Fréttablaðið - 10.05.2011, Blaðsíða 16
10. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR16
timamot@frettabladid.is
Anna Margrét Guðjónsdóttir varaþing-
maður Samfylkingar var nýlega valin
Evrópumaður ársins 2010 en viður-
kenninguna hlýtur Anna Margrét fyrst
kvenna. Evrópusamtökin völdu Evrópu-
mann ársins í sjöunda sinn frá stofnun
samtakanna en þau eru þverpólitískur
vettvangur áhugamanna um Evrópu-
samvinnu.
Áhugi Önnu Margrétar á samstarfi
Íslands við önnur Evrópuríki kvikn-
aði fyrir alvöru árið 2006 þegar hún
flutti til Brussel og stóð að opnun skrif-
stofu Sambands íslenskra sveitarfélaga
þar í borg. Hún gegndi starfi forstöðu-
manns skrifstofunnar allt þar til hún
flutti heim árið 2009. Í Brussel kynnt-
ist hún Evrópumálunum af eigin raun
en sú reynsla vó þungt í þeirri ákvörðun
Önnu Margrétar að skella sér í pólitík-
ina. Anna Margrét er landfræðingur að
mennt og hefur meistarapróf í opinberri
stjórnsýslu.
„Jú, það er ánægjulegt að fá þessa
viðurkenningu sem setur um leið líka á
mig skyldur - að halda áfram að miðla
reynslu minni og þekkingu og um leið
sannfæringu minni um mikilvægi
aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
Ég held einnig að það skipti ekki síður
máli að kona skuli hljóta þessa viður-
kenningu í fyrsta sinn, það er mikil-
vægt að konur eigi sér fyrirmyndir í
umræðunni,“ segir Anna Margrét.
Viðurkenningin er meðal annars
veitt fyrir starf Önnu Margrétar við að
deila þekkingu sinni á málaflokknum, í
ræðu og riti, en hún situr meðal annars í
stjórn Evrópuvaktar Samfylkingarinnar
og stjórn Já-hreyfingarinnar.
„Þetta er mikið baráttumál í mínum
huga, ekki síst eftir að hafa unnið og
starfað við þetta, og kynnst á eigin
skinni hvernig það er að standa fyrir
utan Evrópusambandið en taka samt
upp gerðir þess. Ég reyndi það í mínum
daglegu störfum hvernig það er að vera
aldrei inni í herberginu þar sem ákvarð-
anirnar eru teknar og það sannfærði
mig endanlega,“ segir Anna Margrét.
Formlegar aðildarviðræður Íslands í
Evrópusambandið hefjast í júní. Anna
Margrét segir sér vera hvað efst í huga
þessi misserin að Íslendingar tefli fram
öllu sína besta fólki, á hverju sviði, til að
ná fram besta mögulega samningi.
„Ég vona að menn átti sig á því að við
verðum að nýta það fólk sem býr yfir
mestri þekkingu í viðræðurnar sjálfar
og undirbúning þeirra. Allar stofnan-
ir og hagsmunasamtök þurfa að leggja
fram sínar óskir og þekkingu til að
samninganefndin geti farið fram með
ákveðin skilaboð og þar skiptir miklu
að það ferli sé unnið af heiðarleika hér
heimafyrir. Í raun er það versta sem
getur gerst að einhverjir hópar dragi
lappirnar í aðildarviðræðum og sitji svo
upp með það að þjóðin samþykki aðild
sem ekki felur í sér bestu mögulegu
kosti í viðkomandi málaflokki.”
Hver sem niðurstaðan í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni um aðild verður er
umræðan um Evrópusambandið, kosti
þess og galla, gott innlegg í umræðuna
að mati Önnu Margrétar. „Menn geta
rætt þetta fram og aftur, spáð í hvort
Evrópusambandið sé góð viðbót eða
ekki og umræðan öll verður upplýstari
og faglegri.”
juliam@frettabladid.is
ANNA MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR: VALIN EVRÓPUMAÐUR ÁRSINS 2010
Miðla áfram minni reynslu
GÓÐ UMRÆÐA „Menn geta rætt þetta fram og aftur, spáð í hvort Evrópusambandið sé góð viðbót eða ekki og umræðan öll verður upplýstari og
faglegri,“ segir Anna Margrét Guðjónsdóttir varaþingmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
AFMÆLI
MAGNÚS
RAGNARS-
SON
leikari er
48 ára
SVEINN
RÚNAR
HAUKSSON
læknir er
64 ára
Merkisatburðir
1513 Samþykkt er gerð að Leiðarhólmi í Breiðafjarðardölum,
þar sem mótmælt var misbeitingu kirkjulegs valds.
