Fréttablaðið - 07.05.2011, Side 74

Fréttablaðið - 07.05.2011, Side 74
10 fjölskyldan Afar og ömmur búa yfir reynslu sem er yngri kyn-slóðum dýrmæt. Bæði eru þau yfirleitt örugg í hlut- verkinu að annast börn og hafa lært af eigin reynslu,“ segir Svein- dís Anna Jóhannsdóttir félagsráð- gjafi. Ömmur og afar hafa leit- að til Sveindísar en hún rekur ráðgjafar- og meðferðarstofuna Félagsráðgjafinn í Garðabænum. Ömmur og afar eru virkir þátt- takendur í lífi barnabarnanna að sögn Sveindísar. Nútíma-afinn og -amman leggi yfirleitt áherslu á góðar samverustundir, eru áhuga- söm um íþrótta- og tómstundastarf og gegna mikilvægu hvatningar- hlutverki þar. Að hafa það gaman saman er oft efst í þeirra huga. Stundum kvikna áhyggjur hjá foreldrum að ömmur og afar spilli börnunum með dekri. Svein- dís segir að fyrst verði að skoða hvað sé dekur. „Dekur er nefni- lega kannski bara eitthvað gott – eitthvað sem lætur manni líða vel og nærir í alla staði. Ef við erum sammála um að það sé dekur er ekki hægt að spilla með dekri. Við getum ekki verið of vel nærð eða liðið of vel. Að leyfa allt er hins vegar ekki dekur. Það er skortur á aga og leiðir til þess að börn verða óörugg, finna fyrir hjálparleysi, þar sem þeim er ekki hjálpað að skilja hvað má og hvað ekki.“ Ísland hefur sérstöðu gagn- vart nágrannaþjóðum í samvist- um barna við ömmur sínar og afa. „Doktor Sigrún Júlíusdóttir, pró- fessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, hefur rannsakað hlutverk afa og ömmu og þar kemur fram að þau íslensku hitta barnabörnin sín oftar og lengur en frændþjóð- irnar. Ég myndi vilja sjá meiri blöndun aldurshópa í félagsstarfi.“ Afar og ömmur eru virkir þátt- takendur á atvinnumarkaði, í félagsstörfum og oft í námi. „Þau þurfa líka tíma fyrir sitt félagslíf. Í dag búum við betra heilsufar og betri fjárhag. Ömmur eru oft í því að hugsa um eigin foreldra sem glíma við erfiðleika tengda heilsu- fari, en eru líka að hugsa um börn- in sín og barnabörnin. Það getur verið flókið að styðja svona marga en eiga líka að sinna sjálfum sér.“ - jma Meiri samgangur hér Íslensku ömmurnar og íslensku afarnir hitta barnabörnin sín oftar og lengur en ömmur og afar í nágrannaþjóðunum að sögn Sveindísar Önnu Jóhannsdóttur félagsráðgjafa. Að leyfa allt er ekki dekur „Dekur er nefnilega kannski bara eitthvað gott – eitthvað sem lætur manni líða vel og nærir mann í alla staði.” FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Í íslenskum núgildandi lögum segir í dag ekkert um umgengnisrétt barna við afa sína og ömmur en það eru fyrst og fremst foreldrar sem geta óskað eftir að umgengni verði ákveðin. Einungis ef foreldri barns er látið eða ef foreldri getur ekki sinnt umgengnisskyldum sínum geta afar og ömmur krafist úrskurðar sýslumanns um umgengni við barnið. Afleiðingar hjónaskiln- aða eru stundum þær að tengsl við afa og ömmur minnka, oft vegna misklíðar foreldra, og á það sérstaklega við um stjúpafa og stjúpömmur. „Erlendis, til dæmis í Danmörku, hefur það færst í vöxt að amma og afi leiti aðstoðar hjá dómstólum um samskipti við barnabörn sín og þá sérstaklega ef um er að ræða föðurafa og -ömmu. Hér á Íslandi geta ömmur og afar hins vegar ekki sótt slíkan rétt en deilur foreldra geta leitt til þess að afar og ömmur blæða fyrir það. Tengslin við afa og ömmur geta því rofnað og oft er erfitt að vinna þann tíma upp,” segir Sveindís. Nefnd um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum var skipuð í nóvember 2007 af þáverandi félags- og tryggingamála- ráðherra í samræmi við þingsáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að styrkja stöðu barna og ungmenna. Meðal þess sem starfshópurinn ræddi um var hvort rýma ætti heimild hjá öfum og ömmum á Íslandi til að sækja rétt sinn til umgengni. Nefnt var að ömmur og afar hefðu oft sterk tengsl við barn og oft væri erfitt að komast að samkomulagi við forsjárforeldri sem barn býr hjá. Hætta gæti verið á því að mikilvæg tengsl barns við hluta ættingja sinna töpuðust en slíkt gengi gegn hagsmunum barns. Umgengni við ömmu og afa Öll börn og ungmenni eiga sér drauma um framtíðina. Undan sumum þeirra er fótunum kippt fyrirvaralaust vegna slysa eða sjúkdóma í æsku. OKKAR Framtíð er ný trygging fyrir börn og ungmenni sem skipt getur sköpum fyrir fjárhagslegt sjálfstæði þeirra á fullorðinsárum. Það er einfalt að ganga frá OKKAR framtíðartryggingu á okkar.is z e b ra „efin ” Framtíð o g fjá rhag fullor ði n sá ra n n afyrir í lífin u
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.