Fréttablaðið - 07.05.2011, Síða 38
2 fjölskyldan
Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Forsíðumynd: Gunnar V. Andrésson Pennar: Júlía Margrét Alexandersdóttir, Vera Einarsdóttir, Þórdís Lilja Gunnarsdóttir
Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir 512-5462 sigridurdagny@365.is
BARNVÆNT
Sjónleikur er stafakubbasett sem ætlað er börnum á aldr-inum fjögurra til sjö ára,“ segir Bergþóra Magnús-
dóttir um útskriftarverkefni sitt úr
grafískri hönnun við Listaháskóla
Íslands. „Sjónleikur sameinar í leik
heima sjáandi og heyrandi, blindra
og heyrnarlausra. Hver kubbur er
helgaður einum bókstaf stafrófsins
þar sem hann er sýndur á ritmáli,
með blindraletri og táknmálsmynd
stafsins og mynd. Kubbarnir veita
börnunum innsýn í fleiri heima
tungumálsins en þeim er tamt og
birtir þeim ólík tjáningarform.“
Hvert stafasett inniheldur 32 kubba
sem eru stafir íslenska stafrófsins
og eru sérhljóðar einkenndir með
bleikum lit, samhljóðar með bláum.
En hvernig kviknaði hugmyndin?
„Síðasta sumar fékk ég styrk frá
nýsköpunarsjóði námsmanna og
hannaði íslenska stafaöskju þar sem
ég var bara að vinna með bókstafina
án myndar. Það verkefni var tilnefnt
til nýsköpunarverðlauna forseta
Íslands. Þessi heimur hefur lengi
verið mér mjög hugleikinn, mamma
er kennari og ég er alin upp við það
að velta þessum málum fyrir mér.“
Átt þú börn? „Ég á tveggja
ára stelpu sem er bara nákvæm-
lega eins og börn eiga að vera, en
algengasta spurningin sem ég fæ
í sambandi við þetta verkefni er
hvort ég eigi blint eða heyrnar-
laust barn. Kveikjan að verkinu
var að mig langaði að gera eitt-
hvað fyrir börn sem hefði dýpri
merkingu og kenndi börnum að
þekkja fleiri heima og verða með-
vituð um það að þessi tungumál,
blindraletrið og táknmálið, eru
alveg jafn gild og tungumálið sem
við tölum.“
Verkefni Bergþóru er unnið
í samstarfi við þrjú fyrirtæki,
Lógóflex, Artis og Fókus, og seg-
ist hún mjög þakklát fyrir hvað
fólk hafi verið áhugasamt og
hjálpfúst. „Þetta verkefni virðist
standa nærri hjarta fólks og það
hefur verið mjög gaman að fylgj-
ast með viðbrögðum fólksins á
sýningunni,“ segir Bergþóra sem
vinnur nú að því að koma kubbun-
um í framleiðslu. - fsb
Stafakubbar Útskriftarverkefni
Bergþóru.
Sjónleikur „Þetta verkefni virðist standa nærri hjarta fólks,“ segir Bergþóra Magnúsdóttir um útskriftarverkefni sitt frá
Listaháskólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kubbarnir Sjónleikur
sameina heima
Útskriftarverkefni Bergþóru Magnúsdóttur úr grafískri hönnun við LHÍ er stafakubbasett.
Hún segir kubbana sameina í leik heima sjáandi og heyrandi, blindra og heyrnarlausra.
Fagna útgáfu púsluspils Puzzled by Iceland býður í
fjölskylduvænt kaffi í Toppstöðinni í Elliðaárdal á mæðradag í
tilefni af nýtilkomnu samstarfi við UNICEF og útgáfu púsluspils-
ins Móðurást. Af hverju seldu púsli munu 500 krónur renna til
UNICEF en fyrir þá upphæð geta samtökin meðal annars keypt
60 skammta af saltupplausn sem hjálpar til við að vinna bug á
ofþornun og niðurgangi hjá börnum eða 427 skammta af
A-vítamíni fyrir börn sem er nauðsynlegt fyrir sjón, ónæmis-
kerfi, vöxt og þroska.
Puzzled by Iceland, sem er í eigu Guðrúnar Heimisdóttur og
Þóru Eggertsdóttur, var stofnað í ágúst í fyrra. Hugmyndin kom
upp þegar þær voru í fæðingarorlofi en báðar eru tveggja
barna mæður. Það lá því beint við að halda útgáfuhófið á
mæðradaginn. Puzzled by Iceland framleiðir púsl með íslenskum myndum og lenti viðskiptahug-
myndin í öðru sæti í Gullegginu, frumkvöðlakeppni Innovit, fyrir skemmstu. Þá fengu eigendurnir
veglegan styrk frá Atvinnumálum kvenna til að fara með vörumerkið Puzzled by í útrás í lok apríl.
Útgáfuhófið hefst klukkan 15 á sunnudag og mun frú Vigdís Finnbogadóttir taka við fyrstu Móðurást-
inni en hún er verndari heimsforeldra UNICEF á Íslandi.
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 16, sími 553 7300
Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17
Bolur
2.990
Peysa
4.990
Stuttbuxur
6.990
Hálsmen
3.990
Kjóll
7.490
Mikið úrval af
sólgleraugum
Á 1.250 – 1.750 kr.
www.holta.is
GRILL
SUMAR!
Á www.holta.is er fullt af glænýjum og ómótstæðilegum
uppskriftum að girnilegum kjúklingaréttum.