Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 86

Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 86
7. maí 2011 LAUGARDAGUR46 Hver er uppáhaldsliturinn þinn? Mér finnst skærir litir fallegast- ir. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Fiskur, lambakjöt og grænmeti. Hvernig var Ísland þegar þú varst barn? Það var jafnfrá- bært og í dag en þó færri bílar og minna stress. Hvað vildir þú verða þegar þú yrðir stór? Mér fannst mikið óréttlæti í þjóð- félaginu og vildi vinna að því sem gæti breytt þessu. Áttu börn eða barnabörn? Hvernig finnst þeim að eiga for- sætisráðherra fyrir mömmu og ömmu? Ég á tvo syni og sex barnabörn. Ég held að þau séu oft ánægð með mömmu sína og ömmu en vildu gjarnan að hún væri ekki allt- af svona upptekin í vinnunni. Kanntu ennþá að leika þér? Ég leik við barnabörn- in mín þegar ég get. Það er alltaf gaman að bregða á leik og verða barn í annað sinn. Ræður þú öllu á landinu? Nei, margir aðrir ráða miklu, hver á sínu sviði. Þetta er eins og í stórri fjöl- skyldu þar sem allir þurfa að hjálpast að við að sinna ólíkum verkefnum. Ef þú réðir öllu, hverju myndir þú helst vilja breyta? Ef hægt væri að ráða öllu myndi ég fyrst og fremst óska þess að a l l ir væru heilbrigðir og hamingjusam- ir. Hvað finnst þér um íslenska krakka? Íslenskir krakkar eru frábærir. Barnabörnin mín eru á aldrinum 2 til 14 ára svo ég hef fylgst með því sem krakkar á ýmsum aldri eru að gera í skóla og frístundum og er ánægð með unga fólkið sem seinna mun taka við stjórn landsins. Verður þú aldrei leið á að sitja í þingsalnum og hlusta á allar ræðurnar? Jú, stundum. Eru sætin á Alþingi þægileg? Sumum finnst þau svo þægileg að þeir vilja helst sitja í þeim lengi lengi. Hver er skemmtilegasti þing- maðurinn og af hverju? Á Alþingi er oftast verið að fjalla um alvarlega hluti en sumir þingmenn geta verið léttir og skemmtilegir þegar þeir eru ekki í vinnunni. Hvað er það leiðinlegasta við að vera forsætisráðherra? Það er auðvelt að svara þessari spurningu. Eftir að ég varð forsætisráðherra hef ég ekki getað hitt barna- börnin mín eins oft og áður og það finnst mér afskaplega leiðinlegt. Hefur þú fengið að hitta frægt fólk sem forsætisráð- herra? Forsætis- ráðherrar hitta stundum frægt fólk en það er ekkert öðru- vísi en að hitta þá sem eru ekki frægir. krakkar@frettabladid.is 46 Ég á tvo syni og sex barnabörn. Ég held að þau séu oft ánægð með mömmu sína og ömmu en vildu gjarnan að hún væri ekki alltaf svona upptekin í vinnunni. Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is ALLTAF GAMAN AÐ BREGÐA Á LEIK Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir íslenska krakka frábæra. Leiðinlegast við starfið þykir henni að hafa lítinn tíma fyrir barnabörnin. Þegar sól hækkar á lofti er gaman að útbúa ferska og svalandi drykki og bjóða vinum sínum upp á eða fjöl- skyldu. Þessi drykkur er skemmtilega grænn á litinn, bráðhollur og afar bragðgóður. Fyrir fjóra 2 bollar ferskt spínat 2 bollar frosin jarðarber 1 banani 2 msk. hunang ½ bolli ísmolar lauf af myntu (má sleppa) Setjið spínatið í frystinn og látið það vera þar í klukkutíma. Setjið svo spínatið, jarðarberin, bananann, hunangið og ísmolana í blandara og fáið aðstoð einhvers fullorðins við að setja blandarann af stað. Látið blandarann vinna drykkinn þar til hann er skrímslagrænn með slímmjúkri áferð. Skreyta má drykkinn með græn- um blöðum af myntu- plöntu, en því má líka sleppa. Grænn skrímsladrykkur Hvað er það sem sekkur í sæ en blotnar ekki? Sólin. „Ég ætla að fá fuglafræ.“ „Hvað áttu marga fugla?“ „Enga ennþá en ég ætla að sá fyrir nokkrum.“ Einu sinni voru tveir vitlausir karlar að hjálpast að við að þvo bíl. Annar hélt á tuskunni og hinn keyrði bílinn fram og til baka. Tvær slöngur voru eitt sinn saman úti að skríða þegar önnur þeirra spurði: „Erum við eiturslöngur?“ „Já, Af hverju spyrðu?“ „Ég beit í tunguna á mér!“ Ertu ánægður með nýja hund- inn þinn? Já mjög, hann sækir til dæmis alltaf Moggann fyrir mig. En eru ekki margir hundar sem gera það? Jú, jú, en ég er ekki áskrifandi. WWW.KIDS.DISCOVERY.COM Á vefsíðunni er fjöldi skemmti- legra leikja og þrauta. Þar er líka fræðandi og skemmtilegt efni um heiminn eins og landafræði, dýralíf og mannkynssaga. FATA MARKA ÐUR LAUGA RDALS HÖLL LAUGA RDALH ÖLLIN Opið frá 12:00-19:00 Glænýjar vörur beint frá London!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.