Fréttablaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 2
7. maí 2011 LAUGARDAGUR2
HJÁLPARSTARF Alls hafa
6,5 milljónir króna verið
greiddar til Hjálpar-
starfs kirkjunnar með
va lgreiðsluseðlum í
heimabanka frá því að
átakið um breytingar
á innlendri matarað-
stoð hófst fyrir um viku.
Breytingunum er beint
gegn biðröðunum sem
tíðkast hafa við matar-
úthlutanir.
„Söfnunin hefur gengið mjög
vel á þessari einu viku. Það má
kannski gera ráð fyrir að þetta
gangi best fyrst eftir mánaðamót
en við sendum út 120 þúsund kröf-
ur og það hefur að vísu enn ekki
komið inn stórt hlutfall af þeim,“
segir Jónas Þórir Þórisson, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstarfsins,
um verkefnið, sem mun standa
í sjö mánuði til að byrja
með.
Breytingarnar á matar-
aðstoðinni eru fólgnar
í því að skjólstæðingar
Hjálparstarfsins sem eru
með börn á framfæri fá
í hendur inneignar kort
í verslunum sem selja
helstu nauð þurftir. Inn-
eignarkortin, sem geyma
fasta og fyrir fram
ákveðna upphæð, koma í stað
matar poka sem Hjálparstarfið
hefur hingað til afhent.
„Einstaklingar sem ekki treysta
sér til þess að standa í biðröðum
einhverra hluta vegna hafa hringt
til okkar og spurt um möguleika
á inneignarkorti og við munum
taka slíkar beiðnir til athugunar
eins og allar aðrar beiðnir,“ segir
Jónas Þórir. - ibs
HEILSA Finnar hafa staðfest að
yfir 50 börn á aldrinum fjögurra
til nítján ára sem fengu dróma-
sýki á síðasta ári höfðu öll verið
bólusett með bóluefninu Pandem-
rix sem gefið er við svínaflensu.
Að sögn Markku Partinen,
prófessors við
Háskólann
í Helsinki,
fá vanalega
um þrjú börn
drómasýki í
Finnlandi ár
hvert þannig að
fjölgun tilfella
vakti mikla
athygli. Hann
segir þó ekki
hægt að fullyrða að bólusetningin
sé orsakavaldur sýkinnar. Rann-
saka þurfi málið betur. Þess má
geta að bóluefnið er notað hér
á landi og landlæknisembættið
hvatti fólk til að láta bólusetja
sig í vetur. Partinen leggur þó
áherslu á að áhættan sé lítil.
Partinen tekur nú þátt í nor-
rænni svefnráðstefnu hérlendis.
Þar hefur meðal annars verið
fjallað um afleiðingar svefnleys-
is. - sbt / sjá síðu 32
LÖGREGLUMÁL Karlmaður frá Íran, sem um
árabil hefur beðið eftir svari við því hvort
hann fái hæli hérlendis, hellti yfir sig bensíni
á skrifstofum Rauða kross Íslands í gærmorg-
un og hótaði að kveikja í sér ef hann fengi
ekki tafarlausa úrlausn sinna mála.
Sérsveit lögreglu var kvödd á vettvang,
ásamt slökkvi- og sjúkraliði. Samningamaður
reyndi að sannfæra manninn um að koma út
úr húsinu en í miðjum viðræðunum tók hann
að hella yfir sig bensíninu, sem hann hafði
með sér í tveimur brúsum.
Að sögn lögreglu stafaði starfsfólki Rauða
krossins töluverð hætta af manninum, enda
reyndi hann reglulega að kveikja á kveikjara
sem hann hafði meðferðis upp við bensínblaut
klæði sín. Bensínið hafði einnig skvest á föt
starfsfólksins.
Lögregla greip til aðgerða þegar svo var
komið og handsamaði manninn. Hún var
meðal annars vopnuð slökkvitækjum til að
koma í veg fyrir að maðurinn slasaði sig.
Maðurinn var færður á slysadeild og þaðan
í fangageymslur.
Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir
að hörmulegt sé að maðurinn skuli grípa til
slíkra örþrifaráða í örvæntingu sinni. „Mest
um vert er að okkur tókst með þeim viðbúnaði
sem hér var að koma manninum til hjálpar án
þess að hann skaðaði sjálfan sig eða aðra.“ - sh
Íranskur hælisleitandi greip til örþrifaráða eftir margra ára bið í kerfinu og var handtekinn:
Hótaði að kveikja í sér hjá Rauða krossinum
MIKILL VIÐBÚNAÐUR Samningamaður ræddi við
manninn en þegar hann hellti yfir sig bensíni réðst
lögregla til atlögu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
UMHVERFISMÁL Hugmyndir um að
flytja hreindýr til Vestfjarða til að
styrkja atvinnulífið mæta harðri
mótspyrnu sauðfjárræktenda og
sérfræðings hjá Matvælastofnun.
„Vitað er að hreindýr geta tekið
ýmsa sauðfjársjúkdóma, má þar
nefna garnaveiki, en einnig er
líklegt að að hreindýr geti borið
riðu ásamt ýmsum öðrum smit-
sjúkdómum. Með tilliti til þess
hve rásgjörn og víðförul hreindýr
eru ásamt því að girðingar, þar
með taldar sauðfjárveikivarn-
arlínur, halda þeim ekki er ljóst
að hætta er á að óbætanlegt tjón
gæti hlotist af flutningi þessara
dýra á Vestfirði,“ segir í umsögn
sauðfjár veiki varnarnefndar
Stranda byggðar til sveitarstjórna
á Vestfjörðum.
Í umsögn Þorsteins Ólafs sonar,
sérgreinalæknis hjá Matvæla-
stofnun, er minnt á að heilbrigð-
asti sauðfjárstofn landsins sé á
austan verðum Vestfjörðum. „Það
eru því ekki aðeins hagsmunir
bænda á því svæði í húfi að ekki
berist þangað óæskilegir sjúkdóm-
ar, það skiptir alla sauðfjárrækt á
Íslandi gríðarlega miklu máli,“
segir Þorsteinn.
Þá er nefnd slysahætta og eyði-
legging vegna ágangs hreindýra.
Þorsteinn segir hreindýr ekki
virða venjulegar girðingar. „Það er
líklegt að þau myndu leita suður í
Dali, alla vega á vissum árstímum,
og jafnvel niður í Borgarfjörð,“
segir Þorsteinn, sem kveður slíkt
flakk myndu ganga „gjörsamlega
gegn öllum hagsmunum“ vegna
varnarlína við sauðfjárveiki.
Búnaðarsamband Vestfjarða
hefur einnig lýst andstöðu við
flutning hreindýra inn á svæðið.
Sigmar B. Hauksson, fyrrverandi
formaður Skotvís, segir andstöð-
una byggða á misskilningi.
„Íslenski hreindýrastofninn er
einn sá heilbrigðasti í heimi. Það
hefur aldrei fundist hreindýr sýkt
af riðu eða garnaveiki svo sannað
sé á Íslandi. Hreindýr eru í nánu
samband við sauðfé á Austurlandi
og ekki er það vandamál,“ segir
Sigmar.
Þá bendir Sigmar
á að ferðamála- og
umhverfisnefnd
Reykhólahrepps
ætli að láta kanna
hvort hreindýr geti
lifað á Vestfjörð-
um. Atvinnu- og
ferðamálanefnd
Vesturbyggðar
skoði einnig
málið.
„Fram-
sýnir menn
fyrir
vestan vilja einfaldlega rannsaka
hvort þetta sé gerlegt. Vægi sauð-
fjárræktar hefur minnkað mjög
mikið á Vestfjörðum og þar vant-
ar sárlega atvinnutækifæri. Hjörð
hreindýra gæti lengt ferðaþjón-
ustutímabilið um tvo mánuði og
það skilað minnst 500 milljóna
króna tekjum. Menn eiga að skoða
málin til hlítar áður en ákvörðun
er tekin,“ segir Sigmar B. Hauks-
son. gar@frettabladid.is
Lagst gegn flutningi
hreindýra á Vestfirði
Sauðfjárræktendur eru andsnúnir hugmyndum um flutning hreindýra til Vest-
fjarða af ótta við sjúkdóma sem borist geti í heilbrigðasta stofn íslensks sauð-
fjár. Misskilningur segir Sigmar B. Hauksson. Miklar tekjur séu í húfi.
SIGMAR B. HAUKSSON
Einn helsti hvatamaður
að flutningi hrein-
dýrahjarðar til Vestfjarða
er Sigmar B. Hauksson,
fyrrverandi formaður
Skotvís. „Þetta er ein-
faldlega kalt mat,“ segir
Sigmar um það
hvernig nálgast
eigi ákvörðun í
málinu.
