Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1914, Qupperneq 34

Sameiningin - 01.03.1914, Qupperneq 34
3° hami kemr að fagnaðarefninii í 15. versinu, og sagt með honum: „Hjartans gleöi og huggun traust hér gefst þér, sál mín! efalaust. Það gjalcl fyrir mina misgjörS er meira vert en himinn og jörð; hans sorg, skjálfti og hjartans pín hjá guði er eilíf kvittan mín.“ Þarna syng eg um mína eigin sáluhjálp með skáldinu. Þýðing orðanna getr ekki farið framhjá mér, sökum þess þau eru lögð mér í munn og eg tala þau eða syng einsog frá eigin brjósti. Setjum nú svo, að orðin væri öll stýluð til annarra. Látum efnið vera það sama og hér er, um synd mannanna, um náð guðs og frelsið fyrir heilagan fórnardauða guðs sonar. Það er ekki lengr eg, sem finn til synda minna, né heldr eg, sem Jesús bar fyrir syndirnar, og þá heldr eklci eg, sem gleðst yfir því að synd mín er borguð og eg er í sátt við guð. Maðrinn við hliðina á mér getr ef til vill sungið þetta allt um mig, og vafalaust um einliverja aðra en sjálfan sig, og ef til vill um alla aðra en sig sjálfan. Eg aftr á móti syng það um hann og aðra, og mér kemr varla til hugar, að þetta eigi á nokkurn hátt við mig. Þannig getr það geng- ið koll af kolli. Söfnuðrinn í heild sinni getr sungið hinar sterkustu og spaklegustu áminningar til annarra, án þess að taka þær um leið að neinu minnsta leyti til sín. TJm þetta þarf ekki að fjölyrða. Munrinn er auð- sær. Undarlegt, hve mjög íslenzk sálmaskáld hafa tamið sér að stýla áminningar og framsetning trúar- sanninda til annarra, en sneitt þar á móti hjá að syngja um sama efni beint út-úr eiginni reynslu, persónulega og í eigin nafni. Margr gull-fallegr sálmrinn missir að miklu leyti gildi sitt og þýðing fyrir það, að þar stendr fornafn annarrar persónu sem fornafn fyrstu persónu ætti að Vera. Fyrir „þú“, „þig“, „þín“, „þinn<£ o.s.frv. hefði átt að vera „eg“, „mig“, „mín“, „minn“. Mjög skýrt og ákveðið kemr frelsisvissa séra Hall- gríms fram í versunum, sem eru 194. sálmrinn í sálma- bók vorri, tekin úr 27. Passíusálminum, þessum sérstak- lega:

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.