Fréttablaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 66
7. maí 2011 LAUGARDAGUR20
Styrkir
Tilkynningar
Fundir
Skipulag
Útboð
Menningar- og minningarsjóður kvenna
auglýsir eftir styrkumsóknum vegna
ársins 2011
Að þessu sinni er sjóðurinn opinn fyrir umsóknum frá einstæðum
mæðrum sem eru í eða hyggja á nám á framhaldsskólastigi sem
ekki veitir aðgang að láni frá LÍN.
Styrkupphæð árið 2011 eru 500 þúsund og áskilur stjórn sjóðsins
sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út
þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir.
Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:
• Staðfesting um skólavist og námsframvindu ef nám er hafið.
• Skattaskýrsla vegna tekna árið 2010
• Upplýsingar um aðra styrki vegna námsins ef um þá er að ræða
• Tekjuáætlun ársins 2011
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu
Kvenréttindafélags Íslands og heimasíðu: www.krfi.is.
Umsóknarfrestur er til 25. maí nk. Umsóknum skal skilað til
Menningar- og minningarsjóðs kvenna, Hallveigarstöðum við
Túngötu 14, 101 Reykjavík. Tilkynnt verður um styrkþega á kven-
réttindadaginn 19. júní.
Landstólpinn - árleg viðurkenning
Byggðastofnunar
Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn í Vestmanna-
eyjum miðvikudaginn 25. maí nk. Á fundinum verður
í fyrsta sinn veitt viðurkenning Byggðastofnunar undir
heitinu „Landstólpinn. Samfélagsviðurkenning Byggða-
stofnunar“.
Viðurkenningin skal veitt einhverjum þeim sem hefur
vakið jákvæða athygli á landsbyggðinni með verkefni,
starfsemi, umfjöllun á opinberum vettvangi eða með
öðru móti. Viðkomandi gæti bæði hafa vakið athygli á
byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju
tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi
samfélags. Um getur verið að ræða einstakling, fyrirtæki,
stofnun eða sveitarfélag.
Við óskum eftir ábendingum um handhafa þessarar
viðurkenningar. Að ábendingum fengnum mun dómne-
fnd velja úr. Eftirfarandi þætti má hafa í huga við valið:
Hvort viðkomandi hafi:
• gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða
viðkomandi svæði
• aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku
í verkefninu
• orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til
• dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni
Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt
eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar.
Ábendingum skal skila á heimasíðu Byggðastofnunar,
byggdastofnun.is
Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir í síma
455 5400 eða netfang, sigga@byggdastofnun.is.
Frestur til að koma ábendingum til skila rennur út
mánudaginn 16. maí 2011.
Við leitum að fagmenntuðum bifvélavirkjum
á atvinnubílaverkstæði HEKLU
Boðið er upp á skemmtilegan vinnustað, úrvals aðstöðu til
viðgerða og viðhalds, gott tæknilegt umhverfi ásamt miklum
möguleikum á þjálfun og endurmenntun. Á verkstæðum HEKLU
er unnið eftir gæðakerfi sem byggir á Volkswagen Group og
ISO 9001:2000 stöðlum. Gæðakerfið er vottað af faggildum
aðilum.
Bifvélavirki á atvinnubílaverkstæði hefur það hlutverk að
greina, finna úrlausnir og vinna við viðgerðir á verkstæðinu.
Ábyrgð og verkefni:
• Öll almenn viðhalds- og viðgerðavinna
• Meðhöndlun bilanagreininga
• Deila þekkingu með starfsfélögum
• Framfylgja öllum öryggisreglum og gæðakröfum
framleiðenda
Hæfniskröfur:
• Fullgild réttindi sem bifvélavirki
• Reynsla af starfi sem bifvélavirki
• Góð tungumálakunnátta
• Góð tölvukunnátta
• Áhugi á símenntun í greininni og vilji til að kynna sér
tækninýjungar
• Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Vinnutími á verkstæðinu er frá kl. 8:00 - 16:00.
Allir starfsmenn HEKLU er hvattir til að sýna frumkvæði, metnað
og vilja til að ná árangri í starfi.
Vinsamlegast sendið inn umsóknir ásamt ferilskrá á mh@hekla.is
Frekari upplýsingar um starfið gefur Magnús Halldórsson í
síma 825 5639
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Gangstéttaviðgerðir í Reykjavík 2011.
Útboðsgögn á geisladisk verða seld á kr. 3.000, frá kl. 9:00
þriðjudaginn 10. maí 2011 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar,
Borgartúni 12–14, 1.hæð.
