Fréttablaðið - 07.04.2011, Side 16
7. apríl 2011 FIMMTUDAGUR16 16
hagur heimilanna
Söngkonan Ellen Kristjánsdóttir velkist ekki í vafa þegar hún er spurð út í
verstu kaupin sem hún hafi gert. Hún er í þeirri aðstöðu, eins og margir
aðrir, að verstu kaupin er bíllinn hennar, en hún segir að hann hafi alls
ekki staðið undir væntingum.
„Þetta er Renault-bifreið sem ég keypti á erlendu láni árið 2005, en
hann er mjög gallaður og alltaf að bila. Því miður. Mér þykir mjög vænt
um bílinn minn, en hann er ekki búinn að
reynast mér nógu vel.“
Bestu kaupin segist Ellen hins
vegar hafa gert í Góða hirðinum
þar sem hún fjárfesti í, því sem
síðar reyndist, forláta mublu á
frábæru verði.
„Þar fékk ég borð eftir danska
hönnuðinn Börge Mogensen.
Það er rosalega fallegt og ég
vissi ekki að væri eftir þennan
hönnuð þegar ég keypti það.
Ég fékk það á slikk, en svo
reyndist það vera mjög
verðmætt.“
NEYTANDINN: ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR SÖNGKONA
Fékk forláta borð á slikk
Sól er tekin að hækka á
lofti og tími kominn til að
dusta rykið af garðyrkju-
hönskunum. Ef sólríkur
gluggi er á heimilinu er til-
valið að kaupa sáðbakka
og prófa sig áfram með
heimaræktun á matjurtum.
Það er ódýrara og svo veist
þú hvaðan maturinn þinn
kemur.
„Það er mjög fátt sem ekki er
hægt að rækta á Íslandi ef maður
gerir það rétt,“ segir Heiður
Agnes Björnsdóttir tómstunda-
ræktandi. Heiður hefur ræktað
sitt eigið grænmeti og krydd í
mörg ár og heldur nú námskeið í
Heilsuhúsinu um ræktun mat- og
kryddjurta.
Hún segir
alla geta rækt-
að heima, ein-
ungis þurfi að
fara yfir örfá
undirstöðuat-
riði áður en haf-
ist sé handa.
„Nú er tím-
inn til að forsá.
Svo er hægt að
færa plönturnar út í apríl eða maí,
allt eftir veðri,“ segir Heiður.
Ekki þarf að forrækta allt, mörg-
um plöntum er best að sá beint
á ræktunarstað úti í garði eða á
svölum.
Allar helstu garðyrkjuverslan-
ir selja sáðbakka, sáðmold og fræ.
Þegar búið er að fjárfesta í þessu
þrennu þarf bara að sá og muna
að vökva. Heiður segir algeng-
ustu mistök ræktenda vera þau
að gleyma að vökva fræin, sem
eigi alltaf að vera rök en þó ekki
of blaut.
Heiður segir óskaplega einfalt
að forrækta grænmeti og krydd-
jurtir. Það er gert annars vegar
til að fá uppskeru snemma, hins
vegar til þess að gera fólki kleift
að rækta matjurtir sem ann-
ars næðu ekki þroska á íslensku
sumri, t.d. fennel og sellerí.
Á undanförnum árum hefur
Íslendingum vaxið þor í að prófa
að rækta óhefðbundnari tegund-
ir en áður. Heiður ræktar til að
mynda sellerí, fennel, lauka af öllu
tagi, spínat, rúkóla, kóríander, rós-
marín, timjan, salvíu, spínat, hvít-
lauk, chili-pipar, baunir, hindber
og jarðarber, svo eitthvað sé nefnt.
Heimaræktað er ódýrara
og laust við öll eiturefni
BASILPLÖNTUR Þessar basilplöntur eru komnar með fjögur blöð og því er búið að prikla þeim í stök hólf. Hafa skal í huga að
basil er eina algenga kryddjurtin sem ekki þolir íslenska veðráttu og verður að hafa innandyra. NORDICPHOTOS/GETTY
HEIÐUR AGNES
BJÖRNSDÓTTIR
Algengustu kryddjurtirnar sem má forsá núna
Íslenskt heiti Latneskt heiti Annað
Basil Ocimum basilicum Eina jurtin sem ekki þolir að vera úti.
Dill Anethum graveolens Hægt að sá beint út í pott eða beð.
Garðablóðberg Thymus vulgaris Einnig þekkt sem timjan. Fjölær og
harðger.
Graslaukur Allium schoenoprasum Ein algengasta íslenska kryddjurtin. Fjölær.
Kóríander Coriandrum sativum Hraðvaxta. Hægt að sá beint út.