MYND/ÚR EINKASAFNI
HREINDÝR Hugmyndir um að hreindýr verði flutt til Vestfjarða mæta andstöðu
meðal sauðfjárræktenda og sérfræðings hjá Matvælastofnun.
LÍBÍA, AP Frakkar ráku í gær fjór-
tán líbíska stjórnarerindreka
úr landi. Allir eru þeir sagðir
hliðhollir Múammar Gaddafí
Líbíuleiðtoga, sem nú á í hörðum
átökum við uppreisnarmenn sem
krefjast stjórnarumbóta.
Frakkar viðurkenna upp-
reisnar hreyfinguna sem réttmæt
stjórnvöld og hafa verið í forystu
loftárása NATO á Líbíu.
Í gær lagði stjórnarandstaðan
í Líbíu síðan fram hugmyndir
sínar um framhaldið, færi svo að
henni tækist að steypa Gaddafí af
stóli. Stjórnarandstaðan hyggst
stofna bráðabirgðastjórn sem
færi með völd þangað til efnt
hefur verið til kosninga og ný
stjórnarskrá skrifuð. - gb
Líbíumenn ekki æskilegir:
Frakkar reka
fjórtán úr landi
MARKKU PARTINEN
50 börn með drómasýki:
Höfðu fengið
sama bóluefni
Góðar undirtektir við söfnun Hjálparstarfsins:
6,5 milljónir í söfnun
JÓNAS ÞÓRIR
ÞÓRISSON
JAPAN, AP Japanir hafa ákveðið
að hætta vinnslu í öllum þremur
kjarnaofnum kjarnorkuversins
í Hamaoka vegna staðsetningar
þess og hættu á jarðskjálftum og
flóðum.
„Ef slys verður í Hamaoka
getur það haft alvarlegar afleið-
ingar,“ sagði Naoto Kan, forsæt-
isráðherra Japans.
Hamaoka er nálægt höfuðborg-
inni Tókýó, mun sunnar en kjarn-
orkuverið í Fukushima sem ekki
verður starfrækt áfram eftir
skemmdir sem urðu af völdum
jarðskjálftans og stórflóðs 11.
mars. - gb
Brugðist við jarðskjálftahættu:
Kjarnorkuveri
lokað í Japan
LÖGREGLUMÁL Karlmaður um fer-
tugt hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 3. júní vegna
gruns um að hann hafi beitt
fjórtán ára pilt kynferðis ofbeldi
árum saman. Frá þessu var
greint í fréttum RÚV í gærkvöld.
Í frétt RÚV sagði jafnframt að
grundvöllur úrskurðarins væri
sá að maðurinn væri hættulegur
umhverfi sínu. Maðurinn og
drengurinn munu tengdir fjöl-
skylduböndum.
Maðurinn hefur komið við sögu
lögreglu og verið dæmdur fyrir
vörslu á barnaklámi. - jab
Úrskurðaður í gæsluvarðhald:
Grunaður um
kynferðisbrot
JAPANSKIR RÁÐHERRAR Naoto Kan for-
sætisráðherra og Banri Kaieda efnahags-
ráðherra hneigja sig djúpt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Ríkisstjórninni tókst
ekki að afgreiða frumvörp til
breytinga á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu í gær eins og til stóð.
Ágreiningur á milli stjórnar-
flokkana um það hversu langt
eigi að ganga hefur tafið málið
svo mánuðum skiptir. Þá er ekki
sátt um það hvernig hafa eigi
gjaldtöku af kvótaleigu.
Deilan snýst meðal annars
um svokallaðan leigupott sem á
tryggja að kvótalausar útgerðir
geti leigt kvóta beint af ríkinu.
Samhliða því á að opna fyrir
nýliðun í greininni. - jab
Kvótakerfið enn í biðstöðu:
Greinir á um
gjaldtökuna
SPURNING DAGSINS
Hera Björk, verður þú hýr á
brá?
„Jahá!”
Hera Björk Þórhallsdóttir er opinber
söngkona Mr. Gay World USA keppninn-
ar. Hún kemur einnig fram á styrktarballi
vegna heimsmeistaramóts samkyn-
hneigðra í sundi á Barböru í kvöld.