Opnun tilboða þriðjudaginn 17. maí 2011 kl. 11:00, í Bor-
gartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver.
12610
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
Aðalfundur LAUF
– félags flogaveikra
Verður haldinn laugardaginn 14. maí
kl.11 að Hátúni 10, 9. hæð.
Venjuleg aðalfundarstörf
Námsstyrkir
Bandalag kvenna í Reykjavík auglýsir til umsóknar styrki
úr Starfsmenntunarsjóði ungra kvenna fyrir skólaárið
2011-2012.
Tilgangur sjóðsins er að hvetja og styðja við bakið
á ungum konum í Reykjavík, sem ekki eiga kost á
námslánum, til að afla sér aukinnar menntunar.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum, sem
hægt er að fá í versluninni Thorvaldsensbasar,
Austurstræti 4, alla virka daga milli kl. 09:00 og 18:00.
Fyrirspurnir má senda á netfang bandalagsins:
bandalag@simnet.is
Umsóknir þurfa að berast fyrir 14. júní 2011 til
Bandalags kvenna í Reykjavík
Túngötu 14, 101 Reykjavík, merktar „Námsstyrkir“
Hólmsárvirkjun -
Allt að 80 MW vatnsaflsvirkjun í
Skaftárhreppi
Mat á umhverfisáhrifum
Drög að tillögu að matsáætlun
Landsvirkjun og Orkusalan ehf. kynna áform um
að reisa allt að 80 MW vatnsaflsvirkjun í Hólmsá í
Skaftárhreppi, í Vestur Skaftafellssýslu.
Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um
mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matsvinnan
er hafin og frá 9. maí má nálgast drög að tillögu að
matsáætlun á heimasíðum Landsvirkjunar, www.
lv.is, Orkusölunnar ehf., www.orkusalan.is, og
Almennu verkfræðistofunnar hf., www.almenna.is.
Allir hafa rétt til að kynna sér drög að tillögu
að matsáætlun og leggja fram athugasemdir.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum, athugasemdum
og ábendingum við drög að tillögu að matsáætlun
á neðangreint póstfang eða með tölvupósti á
netfangið haukur.haraldsson@almenna.is.
Almenna verkfræðistofan hf.
b.t. Hauks Þórs Haraldssonar
Fellsmúla 26
108 Reykjavík
Frestur til að gera athugasemdir er til 23. maí 2011.
Situs ehf. óskar eftir áhugasömum aðilum sem vilja kaupa byggingarreit nr. 5 við Austurhöfn í
Reykjavík, sem ætlaður er fyrir hótel, en markmiðið með útboðinu er að tryggja að við hlið Hörpunnar
rísi hótel af þeim gæðum sem hæfir tónlistar- og ráðstefnuhúsinu þannig að gott samspil geti orðið
milli þessara bygginga, báðum til góðs.
Á byggingarreitnum er fyrirhugað að byggt verði hótel undir alþjóðlegu vörumerki sem verði með
a.m.k. 250 herbergjum og af 4-5 stjörnu gæðum. Á reitnum má byggja að hámarki 28.000 m2
ofanjarðar og 2.000 m2 í kjallara. Miðað er við að hótelið hefji rekstur vorið 2014 en þó eigi síðar en
vorið 2015.
Með kaupum á reitnum skuldbindur kaupandi sig m.a. til að:
Standa að byggingu a.m.k. 250 herbergja hótels á byggingarreitnum.
Tryggja að þar verði rekið 4-5 stjörnu hótel undir alþjóðlegu vörumerki.
Standa að byggingu bílakjallara við hótelið.
Leggja fram hugmyndir um samstarf milli Hörpu og væntanlegs hótels varðandi
ráðstefnuhald og gistingu.
Nánari upplýsingar um kröfur til bjóðenda, gögn sem skila þarf inn
með tilboði o.fl., má finna í útboðsgögnum en þau má nálgast frá
og með mánudeginum 9. maí á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar,
www.vso.is. Útboðsgögn eru á ensku.
Tilboðum ásamt fylgiskjölum skal skila á skrifstofu VSÓ Ráðgjafar,
Borgartúni 20, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 14:00, föstudaginn
10. júní 2011, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra
bjóðenda sem þess óska.
Hótel við Austurhöfn
Sala á byggingarreit nr. 5
SITUSehf
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
P
O
R
5
48
80
0
5.
20
11