1651 Heimilað er að stofna fjóra holdsveikraspítala.
1940 Hernámsdagurinn. Breskt herlið sett á land í Reykjavík.
Allmargir Þjóðverjar handteknir.
1976 Fjórmenningar sem setið höfðu í gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknar Geirfinnsmálsins, flestir í 105 daga, látnir laus-
ir.
1990 Stúlkubarn fæðist Grímseyingum, en næstu sjö árin á
undan höfðu einungis fæðst drengir, 15 alls.
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, afi
og langafi,
Sigurður Gísli Bjarnason
gullsmiður,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli föstudaginn
6. maí sl. verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju-
daginn 17. maí kl. 13.
Sigrún Sigurðardóttir Ásgrímur Þór Pálsson
Steinar Sigurðsson Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sigurðardóttir Smári Grétar Sveinsson
Guðrún Hjálmarsdóttir Símon Friðriksson
afabörn og langafabörn.
Ástkær sonur okkar og bróðir,
Tryggvi Jón Jónatansson
Eyrarvegi 18, Akureyri,
lést á heimili sínu 2. maí. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 13. maí.
Jónatan S. Tryggvason Sigurósk R. Aðalsteinsdóttir
Ásta F. Reynisdóttir Heimir F. Heimisson
Eygló Jóhannesdóttir
Freyja P. Jónatansdóttir Ísak Már Friðriksson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hjörleifur Jónsson
fyrrverandi forstjóri,
lést laugardagsmorguninn 7. maí. Útförin fer fram frá
Háteigskirkju mánudaginn 16. maí kl. 13.00.
Ingibjörg Snæbjörnsdóttir
Elín Birna Hjörleifsdóttir
Jón Hjörleifsson
Sigríður Hjördís Hjörleifsdóttir
og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ásmundur Jónsson
Ásabraut 4, Akranesi,
lést fimmtudaginn 5. maí. Útför hans fer fram
frá Akraneskirkju fimmtudaginn 12. maí kl. 14.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Helga Jóna Sveinsdóttir
Ingibjörg Ásmundsdóttir Jóhann O. Pétursson
Jón Óskar Ásmundsson Guðrún Margrét Halldórsdóttir
Svanhvít Ásmundsdóttir Þór Magnússon
Einar Aðalsteinsson Suzanne T. Adalsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, tengdasonur,
faðir, tengdafaðir og afi,
Páll Þórðarson
lögfræðingur og fyrrverandi
framkvæmdastjóri,
Strýtuseli 20, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fimmtudaginn
5. maí. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánudag-
inn 16. maí kl. 13.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra vegna sumardvalar í Reykjadal, s. 535 0900.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarbæjar fyrir góða
umönnun.
Þorbjörg Einarsdóttir
Kristín Þ. Ottesen
Sigrún Pálsdóttir Ólafur Arason
Kristín Pálsdóttir Hörður Sigurðsson
Arna Pálsdóttir Halldór Haraldsson
og barnabörn
61
Þennan dag fyrir 65 árum tók Winston Churchill
flotaforingi við forsætisráðherraembætti Bret-
lands. Neville Chamberlain hafði sagt af sér sem
forsætisráðherra þann sama dag. Chamberlain
hafði undirritað samkomulag við Adolf Hitler árið
1938 og hafði í framhaldi af því uppi stór orð um
að þetta samkomulag myndi tryggja „frið á okkar
tímum“.
Allar friðarvonir hrundu þegar Þjóðverjar
réðust inn í Pólland 1. september árið 1939 og
fljótlega varð ljóst að Chamberlain réð illa við
það verkefni að vera forsætisráðherra Breta á
ófriðartímum. Chamberlain missti stuðning félaga
sinna í Íhaldsflokknum í apríl árið 1940, strax og
ljóst varð að Bretum myndi ekki takast að koma
í veg fyrir að Þjóðverjar réðust inn í Noreg. Þegar
Þjóðverjar réðust svo inn í Holland og Belgíu 10.
maí sama ár samþykkti breska þingið vantraust á
Chamberlain. Hann sagði af sér og Churchill var
fenginn til þess að taka við. Þremur dögum síðar
hélt Churchill sína fyrstu þingræðu og sagðist þá
hafa „ekkert að bjóða nema blóð, svita og tár.“
ÞETTA GERÐIST: 10. MAÍ 1940
Churchill verður forsætisráðherra
BONO, söngvari hljómsveitarinnar U2, er 51 árs í dag.
„Tónlist getur breytt heiminum því hún breytir fólki.“