Fréttablaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 98
7. maí 2011 LAUGARDAGUR58
Lady Gaga maskínan virð-
ist eitthvað vera farin
að hiksta. Eftir fárán-
lega velgengni að undan-
förnu hefur nýjasta efninu
hennar verið tekið fremur
fálega.
Bandaríska söngkonan Lady
Gaga vísar því algerlega á bug í
samtali við MTV-sjónvarpsstöð-
ina að nýjasta myndband hennar
við lagið Judas sé guðlast. Þvert
á móti sé hún ákaflega trúuð og
andlega sinnuð manneskja sem
virði trúarbrögð allra. „Og þar
að auki er ég mjög upptekin af
trúarlegri list, eiginlega bara
heltekin,“ hefur MTV eftir söng-
konunni.
Stiklan hafði vart sungið sitt
síðasta fyrr en hinir og þess-
ir kristnu trúarhópar tóku að
úthrópa söngkonuna fyrir guð-
last. Og það er ekkert skrítið að
hinir móðgunargjörnu kristnu
trúarhópar í Ameríku hafi feng-
ið hland fyrir hjartað. Í mynd-
bandinu birtist Gaga nefnilega í
líki Maríu Magdalenu og á vin-
gott við bæði Jesús og Júdas í
einu. Hinir lærisveinarnir eru
síðan sýndir leðurklæddir undir
merkjum Hell‘s Angels. En það
er engin predikari að brenna
diska, plaköt og myndir af Gaga
í Biblíubeltinu bandaríska.
Á tónlistarvefsíðu Independ-
ent er fjallað um myndbandið
og það mikla írafár sem hafði
verið skapað í kringum það.
Gaga sagði sjálf að myndbandið
væri vélhjólamynd að hætti Fell-
ini þar sem lærisveinarnir eru
uppreisnar seggir í Jerúsalem
nútímans. „Maskínan fór af stað,
þetta átti að verða umdeildasta
myndband allra tíma og kosta
meira en tíu milljónir dala og
þegar tilkynnt var að Lady Gaga
væri aðstoðarleikstjóri fóru
viðvörunarbjöllurnar strax að
hringja,“ skrifar blaðamaður
Independent. Hann bendir hins
vegar á að Born This Way hafi
ekki náð fyrsta sætinu í Bret-
landi og smáskífan Júdas hafi
dottið út af topp tuttugu eftir
aðeins þrjár vikur og engan veg-
inn náð sér á strik í Ameríku.
„Það kom því ekkert á óvart að
myndbandinu skyldi vera lekið
á netið degi fyrir áætlaða frum-
sýningu.“
Lady Gaga er sjálf alin upp
samkvæmt kaþólskum sið og
hún hefur tekið fram að mynd-
bandinu sé alls ekki beint gegn
kristinni trú. Gaga er auðvitað
ekki fyrsta söngkonan sem veld-
ur fjaðrafoki meðal kristinna
því Madonna gerði þetta ítrek-
að á sínum yngri árum. Og eins
merkilegt og það kann að hljóma
er Madonna einnig alin upp á
strangtrúuðu kaþólsku heimili.
freyrgigja@frettabladid.is
LADY GAGA VÍSAR GUÐLASTI Á BUG
EKKI GÓÐ BYRJUN Judas, nýjasta smáskífa Lady Gaga, fær ekki þær viðtökur sem
búist hafði verið við. Og myndbandið reyndist ekki vera það eldfima efni sem það
átti að vera.
Leikkonan Eva Mendes er brjál-
uð í súkkulaði og gerir hvað sem
er til að fá skammtinn sinn. „Ég
myndi borða viðarborð ef það
væri súkkulaðihúðað. Ég er sjúk
í smákökur, frauð og allt sem
tengist súkkulaði,“ sagði hún.
