Fréttablaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 31
RÚM
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Opið mán-fös: 10-18, laug: 11-16 Enginn er betri
Heilsudýnur og heilsurúm
.-
Heilsudýnur og heilsurúm
.-
FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 • KYNNING
● FYRIR FERMINGAR
BARNIÐ Í Lystadún-Marco er
að finna ýmsar sniðugar ferm-
ingargjafir. Þar á meðal einbreið
rúm sem sóma sér vel í hvaða
unglingaherbergi sem er. „Versl-
unin selur í þau ýmsa íhluti,
svo sem höfðagafla, skápúða,
stóra kodda og fleira sem getur
breytt rúminu í sófa. Það hent-
ar unglingum vel sem vilja nýta
vistaverur sínar á fleiri vegu en
sem svefnherbergi,“ segir Valdi-
mar Grímsson.
● GOTT ÚRVAL SVEFN
SÓFA Lystadún-Marco hefur
framleitt hágæða svefnsófa í
meira en 60 ár. Fyrirtækið er
nú með til sölu þrjár mismun-
andi gerðir sem viðskiptavinir
geta látið sérsníða inn í sitt um-
hverfi, með stærð og áklæði að
eigin vali. Að sögn Valdimars
Grímssonar er svefnflöturinn sá
besti sem völ stendur á og verð-
ið gott.
Gæði, fjölbreytni og
sanngjarnt verð. Þannig er
Mediline-heilsurúmunum frá
Lystadún-Marco í Mörkinni 4
best lýst.
Lystadún-Marco hefur um árabil
séð landsmönnum fyrir heilsu-
rúmum og -dýnum. Fyrir skömmu
setti fyrirtækið á markað sam-
hæfða línu af heilsurúmum undir
merkjum Mediline þar sem komið
er til móts við ólíkar þarfir hvers
og eins.
„Eins og heitið gefur til kynna
leggur línan höfuðáherslu á heils-
una, enda okkar dýrmætasta eign
og þar standa ýmsir kostir til
boða, margar gerðir, stærðir og
stífleikar af dýnum, sem er svo
hægt að útfæra frekar í samráði
við viðskiptavininn,“ segir Vald-
imar Grímsson, framkvæmda-
stjóri og einn eigenda fyrirtæk-
isins.
Í staðlaðri útfærslu af rúminu
er hægt að velja um fimm gerð-
ir grunndýna. Ofan á það bæt-
ast við þrjár gerðir af yfirdýnum
verði lúxusútgáfa af Mediline-
rúmi fyrir valinu. Helsti kostur-
inn er þó óupptalinn. „Í staðlaðri
útgáfu af tvíbreiðu rúmi er hægt
fá tvær gerðir grunndýna í sama
dýnuverinu, aðra mjúka og hina
stífa. Það hentar til dæmis pari
með ólíkar þarfir og fyrirbygg-
ir að dýnurnar gliðni í sundur á
nóttunni, sem getur valdið óþæg-
indum. Svipaða leið er hægt að
fara í lúxustýpunni. Þetta gerir
Mediline-rúmin alveg einstök á
heimsvísu.“
Þá getur viðskiptavinur-
inn haft áhrif á endanlegt útlit
rúmsins. „Hann getur valið
um lit á rúminu, á höfðagafl-
inn og fleira,“ segir Valdimar og
getur þess að sjúkraþjálfari veiti
faglega ráðgjöf við val á rúmi á
fimmtudögum frá klukkan 16-18.
Heilsan er okkar dýrmætasta eign
Mediline-rúmbotnar fást annaðhvort í
hvítu eða svörtu leðurlíki og með ljósum
eða dökkbrúnum fótum. Ítalskir raf-
magnsbotnar standa líka til boða.
Yfirdýnurnar skiptast í Supersoft-.
Celsius- og Latexdýnur.
Staðlaðar og lúxusútgáfur af Mediline-rúmunum bjóðast, en í þeirri síðarnefndu bætast yfirdýnur ofan á grunndýnur. MYND/STEFÁN
Hjá Lystadún-Marco fást líka í góðu úrvali íhlutir í rúm, skápúðar, koddar og fleira sem setur persónulegan svip á umhverfið.