Fréttablaðið - 10.05.2011, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 10.05.2011, Blaðsíða 14
14 10. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR Eitt af því sem ég sakna mest úr háskólaumræðunni er að takast málefnalega á við menn um grunnhugmyndir. Einn held- ur einu fram og annar skorar þann á hólm í rökræðu. Þessi aðferð leiðir til þess að þekking verður til. Við greinaflokki mínum um íslenska fiskveiðistjórnunar- kerfið hef ég ekki fengið mikla málefnalega gagnrýni enn sem komið er. En nú ber vel í veiði! Jón Steinsson, sem er Milton Friedman fræðimaður við Chicago-háskóla, hefur mótmælt harðlega staðhæfingu sem ég setti fram í greinaflokknum. Í annarri af fimm greinum sem birtist hér í blaðinu held ég því fram að hluti auðlindaarðsins í sjávarútvegi renni til sjómanna vegna þess fyrirkomulags sem notað er til að ákvarða laun þeirra. Þar segi ég jafnframt: „Auðlind sem allir þjóðfélags- þegnar hafa jafnan rétt til að nýta er dæmd til að vera ofnotuð ef afrakstur hennar er nægilega eftirsóknarverður – auðlinda- rentunni er sóað. Sóunin felst í að of margir sjómenn munu fjár- festa í of miklum fjármunum í viðleitnin sinni að ná til sín auð- lindarentunni. Þetta er það sem kallað hefur verið sorgarsaga almenninganna. Þannig verður sjálfstortíming í raun það sem allir keppa að. Hver útgerðar- maður hugsar aðeins um eigin hag. Frelsi í almenningum leiðir því að lokum tortímingu yfir alla þátttakendur.“ Best er að taka tilbúið dæmi til að sýna að gagnrýni Jóns á ekki við rök að styðjast. Segjum sem svo að fiskveiðar séu frjálsar og að auðlindarentunni sé allri sóað – að of margir sjómenn keppist um takmarkaða fiskveiðiauðlind á of mörgum skipum. Í dæma- skyni skulum við gera ráð fyrir að 10 þúsund sjómenn stundi sjósókn á þúsund skipum sem öll séu með sama aflaverðmæti – allir skipstjórarnir eru jafn fisknir. Nú eru innleiddar aðgangs- takmarkanir í veiðarnar, líkt og gert var hér á landi árið 1984, til að auðlindaarðurinn verði til. Útgerðin aðlagar sig. Sumir útgerðarmenn selja kvóta og aðrir kaupa. Skipum fækkar og sjómönnum með. Gerum nú ráð fyrir að þessu ferli sé lokið og fullri hagkvæmni sé náð í útgerð. Skipum hefur fækkað um 500 og sjómönnum um 5 þúsund. Að meðaltali er aflaverðmæti skip- anna nú tvisvar sinnum hærra en áður (vegna einkaleyfis til að veiða) og laun sjómannanna hafa tvöfaldast (vegna hlutaskipta- kerfisins). Auðlindaarðinum sem áður var sóað á altari of mikillar sóknargetu (offjárfestingar) er nú skipt á milli sjómannanna (vegna hlutaskiptakerfisins) og útgerðamannanna. Reyndar eiga útgerðirnar eftir að borga af sínum hlut fyrir heimildirnar sem þær keyptu. Það bendir til þess að auðlindaarðurinn sem féll útgerðinni í hlut endi að lokum hjá þeim sem seldi kvót- ann og fór út úr greininni, en það er önnur saga sem ég mun gera skil síðar. Ef hinsvegar um fast- launakerfi hefði verið að ræða, eða að kvótakaupin væru greidd af óskiptum hlut, hefði (brúttó) auðlindarentan endað hjá útgerð- inni. Sjómenn njóta því auðlinda- arðsins með útgerðunum vegna hlutaskiptakerfisins. Þannig er það nú Jón minn! Jú Jón, sjómenn njóta auðlindaarðs Auðlindir Tryggvi Þór Herbertsson prófessor í hagfræði og alþingismaður Dásemdir vorsins kalla árlega fram hjólin úr bílskúrnum og þó að Íslendingar séu farnir að hjóla árið um kring er fjölg- un hjólafólks í umferðinni