Fréttablaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 6
7. maí 2011 LAUGARDAGUR6
Tímapantanir í síma 563 1046 og 563 1060.
Ágúst Birgisson lýtalæknir.
www.ablaeknir.is
Hef flutt læknastofu mína úr húsi
Lífssteins yfir í Domus Medica.
Ársfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins verður haldinn
fimmtudaginn 19. maí nk., kl. 16.00, á Hilton
Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
ÁRSFUNDUR 2011
Dagskrá
1. Fundarsetning
2. Staða og framtíðarsýn í orkumálum,
erindi Harðar Arnarssonar, forstjóra Landsvirkjunar
3. Almenn ársfundarstörf
4. Önnur mál löglega upp borin
Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar og rétthafar
séreignarsparnaðar rétt til setu á fundinum.
Reykjavík, 5. maí 2011
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins
Ársskýrslu og dagskrá fundarins má nálgast á skrifstofu
sjóðsins og á www.lifeyrir.is
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Sími 510 5000
mottaka@lifeyrir.is
lifeyrir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
46
44
9
ÞJÓÐKIRKJAN Rannsóknarnefnd þjóð-
kirkjunnar hefur sent út andmæla-
bréf til þeirra sem nefndin telur að
hafi gerst sekir um þöggun, van-
rækslu eða mistök í starfi þegar
konur leituðu aðstoðar kirkjunnar
vegna Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi
biskups. Bréfin voru send út laust
fyrir síðustu mánaðamót og hafa
þeir sem þau fengu um tvær vikur
til þess að svara þeim.
Róbert R. Spanó, formaður
nefndar innar, segir fáein svör hafa
borist nefndinni. Áfram verði unnið
að skýrslugerð þegar öll svörin hafa
borist og stefnir nefndin að því að
ljúka störfum fyrir miðjan júní.
Róbert vill þó ekki gefa upp hverj-
ir það voru sem fengu bréfin send,
eða hversu mörg þau voru.
„Við höfum sent út andmælabréf
í fleirtölu, en ég tel ekki ástæðu til
þess að upplýsa hversu mörg þau
voru,“ segir hann.
Hátt í fimmtíu manns hafa fengið
boð í skýrslutöku á meðan nefndin
hefur verið að störfum.
Fréttablaðið ræddi við Hjálmar
Jónsson, sóknarprest í Dómkirkj-
unni, Flóka Kristinsson, sóknar-
prest á Hvanneyri, og Vigfús Þór
Árnason, sóknarprest í Grafarvogs-
kirkju, en þeir áttu allir samskipti
við konurnar sem Ólafur braut gegn
á sínum tíma.
Allir höfðu þeir verið boðaðir í
skýrslutöku til nefndarinnar vegna
málsins. Flóki og Vigfús fullyrtu að
þeir hefðu ekki fengið andmælabréf
send, en Hjálmar vildi ekki tjá sig
um málið.
„Ég hef hitt nefndina og farið yfir
málið með henni, en vil ekki tjá mig
frekar fyrr en hún hefur lokið sínum
störfum,“ segir Hjálmar.
Hvorki náðist í Pálma Matthías-
son, sóknarprest í Bústaðakirkju, né
Karl Sigurbjörnsson biskup í gær. - sv
Rannsóknarnefnd kirkjunnar hefur lokið skýrslutökum vegna biskupsmálsins og verður rannsókn brátt lokið:
Meintir þöggunarmenn fengu send bréf
KIRKJUNNAR ÞJÓNAR Þeir starfsmenn
kirkjunnar sem taldir eru hafa gerst
sekir um þöggun eða vanrækslu í starfi í
máli Ólafs Skúlasonar hafa fengið send
andmælabréf.
PAKISTAN, AP Barack Obama Banda-
ríkjaforseti hitti í gær sérsveitar-
mennina sem tóku hryðjuverka-
leiðtogann Osama bin Laden af lífi
í Pakistan í byrjun vikunnar.
Obama þakkaði þeim vel unnið
verk, en daginn áður hafði hann
hitt aðstandendur margra þeirra
sem létu lífið í árásum hryðjuverka-
manna á New York 11. september
2001.
Í gær birtist á netinu staðfesting
frá Al Kaída samtökunum á dauða
bin Ladens. Í yfirlýsingu samtak-
anna hóta þau hefndum og segja að
hamingja Bandaríkjamanna muni
breytast í harm. Þetta er fyrsta
yfirlýsing þeirra frá því Osama bin
Laden var ráðinn af dögum. Ekki
var þó hægt að staðfesta að yfirlýs-
ingin kæmi í raun frá liðsmönnum
Al Kaída.
Amal Ahmed Abdulfattah, ein
þriggja eiginkvenna bin Ladens,
segist hafa dvalist á efri hæðinni
í þessu húsi samfleytt í fimm ár
og aldrei farið niður á neðri hæð-
ina allan þennan tíma, hvað þá út
úr húsinu.
