Fréttablaðið - 10.05.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 10.05.2011, Blaðsíða 26
10. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR18 Sex íslensk ljóðskáld og eitt danskt lesa úr verkum sínum á Bakkusi í kvöld. Tilefnið er nýútkomin útgáfa danska forlagsins Arena á úrvali ljóðaþýðinga tíu íslenskra skálda af yngri kynslóðinni. Ny islandsk poesi nefn- ist ljóðasafnið, sem er það þriðja í sérstökum ljóðaþýð- ingaflokki hjá Arena en áður hafa komið út söfn pólskra og þýskra ljóða. Í útgáfunni, sem er tvímála, er leitast við að kynna það sem er efst á baugi hjá ungum skáldum í viðkomandi löndum. Íslensku ljóðin þýddu Erik Skyum Nielsen, Lóa Steffans dóttir og Nina Søs Vinth. Sú síðastnefnda er jafnframt ritstjóri bókar- innar. Hún er stödd hér á landi og var því ákveðið að efna til upplestrarkvölds. Sjálf er Nina skáld og mun hún lesa upp úr eigin verk- um. Auk hennar lesa upp sex íslensk skáld af þeim tíu sem eiga ljóð í bókinni. Þau eru: Kristín Eiríksdóttir, Ingólfur Gíslason, Kári Páll Óskars son, Sölvi Björn Sig- urðsson, Haukur Ingvars- son og Kristín Svava Tómas- dóttir. Dagskráin hefst klukkan 20.30. Ljóðaupplestur á Bakkusi í kvöld KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR Eitt tíu íslenskra skálda sem eiga ljóð í nýútkomnu dönsku þýðingasafni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Elskuleg dóttir okkar, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Árný Sandra Róbertsdóttir lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans miðvikudaginn 4. maí sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu daginn 12. maí kl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Arnfinnur Róbert Einarsson Sigrún Stella Einarsdóttir Helena Hörn Einarsdóttir Elskulegur sonur minn og bróðir, Theódór Ásgeir Jónsson andaðist 3. maí síðastliðinn. Útförin fer fram föstudaginn 13. maí kl. 15.00 frá Fossvogskirkju. Sigríður Jóhannsdóttir Steinunn Magnúsdóttir Ísleifur Jónsson Jóhanna Magnúsdóttir Alda Haraldsdóttir Guðmundur Sveinsson Róbert Guðmundsson Ástkær móðir, tengdamóðir og amma, Björg Bjarnadóttir Hlíðarhjalla 44, Kópavogi, lést á Landakotsspítala 4. maí sl. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn 11. maí kl. 13.00. Við færum starfsfólki á Landakotsspítala og á Blóðlækningadeild Landspítala við Hringbraut inni legar þakkir fyrir kærleiksríka umönnun og gott viðmót. Bjarni Gautason Þorbjörg Ásgeirsdóttir Arnþór Bjarnason Sara Björg Bjarnadóttir Snjólaug Vala Bjarnadóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ellert S. Svavarsson frá Ármúla, til heimilis að Hólabraut 8, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 7. maí. Útförin auglýst síðar. Bergþóra Valgeirsdóttir og fjölskylda. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Unnur Guðbjörg Jónsdóttir Hvanneyrarbraut 42, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar föstudaginn 6. maí. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 14. maí kl. 14.00. Gottskálk Rögnvaldsson Rögnvaldur Gottskálksson Auður B. Erlendsdóttir Gunnar Gottskálksson Erla Ósk Hermannsdóttir ömmubörn og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðmunda Ögmundsdóttir Tjarnarmýri 39, Seltjarnarnesi, sem andaðist á líknardeild Landspítala Landakoti fimmtudaginn 5. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. maí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minn- ast hennar er bent á minningarsjóð Flateyjarkirkju á Breiðafirði. Minningarkort fást í versluninni Sjávarborg í Stykkishólmi, s. 438 1121, og hjá Gunnari, s. 824 5651. Guðný Gerður Gunnarsdóttir Ögmundur Gunnarsson Rannveig Stefánsdóttir Gunnar Freyr Gunnarsson barnabörn og barnabarnabarn Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, Erla Helgadóttir Kleppsvegi 104, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 27. apríl. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð og vináttu við andlát hennar. Stefán Kr. Stefánsson börn, tengdabörn og barnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, Vigdísar Þormóðsdóttur Hvassaleiti 58, Reykjavík. Þormóður Sveinsson Sigríður Hjörleifsdóttir Höskuldur Sveinsson Helena Þórðardóttir Ásgerður Sveinsdóttir Hallgrímur Hólmsteinsson Gunnhildur Sveinsdóttir Svanbjörn Thoroddsen og barnabörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Árlegri myndasögusam- keppni Borgarbókasafns og Myndlistaskólans í Reykja- vík lauk á sunnudaginn með opnun sýningar á þeim sögum sem inn bárust. Fyrstu verðlaun hlaut Elín Edda Þorsteinsdóttir fyrir söguna Góðan daginn, en þar segir frá rólegum fundi hversdagshetju og einmana fíls niðri við strönd. Hún hlaut að launum námskeið hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Yfirskrift keppninnar var Ofurhetjan, til heiðurs hetjunni Wonder Woman sem á sjötugsafmæli í ár. Á sjötta tug myndasögu- höfunda á aldrinum 10 til 21 árs sendu sögur sínar í keppnina og eru þær með ýmsu sniði. Valinn var einn sigur- vegari en sex til viðbótar fengu viðurkenningu. Saga Inga Rúnars Kjartansson- ar segir frá ofurhetju sem hrekur burt skrímsli með því að bjóða því mjólkur- hristing; Kári Haralds- son segir frá ofurhetju sem leysir vandamál með klósettpappír og kallast því einmitt Herra klósett- pappír; Ofurhendin í sögu Nicholas Þórs Peters Helga- sonar er æpandi ófreskja sem kemur hætt stöddum fingrum til bjargar; Bat- man kid Karenar Aspar Einarsdóttur er ef til vill ekki sú ofurhetja sem hún sýnist vera en drýgir þó hetjudáð; Viðar Vignisson segir frá Risum í Reykja- vík, sem virðast óþolinmóð- ir og hvatvísir en vinna þó hjörtu fólksins; og Chick- man Hafrúnar Kolbeins- dóttur spyr hvað hefði getað orðið ef Bruce Wayne hefði séð eitthvað annað en leðurblöku út um glugga sinn á viðkvæmu augna- bliki fyrir ríflega 70 árum. Sýningin er á 1. hæð aðal- safns Borgarbókasafns í Tryggvagötu 15 og stendur út júní. Góðan daginn hafði sigur SIGURMYNDIN Fyrstu verðlaun hlaut Elín Edda Þorsteinsdóttir fyrir söguna Góðan daginn, en þar segir frá rólegum fundi hvers- dagshetu og einmana fíls niðri við strönd.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.