„Ef ég fæ mér þá refsa ég mér
ekki fyrir það. Ég reyni frekar
að njóta þess.“ Mendes, sem er
37 ára, reynir að minnka við sig í
kaloríum á öðrum sviðum ef hún
fær sér súkkulaði. „Ég reyni að
borða eins marga ferska ávexti
og eins mikið grænmeti og mögu-
legt er.“
Brjáluð í súkkulaði
EVA MENDES Leikkonan er sjúk í
súkkulaði og gerir hvað sem er til að fá
skammtinn sinn.
Charlie Sheen hefur í hyggju að
fara með einleikinn sinn á ferðalag
um Evrópu og Asíu. Leikarinn lauk
nýverið ferðlagi sínu um Banda-
ríkin og Kanada en sýningin My
Violent Torpedo of Truth/Death
Is Not An Option hlaut misjafnar
viðtökur. Sheen hefur verið mikið
í fjölmiðlum að undanförnu eftir
að hann sagði framleiðendum sjón-
varpsþáttarins Two and Half Men
stríð á hendur og var í kjölfarið
rekinn. Síðan þá hefur líf leikar-
ans umturnast, hann fer mikinn á
netinu og áðurnefnd sýning þykir
nokkuð sérstök.
Og Charlie hefur þá bjargföstu
trú að bæði Asíubúar og Evrópu-
menn muni elska My Violent Tor-
pedo of Truth. „Þetta yrði kannski
meira í ætt við notalega kvöld-
stund með Charlie Sheen. Ég held
að Evrópubúar muni sýna mér
meiri skilning, þeir eru miklu
þolin móðari,“ segir Sheen í sam-
tali við ástralska útvarpsstöð en
þar er leikarinn staddur nú. Sheen
hefur þegar tilkynnt að allur ágóði
sýninganna renni beint til fórnar-
lamba hvirfilbyljanna sem riðu
yfir Bandaríkin nýverið.
Sheen langar að
skemmta Evrópu
HÁLEITAR HUGMYNDIR Charlie Sheen
langar að fara með sýningu sína í ferð
um Evrópu og Asíu.
Lag Madonnu, Like a Prayer, sem kom út árið
1989, olli miklum deilum í Bandaríkjunum.
Lagið er á samnefndri plötu sem naut mikilla
vinsælda og sjálf hefur Madonna haldið
mikið upp á lagið; það er nánast fastagestur
á tónleikaferðum hennar. Hafi Lady Gaga
vonast til að lagið Judas fengi viðlíka athygli
þá er það langt því frá. Lag Madonnu var
fordæmt af Vatikaninu á sínum tíma og fjöl-
margir trúarhópar mótmæltu því kröftuglega.
Í myndbandinu leikur Madonna sér að
mörgum þekktum trúartáknum og Like
a Prayer hefur verið álitið snörp ádeila á
kynþáttahatur og trúarbrögð.
Lagið var notað í auglýsingu
fyrir Pepsi, sem Madonna var
þá á samningi hjá, en vegna
þrýstings frá mörgum trúar-
hópum rifti Pepsi samningnum
og tók auglýsinguna úr umferð.
Like a Prayer hefur verið
sagt tímamótalag á ferli
Madonnu, hún var eftir
það álitin listamaður í
stað venjulegrar popp-
söngkonu.
SÖNGUR MADONNU
Leikkonan Jennifer Aniston er
þessa dagana að selja glæsivillu
sína í Beverly Hills fyrir 42 millj-
ónir dala, eða um 4,6 milljarða
króna. Hin 42 ára Aniston keypti
húsið á um 1,5 milljarða króna árið
2006 og mun því hagnast verulega
á viðskiptunum. Það tók Aniston
tvö ár að laga húsið að sínum
smekk. Öryggiskerfið
er mjög gott auk þess
sem útsýnið yfir Los
Angeles er framúr-
skarandi. Fregnir
herma að Aniston
sé komin með leið
á húsinu og telji
það full stórt
fyrir sig. Talið
er að hún ætli að
kaupa sér íbúð á
Manhattan í New
York í staðinn.
Aniston selur
glæsivillu
SELUR GLÆSIVILLU
Leikkonan ætlar að
selja glæsivillu sína
í Beverly Hills.