enn árviss vorboði. Veturinn var mildur og hann var gott að hjóla í Reykjavík. Ofankoman í mars var mikil og eftir allt fannferg- ið var gott að fá rigningu til að skola vetrinum burt. En rigning- in ræður ekki við alla mölina sem varð eftir á stígunum. Þegar við sem erum vön umferð hjólum á milli staða bíður okkar þægilegt leiðarval. Við eigum að vera á götunni en megum heimsækja gangstéttirn- ar þegar okkur hentar. Þar erum við gestir og víkjum fyrir umferð gangandi. Hjólreiðamanni ber að láta vita af sér með ljúfum hætti fyrir gangandi vegfarendur. Á því hljóðlausa ökutæki sem hjólið er getur bjallan komið sér ágæt- lega. Öllu skemmtilegra fyrir borgarbraginn er þó ef hjólreiða- menn flauta lagstúf eða syngja lítið lag. Ef hinn gangandi tekur eftir þessu og víkur úr vegi fyrir hjólreiðamanninum þökkum við hjólreiðamenn að sjálfsögðu fyrir á hlýlegan hátt. Þó að götusópar Reykjavíkur- borgar séu komnir vel af stað með að hreinsa upp lausamöl- ina eftir hálkueyðingu vetrarins ættu allir hjólandi að vera með- vitaðir um hve auðveldlega við skrikum í lausamölinni. Til að tryggja ferðafarsæld okkar fer best á að eiga rólegar beygjur og vera meðvituð um þessi óþæg- indi, einkum í nánd við blindhorn og þar sem líkur eru á óvæntum uppákomum. Á götunum er lítið um lausa- möl. Þar er umferðin greiðari og síður hindranir á veginum. Hjólið er ökutæki sem á að vera á götunni. Staða þess er alla jafna í víkjandi stöðu, hægra megin á akrein í 0,5-1 m fjar- lægð frá götubrún. Þessi fjar- lægð er öryggissvæði hjólreiða- mannsins. Staðan gerir hann sýnilegri í umferðinni og inn í öryggis svæðið getur hann vikið, sé honum ógnað af annarri umferð. Þegar tekið er fram úr kyrrstæðum bílum verður hjól- reiðamaðurinn að taka sér það pláss á akreininni að hann sé öruggur um að hjóla ekki á hurð bílsins – verði hún óvænt opnuð þegar hjólað er framhjá bílnum. Þá er hjólið komið í ríkjandi stöðu á götunni. Í ríkjandi stöðu tekur hjólið sem ökutæki sömu stöðu á götunni og stórt vélknúið ökutæki. Þetta gerir hjólreiða- maðurinn til að tryggja sitt eigið öryggi og til að láta ekki þröngva sér í öngstræti sem geta reynst honum varasöm. Nokkur dæmi um það þegar hjólreiðamaður fer í ríkjandi stöðu eru þegar hjól- að er framhjá hliðargötu, þegar hjólað er um miklar þrengingar á götu og á leið í gegnum hringtorg. Til að fara í ríkjandi stöðu, líttu þá í kringum þig og vertu viss um að vera í sambandi við bíl- stjórann fyrir aftan þig – horfðu í augu hans og gefðu merki áður en þú breytir um stöðu. Það er ekki hugmyndin með ríkjandi stöðu að gerast lestar- stjóri. En vissulega getur sú staða komið upp og þá reynir á heilbrigða skynsemi okkar allra; bílstjóra vélknúinna ökutækja og hjólreiðamanna. Umburðar- lyndi og samvinna hefur aukist í umferðinni síðustu ár. Höldum áfram að rækta þá ánægjulegu þróun. Brosum og horfum í augu hvert annars. Við erum öll í leið. Eitt öruggasta hjálpartæki hjólreiðamannsins er augun. Augnsamband, líta aftur, fylgjast með umferðinni og gera sýnilegt þeim sem fylgist með þér, hvert augun þín líta. Bílstjórinn á vél- knúna ökutækinu verður að sjá þig og hann vill líka sjá hvað þú ert að hugsa. Hann getur séð það með því að sjá hvert þú lítur. Með því að horfa í augu ökumanns- ins veist þú líka, hjólreiða maður góður, hvað hann gerir næst og þá hefur þú val um að ákveða eigið öryggi. Ég