Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1914, Side 44

Sameiningin - 01.03.1914, Side 44
40 þegar skáldið rœddi uru þessi efni með sínum einkennilega krafti. Og það var sjálfsagt alvaran í sálmum þessum fremr öllu öðru, sem gjörði þá svo minnisstœða, að þeir hafa aldrei getað gleymzt oss til fulls, heldr hafa vers úr þeim, sem vér lærðum í œsku, hvað eftir annað þrengt sér inn-í huga vorn á andvaraleysis-tímum lífs vors, opnað fyrir oss œðra heim, sem var orðinn liulinn sjónum vorum, og fœrt oss aftr heilaga, barnslega lotning og trúargleði, sem vér ef til vill liugðum löngu glataða fyrir fullt og allt. Sannarlega höfum vér ástœðu til að þakka guði fyrir fræ- korn þau, sem forðum festu rœtr í lijörtum vorum á föstu- kvöldunum íslenzku, þegar vér sungurn Passíusálmana. * * * Vér ættum að þakka guði oftar en vér gjörum fyrir alla þá ágætismenn, sem þjóð vor hefir átt. Frá þeim er kominn mestr hluti þjóðar-arfs vors. Þeir hafa gjört tungu feðra vorra ódauðlega; þeir hafa endrreist hana á síðustu öld. Þeir hafa barizt fyrir velferð þjóðar vorrar, leitt hana við hönd sér, leitazt við að manna liana, firra hana ógæfu, grœða sár hennar og bera blak af henni. Það, sem þjóð vor á, það á liún, næst guði sjálfum, þessum mönnum að þakka. En rneðal allra þeirra ágætis-manna, sem þjóð vor hefir átt, er enginn, sem eins mikil og góð áhrif hefir haft á íslenzk barnshjörtu, enginn, sem á eins mikið í hjörtum vorum jafnvel nú á fullorðinsárunum, enginn, sem veitt getr oss annað eins lið á banabeð vor- um, eins og sálmaskáldið Hallgrímr Pétrsson. Sannar- lega höfum vér ástœðu til að þakka guði fyrir hann og verk hans. -------o------ Söngvit Hallgríms Pétrssonar. Eftir séra N. Steingrím porláksson. Þegar ritstjóri „Sam.“ bað mig, einsog hina presta kirkjufélagsins, að rita eitthvað um Hallgrím Pétrsson í Marz-blað „Sam.‘ ‘, þá lofaði eg því; en var í vandræðum með að vita um, hvað sérstaklega lionum viðvíkjandi, af því mér var alls ókunnugt um, hvað hinir myndi gjöra.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.