Þetta sagði hún við pakistanska
leyniþjónustumenn, sem tóku hana
í vörslu sína ásamt tveimur öðrum
eiginkonum bin Ladens. Átta eða
níu börn, sem fundust í húsinu eftir
að Bandaríkjamenn höfðu lokið sér
af, voru einnig tekin í vörslu pakist-
anskra yfirvalda ásamt fleira fólki
sem Bandaríkjamenn létu eiga sig.
Vonast er til þess að frásagnir
þeirra gefi skýra mynd af því, hvað
bin Laden hefur haft fyrir stafni
síðustu ár.
Gögn hafa fundist í húsinu, þar
sem bin Laden leyndist í sex ár, sem
sýna að hann hafði í undirbúningi
enn frekari árásir á Bandaríkin.
Bandaríska leyniþjónustan hefur
ekki fengið að ræða við fólkið.
Spenna milli Bandaríkjanna og
Pakistans hefur vaxið eftir árásina
á bin Laden.
Bandarísk stjórnvöld telja ólík-
legt að hann gæti hafa verið í felum
í borginni Abottabad, skammt frá
virtasta herskóla landsins, án vit-
undar afla innan pakistanska hers-
ins. Pervez Musharraf, fyrrverandi
forseti Pakistans, viðurkenndi í gær
að það væri mikið klúður af hálfu
pakistanska hersins að hafa ekki
þefað bin Laden uppi rétt við bæjar-
dyrnar hjá sér.
Pakistönsk stjórnvöld hafa fyrir
sitt leyti hótað því að draga mjög úr
hernaðarsamstarfi við Bandaríkja-
menn geri þeir fleiri árásir innan
landamæra Pakistans.
Pakistanar þurftu þó ekki að
bíða lengi, því í gær skutu Banda-
ríkjamenn f lugskeytum úr
ómannaðri árásarflaug á stað í
Norður-Vasiristan, héraði í norð-
vestanverðum hluta landsins þar
sem talibanar og aðrir herskáir
múslimar eru á heimavelli. Árásin
varð fimmtán manns að bana.
Árásir af þessu tagi voru algeng-
ar á síðasta ári, en hefur fækkað
mjög á þessu ári vegna andstöðu
pakistanskra hermálayfirvalda.
gudsteinn@frettabladid.is
Obama þakklátur
sérsveitarmönnum
Obama þakkaði í gær sérsveitarmönnum fyrir að hafa ráðið Osama bin Laden
af dögum. Ein eiginkvenna bin Ladens segist ekki hafa komið niður á neðri
hæð hússins í fimm ár. Spenna milli Pakistana og Bandaríkjamanna vex.
HEITTRÚAÐIR MÓTMÆLA Liðsmenn Jamaat e Islami, rótgróins stjórnmálaflokks
strangtrúaðra múslima í Pakistan, hafa ákaft mótmælt árás Bandaríkjamanna á
Osama bin Laden. NORDICPHOTOS/AFP
Líst þér vel á nýju kjara-
samningana?
Já 42,2%
Nei 57,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á LÍÚ að fá að koma að laga-
setningu um framtíðarskipulag
fiskveiðistjórnunarkerfisins?
Segðu skoðun þína á visir.is
NOREGUR Leif Ivar Kristiansen,
forsprakki Vítisengla í Noregi,
var í gær dæmdur í fjögurra og
hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefna-
misferli og rán. Hann stendur nú
í skaðabótamáli við íslensk stjórn-
völd vegna frávísunar úr landi í
fyrra.
Á vef Verdens Gang kemur
fram að Kristiansen var annars
vegar sakfelldur fyrir aðild sína
að stóru fíkniefnamáli þar sem
tæp tíu kíló af hassi voru gerð
upptæk og hins vegar rán. Sannað
þótti að hann hefði með hótunum
fengið háar fjárhæðir frá vitorðs-
mönnum sínum í fíkniefnamálinu.
Hann sagðist myndu áfrýja dómn-
um.
Kristiansen rekur nú skaða-
bótamál gegn íslenska ríkinu eftir
að hann var handtekinn við kom-
una til landsins í febrúar í fyrra
og vísað úr landi eftir einnar
nætur vist í fangaklefa.
Vinni hann það mál verður það
ekki í fyrsta sinn sem ríkinu er
gert að greiða vélhjólamönnum
skaðabætur því að meðlimum MC
Iceland vélhjólaklúbbsins voru
dæmdar skaðabætur að upphæð
700.000 krónum vegna ólögmætr-
ar handtöku.
MC Iceland fékk inngöngu í
Hells Angels fyrr á þessu ári, en
meðlimir klúbbsins segjast ekki
tengjast glæpastarfsemi. - þj
Norskur vítisengill dæmdur til fangavistar fyrir fíkniefnamisferli og rán:
Dæmdur í Noregi, kærir á Íslandi
VÍTISENGILL DÆMDUR Leif Ivar Kristiansen hefur verið dæmdur í fjögurra og hálfs árs
fangelsi í heimalandi sínu en stendur í skaðabótamáli við íslenska ríkið.
KJÖRKASSINN