sameiningin - 01.03.1914, Blaðsíða 24
20 „Opnaöi sjóðinn sinn sonr guös,: Jesus minn, húðstrýktr, kvalinn, krýndr, á krossi til (lauSá píndr."—-X\’I i., 15. „BlóSropar duhdii j)ár,. : dýrasta gjald það var, keyptan akr því eigum,: óhræddir deyja megum.“—-XVII. 16, , „Bölvun mér vfir höfði hékk, hótuð í lögmáls bræði, en Jesús hana undir gekk, svo aftr eg hlcssun næði*'—XXI\\, 7. „Blóðskuld, og hölvun mína burt tók guðs sonar pína.“—XXV., 9. Út-af ummælum Krists um visna tréð og grœna tréð yrkir H. P. 32. sálminn. Mannkynið er visið tré, sem upp á að liöggva, en Jesús tekr á sig mannlegt hold, og gafst þá visinni eikinni vökvun, svo hún fékk endr- lifnað: „Saklaus því leið liann sorg og háð, syndugt mannkyn svo fengi náð; hið grœna tréö var hrakið og hrist, héraf það visna blómgaÖist.“—XXXIL, 13. Allr 33. sálmrinn er átakanleg lýsing á þeim marg- földu kvölum, sem Kristr leið í vorn stað meðan kross- festingin fór fram. öll atriði friðþægingar-kenningarinnar eru tekin fram í 8. versi 36. sálmsins: „Nakinn á krossi hékkstu hér, herra minn guð og mann! Fullnaðarborgun fengin er fyrir mig syndugan; þá fórn drottinn og sál mín sér, sú gleðst, en blíðkast hann.“ 43. sálmrinn, út-af sjötta orðinu á krossinum, er meistaraleg lýsing á kröfu lögmálsins, sem ekki gjörir sig ásátt með neitt annað en alfullkomið réttlæti, og því hvernig Jesús tók á sig kröfu lögmálsins 0g fram bar fullkomið réttlæti í mannsins stað.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.