Mynta Mentha spp. Ein harðgerasta kryddjurtin. Fjölær.
Oreganó Origanum vulgare Nokkuð harðger hérlendis.
Rósmarín Rosmarinus officinalis Hægvaxta runni. Notað mikið í snyrtivörur.
Verðdæmi á garðyrkjuvörum til sáningar:
■ Fræ: Á bilinu 170 krónur til 399 krónur
■ Sáðmold: 599 krónur (10 lítrar) og 399 krónur (5 lítrar)
■ Sáðbakkar: 1.699 krónur til 1.990 krónur
Geymslutími fræja er um þrjú til fimm ár og best
er að geyma þau í bréfinu eða poka á köldum og
dimmum stað.
Sáning
Setjið sáðmoldina í sáðbakka. Þjappið létt, vökvið
rétt yfir moldina og stráið fræjunum yfir moldina,
ekki of þétt. Stærri fræjum er hægt að sá beint í
hólfin á bökkunum og sáldra fínlegri mold létt
yfir þau.
Hitastig, raki og birta við spírun
Góður spírunarhiti á að vera 18 til 23 gráður. Flest
fræ þurfa ekki birtu á meðan spírun stendur. Mátu-
lega mikill og jafn raki er nauðsynlegur meðan á spírun
stendur. Þó má moldin ekki verða of blaut. Loftskipti verða
þegar plastinu er lyft af öðru hvoru. Strax eftir spírun þurfa
plönturnar að fá góða birtu.
Hitastig, raki og birta í ræktun
Hiti á bilinu 10 til 18 gráður. Gott er að hafa góða birtu en varast
skal mikla beina sól. Vökvið oft en lítið í einu, eða úðið moldina
reglulega.
Dreifsetning - priklun
Þegar smáplönturnar hafa fengið þrjú til fjögur laufblöð er rétt að dreifsetja
þær í hólfaða bakka eða potta. Gott er að hafa priklpinna eða bara blýant.
Stungið er niður með litlu plöntunni og ýtt varlega undir rótina og hún
losuð frá hinum smáplöntunum. Ný gróðurmold er sett í hólfaða bakka eða
potta, vökvað létt yfir, pinnanum stungið niður í hann og gerð hola með
pinnanum, plantan sett í holuna, moldinni ýtt varlega að og vökvað örlítið
yfir.
Herðing
Áður en plönturnar eru settar út að vori er gott að venja þær við. Til að
mynda er hægt að flytja þær á svalari stað, inn í bílskúr, gróðurhús eða
vermireit, í fimm til tíu daga. Plöntunum má svo planta út um miðjan maí.
Heimild: Blómaval
Verkefnalisti fyrir heimaræktendur
Allar kryddjurtir þola íslenska
veðráttu, að undanskildu basil,
sem er nauðsynlegt að halda inn-
andyra í góðri birtu.
„Mín hugmyndafræði gengur út
á að kenna þessi grundvallaratr-
iði til þess að fólk þori að leggja
af stað. Þetta er nefnilega ekkert
flókið,“ segir Heiður. „Það er fernt
sem plönturnar þarfnast: Birta,
vatn, næring og pláss. Það er hægt
að fá ótrúlega uppskeru með því
að hafa þetta í huga.“
sunna@frettabladid.is
Flestir kannast við það þegar saltið í saltstauknum
situr sem fastast og ekkert gerist, sama hvað þú
hristir mikið. Til að koma í veg fyrir slík leiðindi
er gott að setja nokkur ósoðin hrísgrjón með í
staukinn næst þegar þú fyllir á. Hrísgrjónin draga
í sig mesta rakann og halda saltinu þurru. Einnig
hjálpa hrísgrjónin til við að losa saltið ef það er
byrjað að festast saman.
GÓÐ HÚSRÁÐ Saltstaukurinn
Hrísgrjón gera gæfumuninn
*Verð á mann miðað við flug fram og til baka til Reykjavíkur, Egilsstaða, Akureyrar eða Ísafjarðar.
SKEMMTUM OKKUR
INNANLANDS
FLUG OG GISTING
Í EINA NÓTT
FRÁ AÐEINS 21.030 KR.*
FLUGFELAG.IS
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/F
LU
5
38
64
0
3/
11
Hringdu í 570 3030 og skelltu þér á skíði.
6,2% LÆKKUN hefur orðið á kílóverði eggja milli febrúarmánaða í ár og árið 2001. Vísitöluleiðrétt kílóverð var þá 641,8 krónur, en var samkvæmt tölum Hagstofunnar 602 krónur í febrúar síðastliðnum.