sé hvað þú hugsar – örugg á hjóli Umburðarlyndi og samvinna hefur aukist í umferðinni síðustu ár. Höldum áfram að rækta þá ánægjulegu þróun. Hjólreiðar Sesselja Traustadóttir hjólreiðamaður Í desember 2010 var lagt fram á Alþingi frumvarp um breyting- ar á lögum um náttúruvernd nr. 44/1999. Nokkrar deilur hafa sprott- ið um þetta frumvarp og eru þær til- efni þessara skrifa. Með frumvarpinu á að gera svip- aða hluti og búið er að gera fyrir löngu í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Við Íslend- ingar erum nefnilega langt á eftir öðrum þjóðum í umhverfismálum og náttúruvernd og löngu tíma- bært að eitthvað sé gert í því. Þeir sem harðast hafa gengið fram gegn frumvarpinu og fylgismönnum þess eru starfsmenn skógræktarfélaga (hagsmunaaðilar?). Þeir hafa ítrek- að gripið til rangfærslna og stóryrða um þá sem eru þeim ósammála og hér eru fáein dæmi: „... menn vilji banna skógrækt ...“; „... ströngustu hreintrúarmenn..“; „... mikil öfga- sjónarmið ...“; „... tekin afstaða gegn landgræðslu og skógrækt ...“; „... skógræktarfólks, sem vill lífríki Íslands vel“; „.. .afnám frelsis ein- staklingsins til gróðursetningar ...“; „... rasismi og hrísvandarhyggja ...“ Þetta er allt með ólíkindum og getur tæplega flokkast sem málefnaleg umræða. Hvað vill þetta fólk? Það virðist vilja fullkomið frelsi til að gera það sem því sýnist án tillits til annarra sjónarmiða. Reynsla annarra þjóða af inn- flutningi framandi dýra og plantna er ákaflega blendin. Stundum er hægt að hafa gagn af framandi lífverum en á meðal þeirra getur leynst, þó ekki sé nema ein, sem veldur óbætanlegu tjóni. Það verð- ur því sjaldan of varlega farið. Ástral ía er oft tekin sem dæmi en þar hafa t.d. innfluttar kanín- ur, kettir og nokkrar jurtir valdið miklu og óbætan legu tjóni. Ástral- ir hafa lært af þessari bitru reynslu og sem ferðamaður finnur maður fyrir ströngu eftirliti með fram- andi lífverum, bæði inn í landið og milli landssvæða. Íslendingum hefur gengið ákaflega illa að læra af reynslu annarra þjóða en það er virkilega mál að linni. Ef forsvarsmenn skógræktar- félaga halda að um skógrækt á Íslandi ríki almenn sátt þá skortir þá jarðsamband. Ég tel að flestir Íslendingar séu hlynntir skógrækt ef hún er rekin með skynsemi og af smekkvísi. Ég tel hins vegar að verið sé að gera a.m.k. tvenns konar mistök í skógrækt á Íslandi, annað er þegar plantað er trjátegundum sem ekki eiga heima á viðkomandi svæði og hitt er þegar plantað er trjám á svæði sem eru mun verð- mætari trjálaus. Þannig hafa mörg góð og aðgengileg berjalönd verið eyðilögð með skógrækt og önnur svæði þakin svo þéttum skógi að gangandi fólki er ófært þar um. Sumir skógræktarmenn virðast telja trjálaust land, eins og fallegt mólendi, vera ógróið og einskis virði. Fólk spyr sig í vaxandi mæli hvaða tilgangi þetta brölt þjóni og hvort þetta sé virkilega gert fyrir fólkið í landinu. Í ofanálag er þetta eins og heilagar kýr, ef einhver vogar sér að gagnrýna skógræktina þá er hann útmálaður sem andstæð- ingur skógræktar og landgræðslu og þar með hálfgert illmenni. Ég lýsi eftir hugarfars breytingu hjá stjórnendum skógræktarinnar og þeir ættu líka að minnast þess að fólki er alls ekki sama hvernig skattpeningar eru notaðir. Umræða á villigötum Umhverfismál Magnús Jóhannsson prófessor í lyfjafræði

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.