Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1914, Qupperneq 26

Sameiningin - 01.03.1914, Qupperneq 26
22 því Jesús það föðursins orðiS er, sem allt með sínum krafti ber, flatr hlaut þó að falla þar, þá fyrir mig bar hann syndirnar."—II., 13, 14. Friðleysi sekrar sálar er átakanlega lýst: „Hvorki verðr til huggunar himinn, jörð, ljós né skepnurnar; án guðs náðar er allt um kring eymd, mœða, kvöl og fordœming."—III., 4. „Forskuldað hafði’ eg fyrir það flóttamaðr að heita til heljar reita,“—IX., 4. „í dauðans myrkrum eg dœmdr þræll dragast átti til pínu,“—IX., 8. Sálmrinn út-af iðrun Pétrs (xii.) er lireinasta snilld. Áklögun samvizkunnar er lianagalið fyrra, en lögmál guðs er liið annað hanagal. Hvorttveggja „slær og lemr“ syndugan mann, en fær ekki lijálpað lionum til yfirbótar. Augnatillit Jesú merkir lieilagan anda, sem einn getr verkað sanna iðrun í lijarta mannsins. Það er því ekki í sjálfsvald sett, lieldr á maðr það undir guðs náð, hvort maðr iðrazt geti. En gefi guð manni náð til að iðrast, þá er samt allt ónýtt, nema því aðeins, að maðrinn afleggi syndina — gangi út-úr syndasalnum. Sálmr þessi er skínandi perla einnig frá sjónarmiði listarinnar. Á þessa leið talar H. P. við sálu sína um syndina í 25. sálminum, 7. v.: „Með blóðskuld og bölvun stranga, beiskum reyrð kvalahnút, áttum við greitt að ganga frá guðs náð rekin út, hrakin í heljar sút, íklædd forsmánar flíkum, fráskúfuð drottni ríkum, nakin og niðrlút.“ Of langt yrði hér upp að telja það allt, er liljóðar um syndina og sársaukann, sem lienni ávallt fylgir. Iðr- unar-andvörp sálarinnar lieyrast svo að segja í liverri línu. 1 þessu efni skal þó sérstaklega bent á eftirfylgj- andi staði lesendum til íhugunar: 14. sálmr, 20. og 21.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.