Fréttablaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 96
7. maí 2011 LAUGARDAGUR56
folk@frettabladid.is
Tökur á undirheimakvik-
myndinni Svartur á leik
eru hafnar. Myndin byggir
á samnefndri bók Stefáns
Mána um undirheimana í
Reykjavík, eiturlyf, hand-
rukkanir og kynlíf.
„Mér líst alveg hrikalega vel á
þetta, ég er ekki Evrópumethafi í
bjartsýni og yfirlýsingum en það
sem ég hef séð, heyrt og veit er
alveg geggjað,“ segir rithöfundur-
inn Stefáni Máni. Það hefur verið
löng bið hjá honum að sjá bókina
færast upp á hvíta tjaldið og þótt
hann sé ekki mikið að þvælast fyrir
vinnandi fólki hefur forvitnin dreg-
ið hann á tökustað öðru hvoru. „Ég
á eftir að kíkja nokkrum sinnum,
þetta er náttúrlega þvílíkt teymi
sem er að vinna að þessu, handritið
er að mínum dómi frábært og settið
er alveg fullkomið,“ en myndin ger-
ist árið 1999 og því þarf að huga að
hverju einasta smáatriði.
Egill Gillz og Jóhannes Haukur
hafa eilítið stolið senunni í undir-
búningi myndarinnar, valið á Agli
kom mörgum á óvart og Jóhannes
Haukur hefur bætt á sig miklum
vöðvamassa fyrir hlutverk Tóta
dyravarðar. „Það er búið að raka af
honum hárið og hann er með víga-
legan hökutopp. Mér skilst að hann
elski Tóta dyravörð og sé fastur í
karakter, gangi um með djöfullegt
glott og glampa í augunum.“ Um
Egil viðurkennir Stefán að fyrst
hafi þetta komið honum á óvart.
„Ég hef ekki heyrt neitt nema gott
um þennan strák, hann smellpassar
inn í þetta, hann er nautsterkur og
það geta ekki allir leikið eftir það
sem hann er að gera í myndinni.“
freyrgigja@frettabladid.is
GLAMÚRGELLUR Í
KVIKMYNDALEIK
Þeir eru all svakalegir Egill og Jóhannes
Haukur, Egill með svart hár og Jóhannes
hefur verið að taka vel á því í ræktinni.
Þorvaldur Davíð hefur nýlokið námi við Juilliard-skólann í New York og er kominn
með samning í Los Angeles við þekkta umboðsskrifstofu. Egill Gillz er því í góðum
félagsskap og getur leitað ráða hjá Þorvaldi.
Borga karlinn minn, borga, gætu þeir Jóhannes Haukur og Egill Gillz verið að segja.
Oft getur verið mikil bið á milli atriða í
kvikmynd en stemningin í heita pott-
inum virtist vera góð.
Þrátt fyrir að George Clooney sé
án nokkurs vafa ein allra stærsta
kvikmyndastjarnan um þess-
ar mundir tekst honum af og til
að halda sig fjarri sviðsljósinu.
Þannig varð leikarinn fimmtugur
í gær en í stað þess að halda upp
á afmælið með glæsilegri veislu
og frægum vinum bauð hann
kærustu sinni, Elisabettu Canal-
is, í lágstemmdan kvöldverð á
kínverska veitingastaðnum Mr.
Chow í miðbæ Los Angeles.
Clooney hefur eflaust vonast til
þess að kvöldverðinum yrði hald-
ið fyrir utan síður blaðanna en
honum varð aldeilis ekki að ósk
sinni, því meðal annarra gesta
á staðnum voru Kirstie Alley og
Jackie Collins. Og þær voru ekk-
ert að spara færslurnar á twitter-
síðum sínum. „Er í kvöldverði
og þetta er sennilega einhver
mesti frægðarfólksveitingastað-
ur sem ég hef komið á,“ skrifaði
Alley. Og bætti síðan um betur.
„Var á Mr. Chow, besti matur í
Los Angeles, til hamingju með
afmælið, George Clooney.“
Clooney í
góðu næði
HAMINGJUSÖM Clooney og Canalis
borðuðu fínan mat á Mr. Chow í tilefni
af fimmtugsafmæli leikarans.
6 dagar í viku fóru í líkamsrækt hjá söng- og leikkonunni Jennifer Lopez þegar hún undirbjó sig fyrir fjölda
myndataka í tengslum við Idolið – þar sem hún er dómari.
www.tskoli.is
Í haust flytur Margmiðlunarskólinn í nýtt og glæsilegt húsnæði
Tækniskólans við Háteigsveg. Þar verður frábær aðstaða sem
hæfir framsæknum skóla, meðal annars green screen, MoCap,
hljóðver og góð aðstaða fyrir nemendur í skapandi starfi.
Margmiðlunarskólinn er í fararbroddi kennslu í margmiðlun, margmiðlunarhönnun
hreyfimyndagerð og vefforritun. Mikil áhersla er á skapandi vinnu, tölvuleiki og
tæknibrellur fyrir kvikmyndir og náminu líkur með krefjandi lokaverkefni og sýningu.
Skólinn vinnur náið með helstu fyrirtækjum í þessum greinum svo sem CCP, Frame-
store og Caoz.
Við bjóðum nýja nemendur velkomna til leiks með frábærum hópi kennara og
nemenda. Innritun stendur yfir á www.menntagatt.is til 20. maí. Sjá nánari
upplýsingar á mms.is
Margmiðlunarskólinn
á tímamótum