Fréttablaðið - 07.05.2011, Side 104
7. maí 2011 LAUGARDAGUR64
sport@frettabladid.is
LIÐ 1. UMFERÐAR í Pepsi-deild karla að mati Fréttablaðsins er þannig skipað: Markvörður: Ögmundur Kristinsson,
Fram. Vörn: Atli Sveinn Þórarinsson (á mynd), Halldór Kr. Halldórsson, Pál Justinusen (allir Val). Miðja: Orri Freyr
Hjaltalín (Grindavík), Guðjón P. Lýðsson (Val), Matthías Vilhjálmsson (FH), Arnór Ingvi Traustason (Keflavík).
Sókn: Kjartan Henry Finnbogason (KR), Helgi Sigurðsson (Víkingi), Jóhann Birnir Guðmundsson (Keflavík).
Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona
Góður æfingafélagi er gulls ígildi.
Best er ef heilbrigð samkeppni ríkir
á milli æfingafélaga svo að báðir
aðilar þurfi sífellt að vera á tánum
og leggja sig fram við æfingar.
Góður æfingafélagi ætti líka að veita
manni fullan stuðning og hvatningu.
Síðast en ekki síst ætti æfinga-
félaginn að vera skemmtilegur því
þegar öllu er á botninn hvolft skiptir
mestu máli að það sé gaman að
fara á æfingu og að gleðin sé í fyrir-
rúmi á sama tíma og einbeitingin
er 100%.
Það er ekki nóg að hafa aðgang
að góðum æfingafélaga því það er
ekki síður mikilvægt að við séum
okkar eigin bestu æfingafélagar. Það
skiptir miklu máli hvaða augum við
lítum okkur og hvernig við tölum
við okkur sjálf. Gefum því gaum
hvort við séum sífellt að rífa okkur
niður með neikvæðum hugsunum
eða hvort við hvetjum okkur áfram.
Gleymum við því ef til vill að hrósa
sjálfum okkur, gefa okkur klapp
á bakið og vera stolt af afrekum
okkar?
Rétt eins og okkur finnst sjálfsagt
að hvetja æfingafélaga okkar áfram
þegar á reynir ættum við líka að
hvetja okkur sjálf til dáða. Ég reyni
að vera minn eigin besti vinur og
æfingafélagi því það er sama hvað
ég geri, ég losna aldrei við sjálfa mig
og hugsanir mínar. Ég sit uppi með
sjálfa mig það sem eftir er og hrein-
lega nenni ekki að hlusta á leiðin-
legar athugasemdir og neikvæðar
hugsanir.
Þetta hugarfar hefur reynst
mér sérstaklega vel þegar ég
hef verið að glíma við meiðsli.
Í stað þess að hata meiðslin og
aumingjaskapinn í sjálfri mér, og
þannig sparka sífellt í liggjandi
manneskju sem reynir að veikum
mætti að standa upp, reyni ég að
vera þolinmóð og hugsa jákvætt
til meiðslanna. Hvort að batinn
verður hraðari þori ég ekki að
votta fyrir, en bataferlið verður
allaveganna bærilegra.
Verum okkar eigin bestu vinir og
æfingafélagar, við náum ekki árangri
nema í fullri samvinnu við okkur
sjálf.
Að vera sinn eigin besti æfingafélagi
FÓTBOLTI Rúnar Kristinsson breytti miklu þegar
hann tók við liði KR síðasts sumar og eitt af því
sem hann breytti var að færa Kjartan Henry
Finnbogason til á vellinum. Rúnar færði hann
aðeins aftar á völlinn, en Kjartan Henry hefur
samt sem áður raðað inn mörkum í nýrri stöðu.
Kjartan tók upp þráðinn frá því síðasta haust
þegar hann skoraði tvö mörk í 3-2 útisigri KR
í Kópavoginum.
„Það gerðist allt í fyrri hálfleik og þetta var
mjög viðburðaríkur fyrri hálfleikur hjá mér.
Ég fékk að taka vítið og þakkaði traustið með
því að skora. Svo veit ég ekki alveg hvað ég
var að gera í vítateignum hinum megin enda
er ég ekki vanur að vera þar eins og kannski
sást. Sem betur fer náði ég að bæta fyrir það og
skora eitt mark, sem var frábært,“ sagði Kjart-
an Henry en Blikar jöfnuðu leikinn í 1-1 úr víti
sem var dæmt á hann.
„Þeir voru óheppnir að missa mann út af
svona snemma því þessi brottvísun var vendi-
punkturinn í leiknum. Blikarnir voru alls ekk-
ert slakari í leiknum,“ segir Kjartan, sem átti
möguleika á að innsigla þrennuna í seinni hálf-
leik en skaut þá í stöngina á marki Blika.
Umskiptin á Kjartani Henry síðan Rúnar tók
við leyna sér ekki í tölfræðinni.
Kjartan Henry hafði bara átt þátt í 4 mörk-
um í 12 leikjum undir stjórn Loga Ólafssonar
(3 mörk og 1 stoðsending) en hefur með leikn-
um við Blika komið að 11 mörkum í 10 leikjum
undir stjórn Rúnars (7 mörk og 4 stoðsending-
ar).
„Ég fékk loksins traustið og fór líka út á
væng. Þá var ég meira í boltanum og var meira
inni í leiknum. Mér finnst þetta mjög skemmti-
leg staða og ég er mjög ánægður með að fá að
spila hana áfram,“ segir Kjartan, sem er sátt-
ur við þá ákvörðun Rúnars Kristinssonar að
setja hann í nýja stöðu.
„Ég held að Rúnar hafi fundið réttu
stöðuna fyrir mig því ég var svolít-
ið einangraður upp á topp. Þetta
er ný áskorun fyrir mig. Það
er mjög skemmtilegt að spila
þarna úti hægra megin og
þetta er eitthvað nýtt fyrir
mér,“ segir Kjartan.
KR-ingar hafa ekki
byrjað Íslandsmótið vel
undanfarin ár en sigur
í fyrsta leik gefur
ástæðu til bjartsýni í
Vesturbænum.
„Við lítum á þetta
sem lítið hraðmót í
byrjun sem klárast 6.
júní. Ég held að þetta
muni skýrast talsvert
hverjir verða hvar
eftir þessa fyrstu sjö
leiki. Við brenndum
okkur á því í fyrra að
vera skítlélegir í fyrstu
umferðunum,“ segir
Kjartan.
„Eftir að Rúni kom
inn kom meiri sam-
vinna í liðið. Þetta er
liðsíþrótt og við erum búnir
að átta okkur á því. Við ætlum ekki
að gera sömu mistökin og við gerðum
í fyrra. Það var frábært að byrja á
sigri og nú þurfum við bara að fylgja
því eftir og taka einn leik fyrir í einu,“
sagði Kjartan en fram undan er fyrsti
heimaleikurinn á móti Keflavík á
sunnudaginn.
„Menn eru mjög spenntir og ég vona
að þessi byrjun okkar hafi kveikt svolít-
ið í áhorfendaskaranum okkar. KR hefur
alltaf verið með flesta áhorfendurna og
líka þá bestu og við erum því spenntir að
spila á heimavellinum okkar.
Völlurinn lítur vel út og
þetta verður skemmti-
legur leikur milli tveggja
flottra liða,“ segir Kjartan,
sem hefur mikla trú á KR-liðinu í sumar.
„Við erum með hörkulið og ekki bara fyrstu
ellefu því við erum með rosalega stóran og
góðan hóp. Rúni sýndi það á undirbúnings-
tímabilinu að hann treystir öllum og við sýnd-
um það í verki að við erum traustsins verðir. Ég
hef mikla trú á þessum hópi og er mjög spennt-
ur fyrir sumrinu. Ég trúi því varla að þetta sé
byrjað,“ segir Kjartan Henry að lokum.
ooj@frettabladid.is
Rúnar fann réttu stöðuna fyrir mig
Kjartan Henry Finnbogason skoraði tvö mörk fyrir KR í 3-2 sigri á Íslandsmeisturum Breiðabliks í fyrstu
umferð Pepsi-deildar karla og hann er bestu leikmaður fyrstu umferðarinnar að mati Fréttablaðsins.
KR-ingar sem hafa byrjað vel
Flest mörk KR-inga í fyrsta leik á Íslandsmóti í knattspyrnu.
( frá því að tvöföld umferð var tekin upp 1959)
5 mörk - Þórólfur Beck á móti Akureyri 28. maí 1961
3 - Tómas Ingi Tómasson á móti Breiðabliki 23. maí 1994
2 - Kjartan Henry Finnbogason á móti Breiðabliki 3. maí 2011
2 - James Bett á móti Breiðabliki 23. maí 1994
2 - Björn Rafnsson á móti ÍBV 17. maí 1986 og
2 - Björn Rafnsson á móti Þrótti 13. maí 1985
2 - Björn Pétursson á móti Þrótti 13. maí 1976
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Nýkomið í sölu 230 fm parhús með innb. 27 fm bílskúr. Húsið er á tveimur hæðum á
frábærum stað við Vesturbrún í Reykjavík. Neðri hæð: Forstofa. Gestasalerni. Eldhús m.búri
inn af. Stór stofa með útg. út á hellulagða afgirta verönd til suðurs með heitum potti. Rúmgóð
arinstofa. Efri hæð: Steyptur stigi milli hæða. Baðherbergi. Eitt barnaherbergi. Rúmgott hjóna-
herbergi með fataherbergi inn af og útg. út á flísalagðar suður svalir. GÓLFEFNI:
Kirsuberjaparket og flísar. Þetta er hús sem býður upp á mikla möguleika. Opið svæði fyrir
aftan hús sem ekki verður byggt á. Verð 58,0 millj. Gísli Rafn sölufulltrúi fasteign.is tekur
á móti gestum milli kl. 17 og 18 sunnudag.
OPIÐ HÚS SUNNUDAG KL. 17-18
VESTURBRÚN 31 - PARHÚS
FÓTBOLTI Manchester United og
Chelsea eigast við í toppslag
ensku úrvalsdeildarinnar kl.
15.10 á morgun. Chelsea getur
með sigri náð United að stigum
en sigri þeir rauðklæddu er enski
meistaratitillinn svo gott sem í
höfn.
„Ef við vinnum tel ég að við
verðum meistarar,“ sagði Fergu-
son við enska fjölmiðla í gær.
„Árangur okkar á heimavelli
hefur verið frábær og líklega
sá besti í Evrópu. Það má ekki
breytast um helgina,“ bætti hann
við en United hefur unnið sextán
af sautján leikjum sínum á Old
Trafford og gert eitt jafntefli.
Chelsea var fimmtán stigum
á eftir United í mars en getur
nú komist á toppinn með sigri
þar sem liðið yrði þá með betra
markahlutfall en United. Chelsea
var einmitt síðasta liðið til að
vinna leik á Old Trafford en sá
sigur kom í apríl í fyrra. - esá
Enska úrvalsdeildin:
Titillinn undir í
toppslagnum
MÆTAST Í DAG Wayne Rooney, leik-
maður Manchester United, og David
Luiz hjá Chelsea. NORDICPHOTOS/GETTY